Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín

Størrelse: px
Starte visningen fra side:

Download "Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín"

Transkript

1 Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur Nikótín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum fylgiseðli eða eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða ráðgjöf. - Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4. - Leitið til læknis ef þú þarft enn að taka Nicotinell munnsogstöflur eftir 9 mánaða notkun. Í fylgiseðlinum eru eftirfarandi kaflar: 1. Upplýsingar um Nicotinell Mint og við hverju það er notað 2. Áður en byrjað er að nota Nicotinell Mint 3. Hvernig nota á Nicotinell Mint 4. Hugsanlegar aukaverkanir 5. Hvernig geyma á Nicotinell Mint 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar 1. Upplýsingar um Nicotinell Mint og við hverju það er notað Nicotinell Mint munnsogstöflur tilheyra flokki lyfja sem notaður er sem hjálpartæki þegar verið er að venja sig af reykingum. Nicotinell Mint munnsogstöflur eru fáanlegar í tveim styrkleikum (1 og 2 mg). Þessi fylgiseðill gildir fyrir Nicotinell Mint 2 mg munnsogstöflur. Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda nikótín sem er eitt af innihaldsefnum tóbaks. Þegar þú sýgur Nicotinell Mint munnsogtöflurnar losnar nikótínið hægt og frásogast í gegnum slímhúðina í munninum. Þetta lyf er notað til að hjálpa einstaklingum að hætta að reykja. Nikótínið í Nicotinell munnsogstöflum dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf, þegar þú hættir að reykja eða tímabundið meðan dregið er úr reykingum til að auðvelda það að hætta. Með því að draga úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf vinnur Nicotinell Mint gegn bakslagi hjá þeim sem eru reiðubúnir til þess að hætta reykingum. Ráðgjöf og stuðningur við sjúklinga auðvelda þeim venjulega að hætta að reykja. Nicotinell Mint er ætlað þeim sem reykja og eru 18 ára og eldri. 2. Áður en byrjað er að nota Nicotinell Mint Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtun en tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð. Ekki má nota Nicotinell Mint: - ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðru innihaldsefni Nicotinell Mint (talin upp í kafla 6) 1

2 - ef þú reykir ekki. Varnaðarorð og varúðarreglur Leitið ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en Nicotinell Mint er notað, ef þú: - ert með hjartasjúkdóma, t.d. hjartabilun, hjartastopp, hjartaöng, kransæðaherping (Prinzmetals hjartaöng) eða alvarlegar truflanir á hjartastarfsemi - hefur fengið blóðtappa eða heilablæðingu (heilablóðfall) - ert með of háan blóðþrýsting - ert með blóðrásarsjúkdóma - ert með sykursýki - ert með ofvirkan skjaldkirtil - ert með ofvirkar nýrnahettur (krómfíklaæxli) - ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi - ert með bólgu í vélinda, munni eða koki, magabólgu (magaverkir, ógleði, uppköst) eða magasár. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Þessvegna er mikilvægt að geyma alltaf Nicotinell Mint munnsogstöflur þar sem börn hvorki ná til né sjá. Börn og unglingar (yngri en 18 ára) Nicotinell er ekki ráðlagt börnum og unglingum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Notkun annarra lyfja samhliða Nicotinell Mint Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að verða notuð. Ef þú hættir að reykja eða ef þú notar önnur lyf, getur verið að læknirinn þinn aðlagi skammtana þína. Engar upplýsingar liggja fyrir um verkun Nicotinell Mint munnsogstaflna þegar þær eru notaðar samhliða öðrum lyfjum. Auk nikótínsins geta önnur innihaldsefni í sígarettum haft áhrif á verkun lyfja. Þegar reykingum er hætt getur það haft áhrif á eftirfarandi lyf: Hafðu samband við lækni ef þú tekur lyf eins og: - Teófýllín (lyf notað til að meðhöndla astma). - Takrín (lyf notað til að meðhöndla Alzheimers sjúkdóm). - Olanzapín og clozapín (lyf notuð til að meðhöndla geðklofa). - Insúlín (lyf notað til að meðhöndla sykursýki). Skömmtum gæti þurft að breyta. Notkun Nicotinell Mint með mat, drykk eða áfengi Þú skalt forðast að drekka kaffi, súra drykki eða svaladrykki allt að 15 mínútum fyrir notkun, þar sem þessir drykkir geta minnkað upptöku nikótíns úr munni. Meðganga og brjóstagjöf Við meðgöngu, brjóstagjöf, grun um þungun eða ef þungun er fyrirhuguð skal leita ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en lyfið er notað. Meðganga Þú mátt einungis nota Nicotinell Mint munnsogstöflur í samráði við lækninn eða lækni sem hefur sérþekkingu í að aðstoða fólk við að hætta að reykja. Ef þú ert barnshafandi áttu alltaf að hætta að reykja þar sem reykingar hafa áhrif á vöxt fóstursins. Reykingar geta einnig leitt til fæðingar fyrir tímann og að barnið fæðist andvana. Þú skalt hætta reykingum án þess að nota uppbótarmeðferð með nikótínlyfjum. Ef þú getur ekki hætt reykingum án þess að nota uppbótarmeðferð með nikótínlyfjum er minni áhætta fyrir fóstrið af notkun Nicotinell en ef reykingum er haldið áfram. Nikótín er skaðlegt fyrir barnið, sama í hvaða formi það er. Brjóstagjöf Ef þú ert með barn á brjósti skaltu hvorki reykja eða nota Nicotinell, þar sem nikótín berst í brjóstamjólk. Ef þú getur ekki hætt að reykja skaltu nota Nicotinell Mint í samráði við lækninn. 2

3 Akstur og notkun véla Nicotinell Mint hafa ekki áhrif á hæfni til aksturs eða umferðaröryggi ef það er notað í ráðlögðum skömmtum. Þú skalt hafa í huga að reykbindindi getur valdið atferlisbreytingum. Hver og einn verður að leggja mat á getu sína til aksturs og starfa sem krefjast óskertrar árvekni. Eitt af því sem getur haft áhrif á slíkt er lyf, vegna verkunar sinnar eða aukaverkana. Lýsing á verkun og aukaverkunum er í öðrum köflum fylgiseðilsins. Lesið því allan fylgiseðilinn. Ef þörf er á skal ræða þetta við lækni eða lyfjafræðing. Nicotinell Mint inniheldur gervisætuefni eins og aspartam (E 951) og maltítól (E 965). Hver Nicotinell Mint 2 mg munnsogstafla inniheldur 5 mg af aspartami, sem breytist í fenýlalanín. Fenýlalanín getur verið skaðlegt sjúklingum með fenýlketónmigu (phenylketonuria). Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda maltítól (getur innihaldið frúktósa). - Ef óþol fyrir sykrum hefur verið staðfest skal hafa samband við lækni áður en lyfið er tekið inn. - Maltítól getur haft væg hægðalosandi áhrif. Hitaeiningafjöldi er 2,3 kkal/g maltítóls. Sykursjúkir mega nota Nicotinell Mint munnsogstöflur. Hver Nicotinell Mint 2 mg munnsogstafla inniheldur 9,8 mg af natríum. Þetta þarf að hafa í huga hjá sjúklingum sem eru á saltsnauðu fæði. 3. Hvernig nota á Nicotinell Mint Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum fylgiseðli. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Nicotinell Mint munnsogstöflur fást í tveimur styrkleikum: 1 mg og 2 mg. Ráðlagður sólarhringsskammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Ráðlagður sólarhringsskammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota 2 mg munnsogstöflur: - ef þú hefur mikla eða mjög mikla nikótínþörf - ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með því að nota 1 mg munnsogstöflurnar - ef fráhvarfseinkennin auka hættuna á að þú fáir þér að reykja. Annars er ráðlegt að nota Nicotinell 1 mg munnsogstöflur. Fullorðnir eldri en 18 ára Veldu ákjósanlegustu skammtastærðina fyrir þig út frá eftirfarandi töflu: Lítil eða miðlungi mikil ávanabinding Miðlungi mikil eða mikil ávanabinding Mikil eða mjög mikil ávanabinding Nota á lágskammta nikótínlyf Nota á háskammta nikótínlyf Færri en 20 sígarettur á dag Frá 20 til 30 sígarettur á dag Fleiri en 30 sígarettur á dag Æskilegt er að nota lægri styrkleikann Nota má lægri (1 mg munnsogstafla) eða hærri (2 mg munnsogstafla) 3 Æskilegt er að nota hærri styrkleikann

4 (1 mg munnsogstafla) styrkleikann eftir einkennum sjúklinga og vali 4 (2 mg munnsogstafla) Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleikinn er notaður (2 mg munnsogstafla) skal íhuga að skipta yfir í lægri styrkleikann (1 mg munnsogstafla). Notkunarleiðbeiningar: Ekki má gleypa munnsogstöflurnar 1. Munnsogstaflan er sogin þar til sterkt bragð finnst. 2. Síðan er taflan látin liggja milli kinnar og tannholds. 3. Þegar bragðið minnkar á að sjúga munnsogstöfluna aftur. 4. Endurtakið þar til munnsogstaflan er fullkomlega uppleyst (um 30 mínútur). Venjulegur skammtur Fullorðnir eldri en 18 ára Notaðu eina munnsogstöflu þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Almennt skal taka 1 munnsogstöflu á 1-2 klst. fresti. Í flestum tilfellum eiga 8-12 munnsogtöflur á sólarhring að nægja. Ef þú finnur enn fyrir reykingaþörf geturðu tekið auka munnsogstöflu. Dagleg neysla af Nicotinell Mint 2 mg munnsogstöflum má ekki fara yfir 15 töflur á sólarhring. (á bæði við um þegar reykingum er hætt og þegar dregið er úr reykingum). Nicotinell munnsogstöflur eru fyrst og fremst ætlaðar til að hætta reykingum. Þegar reykingum er hætt: Þú átt að hætta að reykja um leið og þú byrjar að nota Nicotinell Mint og átt ekki að reykja meðan á meðferð stendur. Það mun auka líkurnar á að þér takist að hætta reykingum. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin. Í flestum tilfellum skal meðferðin standa í a.m.k. þrjá mánuði og síðan má draga úr fjölda munnsogstaflna smám saman. Þú vilt mögulega skipta út Nicotinell 2 mg munnsogstöflum með Nicotinell 1 mg munnsogstöflum á meðan dregið er úr notkun. Þegar notkunin er kominn niður í 1-2 munnsogstöflur á sólarhring á að hætta meðferðinni. Ekki er mælt með notkun lengur en í sex mánuði. Sumt reykingafólk gæti þó þurft að nota munnsogstöflurnar lengur til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar ef þú getur ekki hætt að nota munnsogstöflurnar eftir níu mánuði. Ráðgjöf og stuðningur auðveldar fólki yfirleitt að hætta að reykja. Þegar dregið er úr reykingum: Nicotinell Mint munnsogstöflur á að nota á tímabilum milli reykinga til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum eins mikið og mögulegt er. Skipta á út sígarettum smám saman fyrir Nicotinell munnsogstöflur. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígarettna á sólarhring um minnst helming eftir 6 vikur skal leita ráðgjafar hjá lækni eða í apóteki. Þú skalt hætta að reykja um leið og þú ert reiðubúinn til þess en eigi síðar en 4 mánuðum eftir að meðferð hefst. Næst skal draga úr fjölda munnsogstaflna, t.d. með því að fækka um 1 munnsogstöflu hvern dag. Ef ekki tekst að hætta reykingum eftir 6 mánuði, þrátt fyrir heiðarlega tilraun, skal leita ráðgjafar hjá lækni eða í apóteki. Regluleg notkun Nicotinell Mint munnsogstaflna er ekki ráðlögð. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Ef stærri skammtur en mælt er fyrir um er notaður Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími ). Hafðu pakkninguna meðferðis. Ef þú sýgur of margar munnsogstöflur getur þú fengið sömu einkenni og af of miklum reykingum. Einkenni ofskömmtunar eru þróttleysi, svitamyndun, aukin munnvatnsmyndun, sviðatilfinning í koki,

5 ógleði, uppköst, niðurgangur, kviðverkir, truflanir á heyrn og sjón, höfuðverkur, hjartsláttur, andnauð, máttleysi, blóðrásarbilun. Ef grunur er um eitrun hjá barni skal strax hafa samband við lækni. Nikótínskammtar sem fullorðið reykingafólk þolir getur valdið alvarlegri eitrun hjá börnum og jafnvel dauða. Notið lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef þú ert ekki viss um hvernig á að nota lyfið leitaðu þá upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. 4. Hugsanlegar aukaverkanir Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum. Aukaverkanir sem þú gætir fundið fyrir fyrstu dagana eru sundl, höfuðverkur og svefntruflanir. Þessi einkenni kunna að vera fráhvarfseinkenni í tengslum við það að reykingum er hætt og vegna of lítils nikótíns. Nikótín úr munnsogstöflum getur í upphafi meðferðar valdið vægri ertingu í hálsi, aukið munnvatnsmyndun, hiksta og brjóstsviða (ef þú þjáist af meltingartruflunum). Þessi einkenni má yfirleitt koma í veg fyrir með því að sjúga munnsogstöflurnar hægar. Alvarlegar aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar aukaverkanir (koma fyrir hjá 1 til 10 af hverjum meðhöndluðum): Óreglulegur hjartsláttur, ofnæmisviðbrögð. Þessi viðbrögð geta í örfáum tilfellum verið alvarleg eins og þroti í húð, þroti í andliti og í munni, lágur blóðþrýstingur og öndunarerfiðleikar. Hafðu strax samband við lækni eða bráðamóttöku. Hringdu e.t.v í 112. Aukaverkanir sem ekki eru alvarlegar: Algengar aukaverkanir (koma fyrir hjá 1 til 10 af hverjum 100 meðhöndluðum): Sundl, höfuðverkur, munnþurrkur, hiksti, kviðverkir eins og t.d. ógleði, loft í þörmum, brjóstsviði, aukin munnvatnsmyndun, smávegis erting í munni og hálsi getur einnig komið fram. Sjaldgæfar aukaverkanir (koma fyrir hjá 1 til 10 af hverjum meðhöndluðum): Hjartsláttarónot. Sár í slímhúð í munni getur komið fram eftir að reykingum er hætt en tengjast ekki endilega meðferðinni. Tilkynning aukaverkana Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Einnig er hægt að tilkynna aukaverkanir beint samkvæmt fyrirkomulagi sem gildir í hverju landi fyrir sig, sjá Appendix V. Með því að tilkynna aukaverkanir er hægt að hjálpa til við að auka upplýsingar um öryggi lyfsins. 5. Hvernig geyma á Nicotinell Mint - Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. - Ekki skal nota lyfið eftir fyrningardagsetningu sem tilgreind er á umbúðunum á eftir EXP. Fyrningardagsetning er síðasti dagur mánaðarins sem þar kemur fram. - Geymið ekki við hærri hita en 25 C. Geymið í upprunalegum umbúðum. Ekki má skola lyfjum niður í frárennslislagnir eða fleygja þeim með heimilissorpi. Leitið ráða í apóteki um hvernig heppilegast er að farga lyfjum sem hætt er að nota. Markmiðið er að vernda umhverfið. 5

6 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar Hvað innihalda Nicotinell Mint - Virka innihaldsefnið er nikótín. Ein Nicotinell munnsogstafla inniheldur 2 mg af nikótíni (sem jafngildir 6,144 mg af nikótínbítartrat-tvíhýdrati). - Önnur innihaldsefni eru maltítól (E 965), vatnsfrítt natríumkarbónat, natríum-hýdrógenkarbónat, pólýakrýlat-dreifa 30%, xantangúmmí, vatnsfrí kísilkvoða, levómentól, piparmyntuolía, aspartam (E 951), magnesíumsterat. Lýsing á útliti Nicotinell Mint og pakkningastærðir Útlit: Nicotinell Mint 2 mg munnsogstöflur eru hvítar, kringlóttar, kúptar munnsogstöflur með myntubragði. Pakkningastærðir: Þynnuspjöldin fást í eftirfarandi pakkningastærðum: 12, 36, 72, 96, 144 og 204 munnsogstöflur. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar. Markaðsleyfishafi og framleiðandi Markaðsleyfishafi GlaxoSmithKline Consumer Healthcare A/S Nykær 68 DK-2605 Brøndby Danmörk Framleiðandi GlaxoSmithKline Consumer Healthcare A/S Nykær 68 DK-2605 Brøndby Danmörk eða Novartis Consumer Health GmbH Zielstrasse Munchen Þýskaland eða Sanico n.v. Industriezone 4, Veedijk 59 B-2300 Turnhout Belgía Umboð á Íslandi Artasan ehf Suðurhrauni 12a 210 Garðabæ. Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Fylgiseðill Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur. cíprófloxacín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur. cíprófloxacín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur cíprófloxacín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að taka lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. -

Læs mere

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser Spil og leg 14 Læsebog side 40 41 Opgavebog side 68 Tegund: Samtalsæfing Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða sem snýr að tilfinningum, persónueinkennum og útliti. Undirbúningur: Prenta út opgaveblad

Læs mere

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð B. FYLGISEÐILL 21 FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins

Læs mere

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými. Notkun FHF gólfhitagrindin er notuð til að stjórna vatnsrennsli í gólfhitakerfum. Hvert rör í kerfinu er tengt gólfhitagrindinni sem gerir kleift að stjórna vatnsrennsli í hverri rás og hita í hverju rými

Læs mere

Kökur, Flekar,Lengjur

Kökur, Flekar,Lengjur Kökur, Flekar,Lengjur Qimiq vörurnar eru unnar úr úrvals Austurísku hráefni. Q003301 Qimiq Profi Whip 1 kg (12) Q000114 Qimiq Base 1 kg (12) Q000115 Qimiq Sauce base 1 kg (12) Qimiq Whip Notið QimiQ Whip

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Læs mere

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Dyrebingo. Önnur útfærsla Opgaveblad 2A Opgaveblad 2C Dyr i Danmarks natur Læsebog side 10 11 Opgavebog side 19 Tegund: Bingó með myndaspjöldum Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða tengdan dýrum. Undirbúningur: Prenta út

Læs mere

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir: . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014, 360/2016 og 666/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Frágangur handlista Í grein í byggingarreglugerð segir: Handlistar

Læs mere

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju: Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: tengdan lífsstíl um neyslu ungs fólks á Norðurlöndum um ofnotkun á hreinlætisvörum og orku Hugmyndir að kveikju: Umræður um neyslu ungs fólks í dag. Fjallað um myndina

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Fasturtec 1,5 mg/ml stofn og leysir fyrir innrennslisþykkni, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Fasturtec er raðbrigða úrat-oxídasa ensím framleitt af erfðabreyttum

Læs mere

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 START Spil og leg 1 Spil og leg 1 Hvem er jeg? Hvad hedder du? Læsebog side 3 Opgavebog side Tegund: Samtals- og hreyfileikur Form: Hópleikur Markmið: Að læra að kynna sig. Undirbúningur: Finna bolta eða

Læs mere

komudagur 21-1- 2 0 f2

komudagur 21-1- 2 0 f2 7W O s s u e i k (. íé T ) Erindim Þ M /lo O S komudagur 21-1- 2 0 f2 MINNISBLAÐ TIL EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTANEFNDAR -tilla g a að nýrri 9. mgr. 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari

Læs mere

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO MÁLNOTKUNARÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Læs mere

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 SMART Spil og leg 1 Spil og leg 1 Tallene Tæl til hundrede Læsebog side 7 Opgavebog side 11 Tegund: Hermileikur Form: Hópleikur Markmið: Hlusta og einbeita sér. Að æfa tugina. Undirbúningur: 1. Nemendur

Læs mere

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Efnisyfirlit Messing, nýsilfur, kopar, ál...3 Silfur...3 Blý...3 Tinklumpar...3 Tinþráður...4 Suðuteinar...4 Rör...4 Silfurslaglóð...4 Flúx...5 Teinar...5 Slípimassi,

Læs mere

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO SAMTALSÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál]

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um félagslegt öryggi. (Lagt

Læs mere

Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja

Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja 1 Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja Samantekt Kostnaður TR vegna þunglyndislyfja nam 691 millj.kr. árið 2007. Kostnaður lækkaði um 70 millj. kr. frá fyrra

Læs mere

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Opgavebog Jeg hedder Ida Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Höfundur: Katrín Hallgrímsdóttir 2 Opgave oversigt OPGAVE OVERSIGT 3 OPGAVE DEL 1 5 OPGAVE 1A AT MØDE NYE PERSONER 5 OPGAVE 1B - HVAD ER MINE

Læs mere

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0)

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) NAME 1.0 Handbók The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) Åse Brandt Charlotte Löfqvist John Nilsson Kersti Samuelsson Tuula Hurnasti Inga Jónsdóttir Anna-Liisa Salminen Terje Sund Susanne Iwarsson

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Gangar og anddyri Í grein í byggingarreglugerð segir: Meginreglur: Eftirfarandi

Læs mere

Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík.

Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík. Lyfjagreiðslunefnd FUNDARGERÐ 283. fundar Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík. Fundinn sátu: Nefndarmenn: Guðrún I. Gylfadóttir, formaður Jóhann M. Lenharðsson

Læs mere

Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum

Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum Sigrún Helga Kristjánsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir Lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræði Leiðsögukennari:

Læs mere

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum BA ritgerð Félagsráðgjöf Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum Hrafnhildur Björg Gunnlaugsdóttir Sigurveig H. Sigurðardóttir Sigrún Ingvarsdóttir Janúar 2016 Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 6.4.2 6.4.2. gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Inngangsdyr / útidyr og svala /garðdyr Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Í grein 6.4.2 í byggingarreglugerð

Læs mere

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi Endurbætt útgáfa af skýrslu nr. LV-2015-089 Skýrsla nr. LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur.

Læs mere

Námsstíll. Kynning á námsstílslíkani Dunn og Dunn fyrir nemendur, foreldra, kennara og alla þá sem aðstoða börn við nám.

Námsstíll. Kynning á námsstílslíkani Dunn og Dunn fyrir nemendur, foreldra, kennara og alla þá sem aðstoða börn við nám. Námsstíll Læra að læra Læra með stíl Kynning á námsstílslíkani Dunn og Dunn fyrir nemendur, foreldra, kennara og alla þá sem aðstoða börn við nám. Öll getum við lært séu okkur búin skilyrði til þess en

Læs mere

Aðferðir til að taka á einelti og koma í veg fyrir að það þrífist á vinnustað

Aðferðir til að taka á einelti og koma í veg fyrir að það þrífist á vinnustað Aðferðir til að taka á einelti og koma í veg fyrir að það þrífist á vinnustað Efni Einelti 3 Yfirlit 4 Hvað er einelti? 4 Aðferðir 6 Hvernig má greina einelti? 6 Hvernig veit yfirmaður að einelti sé til

Læs mere

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála ML í lögfræði Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála Hvernig er fjárhæð miskabóta vegna þvingunarráðstafana ákveðin hjá dómstólum? Nafn nemanda: Hanna Guðmundsdóttir

Læs mere

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um afhendingarskylda aðila sem falla undir 1. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Læs mere

- kennaraleiðbeiningar

- kennaraleiðbeiningar - kennaraleiðbeiningar María Una Óladóttir Kennsluleiðbeiningar með kennsluefninu ord til at starte med! Verkefni 1 - Að nemendur læri að kynna sig og fjölskyldumeðlimi. Nemendur teikna í rammann eða koma

Læs mere

Siemens Børnerådg. ISLAND /5/03 10:28 PM Side 1. Heyrir. þú í. Leiðbeiningar fyrir foreldra heyrnarskertra barna. ...vinum þínum?

Siemens Børnerådg. ISLAND /5/03 10:28 PM Side 1. Heyrir. þú í. Leiðbeiningar fyrir foreldra heyrnarskertra barna. ...vinum þínum? Siemens Børnerådg. ISLAND 91558 11/5/03 10:28 PM Side 1 Heyrir þú í Leiðbeiningar fyrir foreldra heyrnarskertra barna....vinum þínum? www.rexton.dk Siemens Børnerådg. ISLAND 91558 11/5/03 10:29 PM Side

Læs mere

forbindelse med både ansættelse, ændring i ansættelsesforhold og ved afslutning af ansættelsen.

forbindelse med både ansættelse, ændring i ansættelsesforhold og ved afslutning af ansættelsen. Retningslinie Uppgávu- og ábyrgdarbýtið ímillum og eindir/leiðarar á LS, tá ið byrjar í starvi, broytir starv innanhýsis ella fer úr starvi / Opgave og ansvarsfordeling mellem medarbejdere og afdelinger

Læs mere

EKKO AUKAÆFINGAR NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO AUKAÆFINGAR NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO AUKAÆFINGAR NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 Efnisyfirlit SKOLELIV Læsebogen side 13: Tænk bare Elefantisk.. 3 Læsebogen side15: Motion er mange ting... 4 Læsebogen side 17: Tænk bare... 5 Læsebogen side 24

Læs mere

Sjálfsprottinn söngur barna

Sjálfsprottinn söngur barna Kennaraháskóli Íslands, Reykjavík Grunndeild Leikskólabraut fjarnám 2007 Sjálfsprottinn söngur barna Elisabeth Hauge Lokaverkefni til 90 eininga B.Ed.-prófs Leiðsögukennari: Sigríður Pálmadóttir Efnisyfirlit

Læs mere

Kennsluleiðbeiningar A B

Kennsluleiðbeiningar A B Kennsluleiðbeiningar A B TAK KENNSLULEIÐBEININGAR A B 4 Efnisyfirlit Til kennara Almennt um námsefnið... 5 Nemendabók... 5 Verkefnabækur... 6 OPGAVEBOG A 1 Hjemmet Tak tak tak... 8 Boligen... 9 Hvordan

Læs mere

ÍSLANDS. 1. tölublað Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt

ÍSLANDS. 1. tölublað Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt gigtingigtarfélag ÍSLANDS 1. tölublað 2012 Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt Göngum frá verknum HVÍTA HÚSIÐ / SÍA - Actavis 111171 Íbúfen Bólgueyðandi

Læs mere

FYR LØS. TAK Skapandi verkefni B 8570 Menntamálastofnun 2018

FYR LØS. TAK Skapandi verkefni B 8570 Menntamálastofnun 2018 B FYR LØS TAK FYR LØS B Efnisyfirlit 5 Fra barn til voksen Fyr løs 1 Mobilløb... 5 Opgaveblad 1 Fyr løs 2 Den øde ø... 6 Opgaveblad 2 6 Vi er alle forskellige Fyr løs 3 Hvilken person mangler der på billedet?...

Læs mere

3. Hjemmet. Hjemmet. Í þemanu er m.a. fjallað um. Hugmyndir að kveikju. Til minnis

3. Hjemmet. Hjemmet. Í þemanu er m.a. fjallað um. Hugmyndir að kveikju. Til minnis 3. Hjemmet Í þemanu er m.a. fjallað um Helstu tegundir húsnæðis. Húsgögn, húsbúnað og annað sem tilheyrir heimili. Framtíðarheimilið. Hugmyndir að kveikju Æskilegt er að umræður fari fram á dönsku. Ræða

Læs mere