SIGGI VETURLIÐI ÓSKARSSON

Størrelse: px
Starte visningen fra side:

Download "SIGGI VETURLIÐI ÓSKARSSON"

Transkript

1 VETURLIÐI ÓSKARSSON SIGGI Siggi var úti með ærnar í haga. Allar hann hafði þær suður í mó. Smeykur um holtin var hann að vaga, vissi hann að lágfóta dældirnar smó. Gagga gagg, sagði tófan á grjóti. Gráum augunum trúi ég hún gjóti. Aumingja Siggi hann þorir ekki heim. 1 Eitt af sérkennum íslenskrar nafnahefðar er mikil og almenn notkun gælunafna. Frá málfræðilegum sjónarhóli eru þau nöfn áhugaverðust sem hafa stofntengsl við skírnarnafn. 2 Reglurnar um myndun slíkra nafna eru allflóknar en meginatriðin eru skýr. Tvö frumatriðin eru þau að nafnið skal vera veikrar beygingar og stofninn eitt atkvæði + beygingarending. Einkvæð aðalnöfn verða því formlega séð tvíkvæð (Karl > Kalli) og fleirkvæð nöfn dragast saman í e.k. stofn + endingu, gjarnan þannig að fyrri eða seinni hluti aðalnafns er felldur brott (Hall-dór > Dóri / Halli) en stundum á þann hátt að eitt eða fleiri hljóð úr seinni hlutanum fylgja hinum fyrra (Frið-rik > Frikki; Þor-grímur > Þoggi). Að auki er sterk tilhneiging til þess að grunnsérhljóð sé stutt. Til staðfestingar á þessu má geta þess að í skrá nálega 870 gælunafna í fórum undirritaðs eru 99% tvíkvæð, um 86% eru veikrar beygingar 3 og um 73% hafa atkvæðagerðina VC (Alla, Raggi o.þ.h., 55%) eða VCC (Gústa, Simbi o.þ.h., 18%); 27% hafa atkvæðagerðina V C (Sóla, Eyfi o.þ.h.). Í gælunöfnum verða enn fremur ýmsar breytingar á hljóðafari sem að mestu leyti eru bundnar við þau en geta 1 Jónas Jónasson frá Hrafnagili ( ) orti. (Mér er ekki tiltæk frumheimild og vitna í kvæðið eftir Vasasöngbók Ungmennafélags Íslands 1974, bls. 141). 2 Hljóðafar og atkvæðagerð gælunafna sem eru ótengd aðalnafni (Lilli, Brói, Lóló, Stella o.s.frv.) er reyndar í meginatriðum af sama tagi og geta þau því verið áhugaverð til samanburðar við hin síðarnefndu. 3 Þess skal getið að um 11% þeirra gælunafna sem hér eru talin til sterkrar beygingar eru af sama tagi og Guggý o.s.frv., sem oft eru höfð óbeygð í öllum föllum. 7

2 líka birst í myndun gæluheita af samnöfnum, svo sem lokhljóðun önghljóðs, lenging samhljóðs og stytting sérhljóðs (t.d. Davíð > Dabbi, Viðar > Viddi o.s.frv.; sbr. lögregla > lögga, nef > nebbi o.s.frv.), ásamt margskyns brottföllum og samlögunum sem ekki verður nánar farið út í hér. 1 Nokkur helstu atriðin sem hér voru nefnd koma fram í nafninu Siggi. Siggi er yfirleitt stytting á Sigurður en getur líka staðið fyrir önnur nöfn sem byrja á Sig-, t.d. Sigurjón, Sigmundur og Sigtryggur. Nafnið er veikrar beygingar, það er tvíkvætt og atkvæðagerðin er VC. Það er myndað af fyrri hluta samsetts nafns og ber merki um lokhljóðun önghljóðs ásamt meðfylgjandi lengingu þess og styttingu undanfarandi sérhljóðs. Trúlega gengst sérhver Sigurður landsins við ávarpinu Siggi í góðra vina hópi að minnsta kosti enda eru fá önnur úrræði til myndunar gælunafns í þessu tilfelli. 2 Fyrir utan gælunafnið Siggi væri e.t.v. hugsanlegt að mynda nafnið *Sigi af fyrri hluta nafnsins, og þykist undirritaður hafa dæmi um það (stafsett Síi), en það er áreiðanlega mjög fátítt. Seinni hluti nafnsins er talinn vera af sama toga og nafnliðirnir -varður, -vörður (sbr. Guðrúnu Kvaran & Sigurð Jónsson 1991:485) en tengsl -urður við þá eru orðin allsendis ógegnsæ fyrir ævalöngu, kannski fyrir Íslands byggð. Af seinni hlutanum er tæplega hægt að mynda tækt gælunafn, m.a. af þeim sökum að hann getur ekki staðið sjálfstæður, hvorki sem nafn, liður í öðru nafni né sem samnafn. Ég held a.m.k. að *Urði eða *Urri sé tæplega að finna sem gælunöfn af Sigurður, og ekki þekki ég heldur til dæma um *Gurði eða *Gurri, sem væru mynduð af seinni hlutanum með -g- úr fyrri hlutanum en slíkt væri líka nokkuð á skjön við eðlilega gælunafnamyndun. 3 Siggi sem gælunafn fyrir Sigurður er eitt þeirra nafna sem Jón Ólafsson úr Grunnavík ( ) tekur upp í lista yfir gælunöfn sem er að finna í handritinu AM 432 fol. (listinn er birtur hjá Guðrúnu Kvaran & Sigurði Jónssyni 1991:49 50). Siggi virðist hins vegar ekki koma fyrir í íslenskum miðaldaheimildum (sbr. Lind ; Lind 1931) og mér eru ekki kunnug dæmi um 1 Nánari vitneskju um myndun gælunafna má finna í ritum sem talin eru upp í heimildaskrá, einna helst í grein Aðalheiðar Þorsteinsdóttur (1998). Sjá einnig Finn Jónsson (1920) og Guðmund Finnbogason (1926). 2 Í skrám undirritaðs eru fáein dæmi um að notast hafi verið við gælunöfnin Bói, Lilli, Silli og Snoddi fyrir Sigurður (tvö þau fyrstu eru í reynd gælumyndir fyrir orðin bróðir og litli) og eru eflaust til fleiri ámóta dæmi. 3 Þetta mætti þó e.t.v. bera saman við myndun gælunafna af tvíkvæðum og ósamsettum nöfnum af erlendum uppruna, svo sem Stjáni og Skari af Kristján og Óskar, þar sem hugsanlegt væri, frá sjónarhóli íslenskunnar, að greina -st(j)- og -sk- sem tilheyrandi fyrri hlutanum. 8

3 það eldri en í ofangreindum lista nema ef vera skyldi að rétt sé vitnað í Leirulækjar-Fúsa (um ) í Þjóðsögum Jóns Árnasonar þegar hann segir um Sigurð Gíslason Dalaskáld, sem drukknaði í bátsferð með Fúsa 1688: Nú er Siggi dauður, en sá er munurinn okkar að Fúsi flaut, en Siggi sökk. (Jón Árnason 1961:521). Miðað við það hversu algengt nafnið Sigurður hefur alla tíð verið er þó ekki ósennilegt að dæmi um gælunafnið leynist í handritum aldar. Ég þykist geta fullyrt að það komi ekki fyrir í fornbréfum Í nágrannamálum er nafnið Siggi, Sigge að finna sem styttingu á nöfnum sem byrja á Sig- í heimildum allt frá 13. öld eða fyrr, t.d. í sænskum fornbréfum þeirrar aldar (skv. Modéer 1964:62), í norskum bréfum frá því snemma á 14. öld, t.d. í bréfi frá 1319 (Siggi Hallsteinsson, DN 8:73, Ósló) 1 og í dönskum bréfum frá 14. og 15. öld (elsta dæmið er um þolfallsmyndina Siggonem í bréfi á latínu frá 1334, Knudsen & Kristensen :1218). Siggi kemur einnig fyrir rist með rúnum, m.a. á sænskum rúnasteini í Vestmannalandi (VS 5): Siggi hiogg [r]u[naë] (11. öld) og á eignarmerki úr tré sem fannst í Björgvin (B649): Siggi á (13. öld; bæði þessi dæmi fundust við leit í Samnordisk runtextdatabas). Í norsku bréfi frá 1348 er nefndur síra Magnús Siggason (DN 4:256, 1347, Ósló), árið 1454 er nefndur Siggi Larisson aff wapn 2 (DN 16:192, Skara), og á 15. öld var uppi í Svíþjóð biskup að nafni Sigge Ulfsson (biskup í Strängnäs). Er hvort tveggja ljóst að nafnið á sér langa sögu sem eiginlegt ávarps- eða skírnarnafn á Norðurlöndum og að það var langt í frá bundið við slétta bændur. Nú á dögum er Sigge notað sem skírnarnafn í Svíþjóð og þekkist einnig sem slíkt meðal Norðmanna. Gælunöfn hafa verið óalgeng á Íslandi sem skírnarnöfn, óalgengari en t.d. í Færeyjum, en þar hafa m.a. nöfnin Sigga, Gutti, Óli, Torli, Magga og Greta verið í notkun undanfarnar aldir sem slík (Jákup í Jákupsstovu 1974:32, 34, 37, 51). Á síðustu áratugum hefur þó tekið að bera á þessu hér á landi. Í Mannanafnaskrá er t.d. eftirfarandi nöfn að finna, sem flest eða öll eru upphaflega gælunöfn eða geta a.m.k. verið það: (1) Nöfn kvenna: Adda Didda Fríða Haddý Kaja Ninna Salka Stella Alla Día Gauja Heiða Kara Nína Sigga Todda Ásla Dísa Gerða Inda Kiddý Odda Sirrý Tóta Benna Dúna Gógó Inga Maja Óla Sísí Unna 1 Leit í norska fornbréfasafninu ( að Siggi (Sigge), Sigga, Siggason o.s.frv. gaf af sér dæmi (1319 til 1497). 2 Þ.e.a.s. riddari, aðalsmaður. 9

4 Beta Ella Gréta Jara Milla Peta Steina Bína Finna Gurrý Jóra Munda Rúna Veiga (2) Nöfn karla: Ási Jói Maggi Ómi Valdi Barri Jenni Mari Rósi Elli Líni Óli Sandri Meðal annarra skírnarnafna af þessu tagi eru t.d. Dúa og Dúi sem yfirleitt eru gælunöfn eða styttingar á persónufornafninu þú, og Stína sem stytting á Kristín eða tekið upp úr nágrannamálunum þar sem það er notað sem skírnarnafn (t.d. í sænsku). Enn hefur Siggi ekki verið notað sem eiginlegt skírnarnafn hér á landi og ekki hefur verið sótt um það, að ég best veit (sbr. Mannanafnaskrá), en vera kann að ekki verði þess langt að bíða. EPILOG Undirritaður leitaði fyrir forvitni sakir að nafninu Siggi í Greini og Gegni, gagnagrunnum Landsbókasafns-Háskólabókasafns. Í ljós kom að enginn Siggi hefur staðið í svo merkum greinaskrifum að þau hafi fengið inni í fyrrnefnda gagnasafninu en hins vegar eru hátt í 200 verk skráð í Gegni undir höfundarnöfnunum Siggi og Siggi Sörensson og sonur. Má vera að þar sé Siggi ekki stytting á Sigurður heldur Sigurjón, enda eru verkin öll söngtextar eftir tónlistarmanninn Sigurjón Kjartansson og fóstbróður hans Jón Gnarr. Leit með einni fjölmargra leitarvéla heimsvefjarins leiddi í ljós kringum 83 þúsund dæmi um Siggi; þykir mér heldur sennilegt að fæst dæmin séu um gælunöfn Íslendinga. HELSTU HEIMILDIR OG STUÐNINGSRIT Aðalheiður Þorsteinsdóttir Frá Hólmsteini til Homma myndun gælunafna í íslensku. Mímir 46: Diplomatarium Islandicum. Íslenzkt fornbréfasafn, sem hefir inni að halda bréf og gjörnínga, dóma og máldaga, og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn Kaupmannahöfn [1 4], Kaupmannahöfn & Reykjavík [5], Reykjavík [6 16] Diplomatarium Norvegicum. Oldbreve til Kundskab om Norges indre og ydre Forhold, Sprog, Slægter, Sæder, Lovgivning og Rettergang i Middelalderen Christiania [1 20], Bergen [21], Oslo [22] Vefslóð: dipl_norv/diplom_felt.html. Finnur Jónsson Islandske kælenavne. Nordiska namnstudier tillägnade Erik Henrik Lind. Den 14 augusti Uppsala. Bls Guðmundur Finnbogason Íslenzk gælunöfn. Skírnir 100:

5 Guðrún Kvaran & Sigurður Jónsson frá Arnarvatni. Nöfn Íslendinga Heimskringla Háskólaforlag Máls og menningar, Reykjavík. í Jákupsstovu, Jákup Fólkanøvn í Føroyum. Tórshavn. Jón Árnason Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri 1. Ný útgáfa. Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Bókaútgáfan Þjóðsaga, Reykjavík. Knudsen, Gunnar & Marius Kristensen Danmarks gamle Personnavne 1,2: Fornavne, L Ø. G. E. C. Gads Forlag, København. Lind, E. H Norsk isländska dopnamn ock fingerade namn från medeltiden. A.-B. Lundequistska bokhandeln, Uppsala & Otto Harrassowitz, Leipzig Norsk isländska dopnamn ock fingerade namn från medeltiden. Supplementband. Jacob Dybwads Bokhandel, Oslo, A.-B. Lundequistska bokh. Uppsala & G. E. C. Gads Boghandel, København. Mannanafnaskrá. Vefslóð: mannanafnaskra. Samnordisk runtextdatabas. Institutionen för nordiska språk, Uppsala universitet. Vefslóð: Vasasöngbókin. Ritstj.: Jónas Ingimundarson. Ungmennafélag Íslands, [án staðar] Veturliði Óskarsson Dálítil athugun á íslenskum gælunöfnum. Námsritgerð. (Óútgefin). Háskóla Íslands Hypokorismer till isländska förnamn. Fyrirlestur í boði Seminariet för nordisk namnforskning, Uppsalaháskóla, 24. janúar (Óbirtur). Villarsen Meldgaard, Eva Diminutiv, kortnavn og kortform. Personnamnsteori. NORNAs åttonde symposium i Lund oktober NORNA-rapporter 23. NORNA-förlaget, Uppsala. Bls FÁFNIS HJARTA VIÐ FUNA STEIKIR SIGURÐUR KONRÁÐSSON FIMMTUGUR 19. ÁGÚST 2003 MEISTARAÚTGÁFAN 2003 ÞARALÁTURSFIRÐI 11

6 12

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými. Notkun FHF gólfhitagrindin er notuð til að stjórna vatnsrennsli í gólfhitakerfum. Hvert rör í kerfinu er tengt gólfhitagrindinni sem gerir kleift að stjórna vatnsrennsli í hverri rás og hita í hverju rými

Læs mere

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir: . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014, 360/2016 og 666/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Frágangur handlista Í grein í byggingarreglugerð segir: Handlistar

Læs mere

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser Spil og leg 14 Læsebog side 40 41 Opgavebog side 68 Tegund: Samtalsæfing Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða sem snýr að tilfinningum, persónueinkennum og útliti. Undirbúningur: Prenta út opgaveblad

Læs mere

esurveyspro.com - Survey Detail Report

esurveyspro.com - Survey Detail Report Page 1 of 5 Kommuner: Miljøledelse ved bygning af veje og gader i de nordiske lande Respondent Type: Customer Custom Data 1: Name: Anna Rósa Custom Data 2: Email address: anna.r.bodvarsdottir@reykjavik.is

Læs mere

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju: Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: tengdan lífsstíl um neyslu ungs fólks á Norðurlöndum um ofnotkun á hreinlætisvörum og orku Hugmyndir að kveikju: Umræður um neyslu ungs fólks í dag. Fjallað um myndina

Læs mere

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003.

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003. 545 AUGLÝSING um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu. Hinn 30. apríl og 1. maí var með bréfaskiptum í Reykjavík og Nuuk gengið

Læs mere

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Dyrebingo. Önnur útfærsla Opgaveblad 2A Opgaveblad 2C Dyr i Danmarks natur Læsebog side 10 11 Opgavebog side 19 Tegund: Bingó með myndaspjöldum Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða tengdan dýrum. Undirbúningur: Prenta út

Læs mere

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 START Spil og leg 1 Spil og leg 1 Hvem er jeg? Hvad hedder du? Læsebog side 3 Opgavebog side Tegund: Samtals- og hreyfileikur Form: Hópleikur Markmið: Að læra að kynna sig. Undirbúningur: Finna bolta eða

Læs mere

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Efnisyfirlit Messing, nýsilfur, kopar, ál...3 Silfur...3 Blý...3 Tinklumpar...3 Tinþráður...4 Suðuteinar...4 Rör...4 Silfurslaglóð...4 Flúx...5 Teinar...5 Slípimassi,

Læs mere

Kökur, Flekar,Lengjur

Kökur, Flekar,Lengjur Kökur, Flekar,Lengjur Qimiq vörurnar eru unnar úr úrvals Austurísku hráefni. Q003301 Qimiq Profi Whip 1 kg (12) Q000114 Qimiq Base 1 kg (12) Q000115 Qimiq Sauce base 1 kg (12) Qimiq Whip Notið QimiQ Whip

Læs mere

Klart språk i Norden. Islandsk klarsprog som forskningsområde. Kilde: Klart språk i Norden, 2014, s

Klart språk i Norden. Islandsk klarsprog som forskningsområde. Kilde: Klart språk i Norden, 2014, s Klart språk i Norden Titel: Forfatter: Islandsk klarsprog som forskningsområde Ari Páll Kristinsson Kilde: Klart språk i Norden, 2014, s. 41-44 URL: http://ojs.statsbiblioteket.dk/index.php/ksn/issue/archive

Læs mere

komudagur 21-1- 2 0 f2

komudagur 21-1- 2 0 f2 7W O s s u e i k (. íé T ) Erindim Þ M /lo O S komudagur 21-1- 2 0 f2 MINNISBLAÐ TIL EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTANEFNDAR -tilla g a að nýrri 9. mgr. 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari

Læs mere

Leiguverð hæst í Reykjavík en íbúðaverð lægst Samanburður milli húsnæðismarkaða á Norðurlöndunum

Leiguverð hæst í Reykjavík en íbúðaverð lægst Samanburður milli húsnæðismarkaða á Norðurlöndunum Húsnæðissvið September 2018 Leiguverð hæst í Reykjavík en íbúðaverð lægst Samanburður milli húsnæðismarkaða á Norðurlöndunum Raunverðshækkanir íbúða meiri hér á landi Frá því að mælingar á vísitölu leiguverðs

Læs mere

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um afhendingarskylda aðila sem falla undir 1. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Læs mere

SÓN TÍMARIT UM ÓÐFRÆÐI

SÓN TÍMARIT UM ÓÐFRÆÐI SÓN TÍMARIT UM ÓÐFRÆÐI 10. HEFTI RITSTJÓRAR KRISTJÁN ÁRNASON RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON RÓSA ÞORSTEINSDÓTTIR REYKJAVÍK 2012 Són er helguð óðfræði og ljóðlist Útgefendur og ritstjórar Kristján Árnason Tómasarhaga

Læs mere

Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar

Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar Magnús Karel Hannesson Aðalfundur SASS 16. október 2009 Höfn í Hornafirði SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Samband Samband íslenskra íslenskra sveitarfélaga sveitarfélaga

Læs mere

Jón Ólafsson úr Grunnavík

Jón Ólafsson úr Grunnavík Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 52. ár, 2012 Ritstjórar: Jón Þ. Þór og Veturliði Óskarsson VETURLIÐI ÓSKARSSON Jón Ólafsson úr Grunnavík Fyrirmynd Halldórs Laxness að sögupersónunni Jón Guðmundsson frá Grindavík

Læs mere

Tengsl kaupmanna Almenna verslunarfélagsins og Íslendinga

Tengsl kaupmanna Almenna verslunarfélagsins og Íslendinga Hugvísindasvið Tengsl kaupmanna Almenna verslunarfélagsins og Íslendinga 1763-1774 Ritgerð til B.A.-prófs Björn Rúnar Guðmundsson Júní 2009 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Sagnfræði Tengsl kaupmanna Almenna

Læs mere

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur III. Sjávarhiti

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur III. Sjávarhiti Greinargerð 1 Trausti Jónsson Langtímasveiflur III Sjávarhiti VÍ-ÚR1 Reykjavík Mars Sjávarhitamælingar í gögnum Veðurstofunnar Inngangur Í gagnasafni Veðurstofunnar er talsvert til af sjávarhitamælingum.

Læs mere

Kennslulei⅟beiningar. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Kennslulei⅟beiningar. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Kennslulei⅟beiningar Jeg hedder Ida Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Höfundur: Katrín Hallgrímsdóttir 2 Opgave Oversigt OPGAVE OVERSIGT 3 OPGAVE DEL 1 5 VERKEFNI 1A AT MØDE NYE PERSONER 5 VERKEFNI

Læs mere

Snak med din makker Nauðsynlegt er að nemendur læri litina utan að og noti síðan samtalsæfinguna til að festa þá i minni.

Snak med din makker Nauðsynlegt er að nemendur læri litina utan að og noti síðan samtalsæfinguna til að festa þá i minni. Tøj og farver Í þemanu er fjallað um: Föt, liti og fylgihluti. Markmið er að nemendur: læri helstu liti. læri grunnorðaforða um föt. skilji þegar talað er um föt og liti á dönsku á einfaldan hátt. geti

Læs mere

KONUR SENDIÐ OSS ÚRVAL... Framlag kvenna til iðnsýninganna í Reykjavík 1883 og 1911

KONUR SENDIÐ OSS ÚRVAL... Framlag kvenna til iðnsýninganna í Reykjavík 1883 og 1911 KONUR SENDIÐ OSS ÚRVAL... Framlag kvenna til iðnsýninganna í Reykjavík 1883 og 1911 Áslaug Sverrisdóttir Eftirfarandi erindi má rekja til doktorsritgerðar í hugmyndasögu sem höfundur varði við Háskóla

Læs mere

Inntak sameiginlegrar forsjár samkvæmt 28. gr. a. barnalaga nr. 76/2003 Ákvörðunartaka um málefni barns

Inntak sameiginlegrar forsjár samkvæmt 28. gr. a. barnalaga nr. 76/2003 Ákvörðunartaka um málefni barns BA ritgerð í lögfræði Inntak sameiginlegrar forsjár samkvæmt 28. gr. a. barnalaga nr. 76/2003 Ákvörðunartaka um málefni barns Hulda Magnúsdóttir Leiðbeinandi: Elísabet Gísladóttir Desember 2013 BA ritgerð

Læs mere

Umsögn um frumvarp um náttúrupassa

Umsögn um frumvarp um náttúrupassa Aagot Vigdís Óskarsdóttir lögfræðingur1 Umsögn um frumvarp um náttúrupassa sem lagt var fram á Alþingi á 144. löggjafarþingi 2014-2015, 455. mál, þskj. 699. 1 Inngangur Frumvarp til laga sem kveður á um

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Gangar og anddyri Í grein í byggingarreglugerð segir: Meginreglur: Eftirfarandi

Læs mere

Nýtt. 11 umsóknir. Nýir stjórnendur í GSS. Kaffi, konfekt og klarinettur. Hvorfor leger lærere ikke gemmeleg? Fordi ingen ville lede efter dem.

Nýtt. 11 umsóknir. Nýir stjórnendur í GSS. Kaffi, konfekt og klarinettur. Hvorfor leger lærere ikke gemmeleg? Fordi ingen ville lede efter dem. Veffang: www.snaefellingar.is Netfang: frettir snaefellingar.is SÉRRIT - 28. tbl. 23. árg. 11. ágúst 2016 Stykkishólms - Póstinum er dreift ókeypis í Stykkishólmi og Helgafellssveit og liggur frammi í

Læs mere

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands.

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. S 5-4 1 S 5-4 Stjórnartíðindi C-deild, Nr. 19/1975 AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. Með orðsendingaskiptum í Reykjavík í dag var

Læs mere

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál]

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um félagslegt öryggi. (Lagt

Læs mere

Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar

Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar Hugvísindasvið Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar Orðræðan um þjóðerni og myndlist Ritgerð til B.A.-prófs í listfræði Guðrún Lilja K varan Júní 2013 Háskóli Íslands Íslensku- og menningardeild Listfræði

Læs mere

Einar G. Pétursson. Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum

Einar G. Pétursson. Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum 4.9.2007 11:06 1 Einar G. Pétursson Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum Þetta byrjaði allt vestur á Fellsströnd í Dölum. Ég er fæddur og uppalinn í Stóru-Tungu,

Læs mere

Hugað að klaustrinu í Þykkvabæ í Álftaveri

Hugað að klaustrinu í Þykkvabæ í Álftaveri Hugað að klaustrinu í Þykkvabæ í Álftaveri eftir Þorkel Jóhannesson & Óttar Kjartansson Inngangur Klaustur er komið úr latínu, claustrum, og merkir nánast innilokaðan stað ætlaðan til tilbeiðslu. Klaustur

Læs mere

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla.

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla. Tænk Talæfingar með Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla. Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir Yfirlestur og ráðgjöf: Astrid Juul Poulsen

Læs mere

Um nýtingu fiskistofna og töku gjalds fyrir nýtingu þeirra. 1. Viðfangsefnið

Um nýtingu fiskistofna og töku gjalds fyrir nýtingu þeirra. 1. Viðfangsefnið . Um nýtingu fiskistofna og töku gjalds fyrir nýtingu þeirra 1. Viðfangsefnið Með munnlegri beiðni í október 1998 fór auðlindanefnd, sem kjörin var á Alþingi 5. júní 1998 í framhaldi af þingsályktun frá

Læs mere

Gunnarsslagur og Valagaldur Kráku

Gunnarsslagur og Valagaldur Kráku Hugvísindasvið Gunnarsslagur og Valagaldur Kráku Eddukvæði frá 18. öld Ritgerð til B.A.-prófs Haukur Þorgeirsson September 2008 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslensku- og menningardeild Gunnarsslagur

Læs mere

Jöfn umgengni í framkvæmd

Jöfn umgengni í framkvæmd Jöfn umgengni í framkvæmd Helga Sigmundsdóttir Hrefna Friðriksdóttir Lagadeild Ritstjóri: Kristín Benediktsdóttir Rannsóknir í félagsvísindum XIV. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2013 Reykjavík: Félagsvísindastofnun

Læs mere

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk Reykjavík 09. Febrúar 2012 Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk Nr. 1 Alle spørgsmål er oversat

Læs mere

og þó tekinn sjötti hvör fiskur

og þó tekinn sjötti hvör fiskur Háskóli Íslands Hugvísindasvið Sagnfræði og þó tekinn sjötti hvör fiskur Kvartað undan kvöðum á jörðum í Árnessýslu á 18. öld Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði Arnfríður Inga Arnmundsdóttir Kt.: 210476-4669

Læs mere

Dómaraheimild. Rök með og á móti. Heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Lúðvík Börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti

Dómaraheimild. Rök með og á móti. Heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Lúðvík Börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti Dómaraheimild Heimild til að dæma sameiginlega forsjá Rök með og á móti Lúðvík Börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti Maí 2008 Efnisatriði 1. Inngangur... 2 2. Nefndarálit allsherjarnefndar

Læs mere

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir LV-2009/003 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið 2008 Janúar 2009 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði

Læs mere

Embættisskjöl og embættisfærsla landshöfðingja á Íslandi 1873 til 1904

Embættisskjöl og embættisfærsla landshöfðingja á Íslandi 1873 til 1904 Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir Embættisskjöl og embættisfærsla landshöfðingja á Íslandi 1873 til 1904 Rit Þjóðskjalasafns Íslands Rannsóknir á skjölum og skjalasöfnum Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir Embættisskjöl

Læs mere

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Opgavebog Jeg hedder Ida Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Höfundur: Katrín Hallgrímsdóttir 2 Opgave oversigt OPGAVE OVERSIGT 3 OPGAVE DEL 1 5 OPGAVE 1A AT MØDE NYE PERSONER 5 OPGAVE 1B - HVAD ER MINE

Læs mere

Þorsteinn Helgason. Stórtíðinda frásögn. Heimildir og sagnaritun um Tyrkjaránið á Íslandi árið 1627

Þorsteinn Helgason. Stórtíðinda frásögn. Heimildir og sagnaritun um Tyrkjaránið á Íslandi árið 1627 Þorsteinn Helgason Stórtíðinda frásögn Heimildir og sagnaritun um Tyrkjaránið á Íslandi árið 1627 Magistersritgerð í sagnfræði við Háskóla Íslands Haustið 1996 Umsjón Anna Agnarsdóttir 1 Formáli Ritgerðin,

Læs mere

Réttur tjónþola til endurupptöku ákvörðunar um bætur fyrir varanlegt líkamstjón

Réttur tjónþola til endurupptöku ákvörðunar um bætur fyrir varanlegt líkamstjón Fannar Freyr Ívarsson Réttur tjónþola til endurupptöku ákvörðunar um bætur fyrir varanlegt líkamstjón - BA ritgerð í lögfræði - Umsjónarkennari: Grímur Sigurðsson, LL.M., hrl. Lagadeild Háskóla Íslands

Læs mere

Eyvindur G. Gunnarsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands Valgerður Sólnes lögfræðingur Á L I T S G E R Ð

Eyvindur G. Gunnarsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands Valgerður Sólnes lögfræðingur Á L I T S G E R Ð Eyvindur G. Gunnarsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands Valgerður Sólnes lögfræðingur Á L I T S G E R Ð um lög nr. 19/1966 um eignarrétt og afnotarétt fasteigna og mögulegar lagabreytingar Reykjavík,

Læs mere

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur Jeg elsker Danmark Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur Markmiðið er að nemendur: fræðist um Danmörku og danska menningu.

Læs mere

& shirtingur. Sýning í tilefni aldarafmælis bókbandsstofu Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns 16. október 31. desember 2008

& shirtingur. Sýning í tilefni aldarafmælis bókbandsstofu Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns 16. október 31. desember 2008 Sauðskinn, saffían & shirtingur Sýning í tilefni aldarafmælis bókbandsstofu Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns 16. október 31. desember 2008 1 Sauðskinn, saffían og shirtingur Sýning í tilefni aldarafmælis

Læs mere

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi Hugvísindasvið Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi 1872-1936 Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði Ómar Þór Óskarsson Maí 2014 1 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Sagnfræði Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi

Læs mere

ISLEX - Islandsk-skandinavisk webordbog

ISLEX - Islandsk-skandinavisk webordbog Sammenfatning ISLEX er et elektronisk ordbogsværk hvor kildesproget er islandsk og målsprogene er dansk, svensk og norsk (både nynorsk og bokmål). Ordbogen genspejler islandsk sprogbrug i samtiden og den

Læs mere

Saga ferðaþjónustu á Íslandi. Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR

Saga ferðaþjónustu á Íslandi. Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR Saga ferðaþjónustu á Íslandi Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR það er kominn gestur Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson það er kominn gestur Saga ferðaþjónustu á Íslandi

Læs mere

Þegar Lærði skólinn í Reykjavík varð að máladeild

Þegar Lærði skólinn í Reykjavík varð að máladeild Tímarit um raunvísindi og stærðfræði 2. árg. 2. hefti 2004 raust.is/2004/2/03 Þegar Lærði skólinn í Reykjavík varð að máladeild Kristín Bjarnadóttir Kennaraháskóla Íslands Vefútgáfa: 30. desember 2004

Læs mere

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur II. Úrkoma og úrkomutíðni

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur II. Úrkoma og úrkomutíðni Greinargerð 03010 Trausti Jónsson Langtímasveiflur II Úrkoma og úrkomutíðni VÍ-ÚR10 Reykjavík Mars 2003 Úrkoma og úrkomutíðni Inngangur Hér er fjallað um úrkomumælingar á Íslandi með áherslu á fáeinar

Læs mere

Staðfesting lokaverkefnis til ML gráðu í lögfræði. Lokaverkefnið : Skilyrði lögbanns. eftir : Kristján Óskar Ásvaldsson. kt.

Staðfesting lokaverkefnis til ML gráðu í lögfræði. Lokaverkefnið : Skilyrði lögbanns. eftir : Kristján Óskar Ásvaldsson. kt. Staðfesting lokaverkefnis til ML gráðu í lögfræði Lokaverkefnið : Skilyrði lögbanns eftir : Kristján Óskar Ásvaldsson kt. 161186-3929 hefur verið metið og varið á málsvörn frammi fyrir dómnefnd þriggja

Læs mere

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála ML í lögfræði Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála Hvernig er fjárhæð miskabóta vegna þvingunarráðstafana ákveðin hjá dómstólum? Nafn nemanda: Hanna Guðmundsdóttir

Læs mere

LAGAÁREKSTRAR OG LAGASAMRÆMING

LAGAÁREKSTRAR OG LAGASAMRÆMING SIGURDUR GIZURARSON bæjarfógeti: LAGAÁREKSTRAR OG LAGASAMRÆMING EFNISYFIRLIT: I SAMRÆMING RÉTTARUPPSPRETTNA... A. HVERNIG STANGAST RÉTTARUPPSPRETTUR Á?... B. EF RÉTTARUPPSPRETTUR REKAST Á KOMA ÞRJU MEGINSJÓNARMID

Læs mere

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO MÁLNOTKUNARÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu

Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu Þorkell Jóhannesson dr.thorkell@simnet.is Höfundur er læknir, prófessor úr embætti. Stungulyf Innrennslislyf: Skilgreiningar

Læs mere

Háskóli Íslands Hugvísindasvið Danska. Oversættelse af Naja Marie Aidts Som englene flyver

Háskóli Íslands Hugvísindasvið Danska. Oversættelse af Naja Marie Aidts Som englene flyver Háskóli Íslands Hugvísindasvið Danska Oversættelse af Naja Marie Aidts Som englene flyver Ritgerð til BA-prófs í dönsku Hafrún Elma Símonardóttir Kt.: 260779-3709 Leiðbeinandi: Þórhildur Oddsdóttir Maí

Læs mere

4 helgi eða hafnir annara ríkja. Af þessu ferðalagi skipsins leiða eðlilega fjöldamargar sjerreglur. - Til þess að hægt sje að skilja og skýra þessar

4 helgi eða hafnir annara ríkja. Af þessu ferðalagi skipsins leiða eðlilega fjöldamargar sjerreglur. - Til þess að hægt sje að skilja og skýra þessar A. Inngangur. Forsendur. I. Sjórjettur. 1. Sjórjetturinn er lögin um siglingar. Öll þau lög (í víðustu merkingu), sem eiga rætur sínar í sjerkennum siglinga, eiga eftir eðli sínu heima í sjórjettinum.

Læs mere

Áður en farið er að vinna með kaflann er mælt með að tölurnar verði rifjaðar upp þar sem tölur koma við sögu í umfjöllun um t.d. verð og stærðir.

Áður en farið er að vinna með kaflann er mælt með að tölurnar verði rifjaðar upp þar sem tölur koma við sögu í umfjöllun um t.d. verð og stærðir. Tøj og tilbehør Í þemanu er fjallað um: mismunandi tegundir af fötum og fylgihlutum. hvað er í snyrtitöskunni. föt og tísku frá mismunandi tímabilum. stuttar fréttir og staðreyndir sem tengjast fötum.

Læs mere

Commissions Papiirer til Jnstr. 7 de Post. Jndkom d. 20 de Martii 1771. 1 Þorgrímur Þorláksson, múrarameistari Elliðavatni.

Commissions Papiirer til Jnstr. 7 de Post. Jndkom d. 20 de Martii 1771. 1 Þorgrímur Þorláksson, múrarameistari Elliðavatni. Bréf Bjarna Pálssonar landlæknis til Landsnefnarinnar fyrri um meðöl gegn fjárpestinni, 14.03.1771. Lit. GG. ÞÍ. Skjalasafn rentukammers. B4/1, örk 22. (Ind. Ref. 2. Nor. B. nr. 391) Commissions Papiirer

Læs mere

Upphaf lútherskrar siðbótar í helgihaldi á Íslandi

Upphaf lútherskrar siðbótar í helgihaldi á Íslandi Hugvísindasvið Upphaf lútherskrar siðbótar í helgihaldi á Íslandi Þýðing Gissurar Einarssonar á messu- og predikunarákvæðum kirkjuordinansíu Kristjáns 3. Ritgerð til MA-prófs í guðfræði Þorgeir Arason

Læs mere

Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/ BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir

Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/ BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/1940 - BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir Lagadeild Félagsvísindasvið Umsjónarkennari: Kjartan Ólafsson Júní 2013 Kristjana Pálsdóttir

Læs mere

Már Jónsson. Fjárreiður hjóna á 17. og 18. öld

Már Jónsson. Fjárreiður hjóna á 17. og 18. öld Már Jónsson Fjárreiður hjóna á 17. og 18. öld Í kaupmála hjónaefnanna Ketils Vermundssonar og Salvarar Jónsdóttur, sem gerður var í Efranesi í Borgarfirði árið 1655, birtist þaulhugsað kerfi sem byggði

Læs mere

1. mgr gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif

1. mgr gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif Meistararitgerð í lögfræði 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif Emil Sigurðsson Leiðbeinandi: Jón H.B. Snorrason Júní 2014 ÚTDRÁTTUR Inntak 1. mgr. 106. gr. hgl.

Læs mere

Handrukkun. og almenn hegningarlög nr. 19/ Meistararitgerð til Mag. jur. prófs í lögfræði - Pétur Bjarki Pétursson

Handrukkun. og almenn hegningarlög nr. 19/ Meistararitgerð til Mag. jur. prófs í lögfræði - Pétur Bjarki Pétursson Handrukkun og almenn hegningarlög nr. 19/1940 - Meistararitgerð til Mag. jur. prófs í lögfræði - Pétur Bjarki Pétursson Lagadeild Félagsvísindasvið Leiðbeinandi: Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari Október

Læs mere

E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks

Eirgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl. 13-16 Fyrir þig Il fróðleiks Ásmundur G. Vilhjálmsson SkaOalögfræðingur Inngangur Við e"irgjöf kröfu þarf skuldari ekki að

Læs mere

Flókatóftir á Barðaströnd Rannsóknir 2004 og 2012

Flókatóftir á Barðaströnd Rannsóknir 2004 og 2012 Höfundar Ljósmynd á forsíðu Horft yfir uppgraftarsvæðið. Öll réttindi áskilin ISBN 978-9935-9090-7-7 Minjastofnun Ísland Suðurgata 39 101 Reykjavík Iceland (354) 570 13 00 postur@minjastofnun.is www.minjastofnun.is

Læs mere

HEIMILDASKRÁ. Arvid Frihagen: Forvaltningsrett. Bind II: Saksbehandling. 5. útgáfa. Bergen 1992.

HEIMILDASKRÁ. Arvid Frihagen: Forvaltningsrett. Bind II: Saksbehandling. 5. útgáfa. Bergen 1992. HEIMILDASKRÁ Alþingistíðindi. Arvid Frihagen: Forvaltningsrett. Bind II: Saksbehandling. 5. útgáfa. Bergen 1992. Arvid Frihagen: Villfarelse og ugyldighet i forvaltningsretten. Osló 1966. Aslak Syse: Materielle

Læs mere

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0)

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) NAME 1.0 Handbók The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) Åse Brandt Charlotte Löfqvist John Nilsson Kersti Samuelsson Tuula Hurnasti Inga Jónsdóttir Anna-Liisa Salminen Terje Sund Susanne Iwarsson

Læs mere

Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið Michael Dal

Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið Michael Dal Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið 2006 Michael Dal Reykjavík júní 2006 Michael Dal Lektor við Kennaraháskóla Íslands Úttekt á samræmdu prófi i dönsku vorið 2006 Félag dönskukennara og Kennaraháskóli

Læs mere

Amtmaður og Íslands fátæklingar. Samfélagssýn í skjalasöfnum Landsnefndarinnar fyrri og síðari

Amtmaður og Íslands fátæklingar. Samfélagssýn í skjalasöfnum Landsnefndarinnar fyrri og síðari Amtmaður og Íslands fátæklingar. Samfélagssýn í skjalasöfnum Landsnefndarinnar fyrri 1770 1771 og síðari 1785 1787 Hrefna Róbertsdóttir Í Þjóðskjalasafni Íslands eru varðveitt skjalasöfn hinna svokölluðu

Læs mere

Fluer i hovedet. Sammenligning af danske og islandske idiomer. Björg Ólínudóttir 16 MÁLFRÍÐUR. Hvad forstår vi ved idiomer?

Fluer i hovedet. Sammenligning af danske og islandske idiomer. Björg Ólínudóttir 16 MÁLFRÍÐUR. Hvad forstår vi ved idiomer? 16 MÁLFRÍÐUR Björg Ólínudóttir Fluer i hovedet Sammenligning af danske og islandske idiomer Björg Ólínudóttir Björg Ólínudóttir er kennari í dönsku við Menntaskólann við Sund og Iðnskólann í Hafnarfirði.

Læs mere

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Fylgiseðill Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til

Læs mere

AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO. Kontrolafgift på 750 kr. grundet manglende zoner, da hun kørte for langt.

AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO. Kontrolafgift på 750 kr. grundet manglende zoner, da hun kørte for langt. AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO Journalnummer: 2016-0177 Klageren: XX Island Indklagede: Metroselskabet I/S v/metro Service A/S CVRnummer: 21 26 38 34 Klagen vedrører: Parternes krav: Kontrolafgift

Læs mere

Min krop. Se mit ansigt / Jeg hører med mine ører

Min krop. Se mit ansigt / Jeg hører med mine ører Min krop Í þemanu er fjallað um: Andlitið og skynfærin Líkamann Ýmsar daglegar athafnir tengdar líkamanum og skynfærunum. Ýmsa algenga kvilla eins og kvef og hálsbólgu. Markmið er að nemendur: Læri helstu

Læs mere

Kröfusamlag stefnanda og gagnkröfur stefnda samkvæmt 27. og 28. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála

Kröfusamlag stefnanda og gagnkröfur stefnda samkvæmt 27. og 28. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála BA-ritgerð í lögfræði Kröfusamlag stefnanda og gagnkröfur stefnda samkvæmt 27. og 28. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála Árni Páll Jónsson Ari Karlsson Júní 2014 BA-ritgerð í lögfræði Kröfusamlag

Læs mere

Sorg barna Hvert er hlutverk skólans?

Sorg barna Hvert er hlutverk skólans? Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Sorg barna Hvert er hlutverk skólans? Hanna Skúladóttir Kennaraháskóli Íslands Grunnskólabraut Apríl 2008 Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Sorg barna Hvert er hlutverk skólans?

Læs mere

Það eru leikhúsin sem ala upp públikum:

Það eru leikhúsin sem ala upp públikum: Hugvísindadeild Það eru leikhúsin sem ala upp públikum: Listræn stefna og verkefnaval leikhópsins Grímu 1961-1970 Ritgerð til M.A.-prófs Hlín Einarsdóttir Maí 2009 Háskóli Íslands Hugvísindadeild Íslensku

Læs mere

Menningarminjar í Bláskógabyggð

Menningarminjar í Bláskógabyggð Menningarminjar í Bláskógabyggð Svæðisskráning fornleifa Kristjana Vilhjálmsdóttir Fornleifastofnun Íslands FS-584-15221 Reykjavík 2015 2015 FORNLEIFASTOFNUN ÍSLANDS SES BÁRUGÖTU 3 101 REYKJAVÍK SÍMI:

Læs mere

Þrjár greinar um norðurljósaleiðangra til Íslands á árunum

Þrjár greinar um norðurljósaleiðangra til Íslands á árunum Þrjár greinar um norðurljósaleiðangra til Íslands á árunum 1883-1910 Sameiginlegur formáli Hér verður ekki farið mikið út í eðli norðurljósa almennt eða sögu rannsókna á þeim. Margar bækur eru til um þau

Læs mere

Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. leið til virkrar samfélagsþátttöku

Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. leið til virkrar samfélagsþátttöku Samband íslenskra sveitarfélaga Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga leið til virkrar samfélagsþátttöku Samband íslenskra sveitarfélaga Borgartúni 30 Pósthólf 8100 128 Reykjavík Hönnun og umbrot: Ingibjörg Hinriksdóttir

Læs mere

Rétturinn til ritunar firma hlutafélags

Rétturinn til ritunar firma hlutafélags Rétturinn til ritunar firma hlutafélags Halldóra Þorsteinsdóttir og Eyvindur G. Gunnarsson Lögfræðideild Ritstjóri: Helgi Áss Grétarsson Rannsóknir í félagsvísindum XVI. Erindi flutt á ráðstefnu í október

Læs mere

Við Kárahnjúka og önnur kennileiti

Við Kárahnjúka og önnur kennileiti Við Kárahnjúka og önnur kennileiti Bók þessi er gefin út í 250 eintökum. Matthías Johannessen Við Kárahnjúka og önnur kennileiti Helgispjall ÁRVAKUR HF. Við Kárahnjúka og önnur kennileiti - Helgispjall

Læs mere

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 SMART Spil og leg 1 Spil og leg 1 Tallene Tæl til hundrede Læsebog side 7 Opgavebog side 11 Tegund: Hermileikur Form: Hópleikur Markmið: Hlusta og einbeita sér. Að æfa tugina. Undirbúningur: 1. Nemendur

Læs mere

Skjalasafn amtmanns yfir landinu öllu

Skjalasafn amtmanns yfir landinu öllu Nanna Þorbjörg Lárusdóttir Skjalasafn amtmanns yfir landinu öllu 1688-1770 Embættið og uppbygging skjalasafnsins Rit Þjóðskjalasafns Íslands Rannsóknir á skjölum og skjalasöfnum NÝSKÖPUNARSJÓÐUR NÁMSMANNA

Læs mere

Samanburðarkönnun á skólakerfum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð

Samanburðarkönnun á skólakerfum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð Félagsvísindastofnun HÍ og Rannsóknarstofnun KHÍ Samanburðarkönnun á skólakerfum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð Unnið fyrir Menntamálaráðuneytið Skýrslugerð: Allyson Macdonald Andrea G. Dofradóttir

Læs mere

2. Dig, mig og vi to

2. Dig, mig og vi to 2. Dig, mig og vi to Í þemanu er fjallað um fjölskylduna vini samskipti Hugmyndir að kveikju Æskilegt er að umræður fari fram á dönsku. 1. Umræður um teiknimyndina á fremstu blaðsíðu í þemanu. 2. Orðablóm

Læs mere

Þegar myndirnar í Ljós myndasafni

Þegar myndirnar í Ljós myndasafni Við Akranes æpti hann: Stopp! Ágrip að upphafi flugsögu Akraness Magnús Þór Hafsteinsson. Þegar myndirnar í Ljós myndasafni Akraness eru skoð að ar á netinu finnur maður oft merkilegar myndir sem kitla

Læs mere

Skilyrði 248. gr. alm. hgl. og meginflokkar fjársvika

Skilyrði 248. gr. alm. hgl. og meginflokkar fjársvika Elisabeth Patriarca Skilyrði 248. gr. alm. hgl. og meginflokkar fjársvika -BA ritgerð til BA prófs í lögfræði - Umsjónarkennari: Ásta Stefánsdóttir, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur Lagadeild

Læs mere

ÞRÍTUGASTA LÖGGJAFARÞING - SAMBANDSLAGAÞINGIÐ

ÞRÍTUGASTA LÖGGJAFARÞING - SAMBANDSLAGAÞINGIÐ ÁLHKISTUIOI 1918 ÞRÍTUGASTA LÖGGJAFARÞING - SAMBANDSLAGAÞINGIÐ - A. PINGSKJOL MEÐ MÁLASKRÁ REYKJAVlK PRENTSMIÐJAN GUTENBERG 1918 Málaskrá i. F'rumvörp. Stjórnarfrumvarp. Frumvarp til d a n s k - í s 1

Læs mere

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir LV-2008/059 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið 2007 Maí 2008 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði

Læs mere

ÖLL BÖRN LÆRA en ekki jafnhratt

ÖLL BÖRN LÆRA en ekki jafnhratt ÖLL BÖRN LÆRA en ekki jafnhratt Anna Jørgensen, Zahle Seminarium, København Anna Kristjánsdóttir þýddi í apríl 2002 fyrir vefsetrið Stærðfræðin hrífur Greinin birtist fyrst í danska tímaritinu Matematik

Læs mere

Baráttan við MNDsjúkdóminn

Baráttan við MNDsjúkdóminn Helst errið sem kemur upp um okkur Christina Kjeldsen og Simon Björn eru þjónar Votta Jehóva á norðanverðum Vestfjörðum með aðsetur á Íslandi. Við fáum ekkert borgað fyrir að vera Vottar. En við vinnum

Læs mere

Efnisyfirlit. Um nemendabókina og kennsluleiðbeiningarnar Yfirlit Málverk segir sögu Var Ísland eitthvað einkennilegt?...

Efnisyfirlit. Um nemendabókina og kennsluleiðbeiningarnar Yfirlit Málverk segir sögu Var Ísland eitthvað einkennilegt?... Efnisyfirlit Um nemendabókina og kennsluleiðbeiningarnar..................... 2 Yfirlit........................................................ 7 Málverk segir sögu.............................................

Læs mere

Viðurlög í fíkniefnamálum

Viðurlög í fíkniefnamálum BA-ritgerð í lögfræði Viðurlög í fíkniefnamálum Með sérstaka áherslu á minniháttar fíkniefnabrot Silja Rán Arnarsdóttir Halldór Rósmundur Guðjónsson Ágúst 2016 BA-ritgerð í lögfræði Viðurlög í fíkniefnamálum

Læs mere

Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun

Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun Orri Vésteinsson Fornleifastofnun Íslands FS153-98071 Reykjavík 2001 Fornleifastofnun Íslands 2001. Mynd á forsíðu: Möðruvellir 1836, e. Auguste Mayer. 2 Efnisyfirlit

Læs mere

Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna

Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna Fríða Rós Valdimarsdóttir Jafnréttisstofa Borgum 600 Akureyri tel: 460 6200 fax: 460 6201 email: jafnretti@jafnretti.is www.jafnretti.is

Læs mere

Oft má satt kyrrt liggja

Oft má satt kyrrt liggja Oft má satt kyrrt liggja Vítaleysi sannra ærumeiðinga, einkum með tilliti til fjölmiðla - Ritgerð til meistaraprófs í lögfræði - Skúli Á. Sigurðsson Lagadeild Félagsvísindasvið Leiðbeinandi: Dr. Páll Sigurðsson

Læs mere

2. SETNINGARLEG EINKENNI ORÐFLOKKA OG ORÐARÖÐ

2. SETNINGARLEG EINKENNI ORÐFLOKKA OG ORÐARÖÐ 2. SETNINGARLEG EINKENNI ORÐFLOKKA OG ORÐARÖÐ 2.0 Um einkenni orðflokka Í öllum tungumálum skiptast orðin í flokka, orðflokka. Þegar um er að ræða beygingarmál eins og íslensku er gjarna sagt að einkenni

Læs mere