Skýrsla um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar júlí 2012 október 2015

Relaterede dokumenter
Skýrsla um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar júní 2011 júní 2012

Skýrsla um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar júní 2010 maí 2011

Skýrsla um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar júní 2009 júní 2010

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003.

Tveir samherjar Asger Jorn og Sigurjón Ólafsson

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

BORGARHOLTSSKÓLI bókmennt handmennt - siðmennt

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

esurveyspro.com - Survey Detail Report

komudagur f2

& shirtingur. Sýning í tilefni aldarafmælis bókbandsstofu Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns 16. október 31. desember 2008

Kökur, Flekar,Lengjur

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur

Samþykkt fyrir. Vestnorrænan höfuðborgasjóð Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar. Heiti og hlutverk. 1. gr.

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g

KONUR SENDIÐ OSS ÚRVAL... Framlag kvenna til iðnsýninganna í Reykjavík 1883 og 1911

Kjarasamningar í Danmörku

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands.

05 / MÁLTAKA ANNARS TUNGUMÁLS 14 / FJÓRAR AÐFERÐIR SEM NOTA MÁ TIL AÐ SAFNA GÖGNUM 16 / LISTAR - SKRÁNINGARBLAÐ - EINSTAKLINGSÁÆTLUN

3. Hjemmet. Hjemmet. Í þemanu er m.a. fjallað um. Hugmyndir að kveikju. Til minnis

Kennslulei⅟beiningar. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla.

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi

Þegar Lærði skólinn í Reykjavík varð að máladeild

Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu

Jökulsárlón og hvað svo?

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

Þegar myndirnar í Ljós myndasafni

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Nýtt. 11 umsóknir. Nýir stjórnendur í GSS. Kaffi, konfekt og klarinettur. Hvorfor leger lærere ikke gemmeleg? Fordi ingen ville lede efter dem.

Inntak sameiginlegrar forsjár samkvæmt 28. gr. a. barnalaga nr. 76/2003 Ákvörðunartaka um málefni barns

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

Jón Ólafsson úr Grunnavík

1. tölublað, 10. árgangur. Apríl 2014 FRÍMÚRARINN. Fréttablað Frímúrarareglunnar á Íslandi S U B S PE CIE Æ TE RN ITA TIS

Klart språk i Norden. Islandsk klarsprog som forskningsområde. Kilde: Klart språk i Norden, 2014, s

Félag dönskukennara Aðalfundur 15. febrúar Brynhildur Anna Ragnarsdóttir

E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks

FJÖLRIT GÖMLU ÍSLENSKU STEINASÖFNIN Í GEOLOGISK MUSEUM Í KAUPMANNAHÖFN NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUNAR. Sveinn P. Jakobsson

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög

Alþingi Erindi nr. Þ 142/171 komudagur

FYR LØS. TAK Skapandi verkefni B 8570 Menntamálastofnun 2018

Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar

Kennarasamband Íslands

ÞRÓUN RÉTTARREGLNA UM SAMEIGINLEGA FORSJÁ

ÖLL BÖRN LÆRA en ekki jafnhratt

- kennaraleiðbeiningar

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0)

SMIL KENNSLU- LEIÐBEININGAR

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar

Jöfn umgengni í framkvæmd

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Hagræn hugsun á átjándu öld

Kennsluleiðbeiningar A B

4 helgi eða hafnir annara ríkja. Af þessu ferðalagi skipsins leiða eðlilega fjöldamargar sjerreglur. - Til þess að hægt sje að skilja og skýra þessar

Tengsl kaupmanna Almenna verslunarfélagsins og Íslendinga

Kennsluleiðbeiningar

Sådan B. Annelise Larsen Kaasgaard Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir

4. Konfirmation. Konfirmation. Í þemanu er fjallað um. Hugmyndir að Kveikju. Til minnis

Áður en farið er að vinna með kaflann er mælt með að tölurnar verði rifjaðar upp þar sem tölur koma við sögu í umfjöllun um t.d. verð og stærðir.

Stuðningur við dönskukennslu Danskt íslenskt samstarfsverkefni

Program Nordiske Politimesterskaber I håndbold

Saga ferðaþjónustu á Íslandi. Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR

SMIL KENNSLU- LEIÐBEININGAR. SMIL Kennsluleiðbeiningar B 9050 Námsgagnastofnun 2014

2. Dig, mig og vi to

Það eru leikhúsin sem ala upp públikum:

Már Jónsson. Fjárreiður hjóna á 17. og 18. öld

Þrjár greinar um norðurljósaleiðangra til Íslands á árunum

ÁGRIP 1 INNGANGUR 3 1 UNGSKÁLDIÐ 4 2. KAUPMANNAHÖFN FLEIRI ÍSLENSKAR ÁSTIR SÍÐUSTU ÁRIN 19 LOKAORÐ 25 HEIMILDASKRÁ 26

Leiguverð hæst í Reykjavík en íbúðaverð lægst Samanburður milli húsnæðismarkaða á Norðurlöndunum

Endurbætt salarkynni Regluheimilisins

Hugvísindasvið. Lykkjur. Greinagerð um menningarviðburðinn Lykkjur: norræn prjónalist í Norræna húsinu. Ritgerð til M.A.-prófs. Ilmur Dögg Gísladóttir

Kennsluleiðbeiningar

Snak med din makker Nauðsynlegt er að nemendur læri litina utan að og noti síðan samtalsæfinguna til að festa þá i minni.

Dómaraheimild. Rök með og á móti. Heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Lúðvík Börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti

EKKO. Lærervejledninger NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur III. Sjávarhiti

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk

A FYR LØS TAK Skapandi verkefni A 8529 Menntamálastofnun 2018

Fundargerð 1. fundur hjá NVF miljö nefnd á Íslandi Fundarmenn Dagskrá: 1. Stutt kynning á NVF

Flókatóftir á Barðaströnd Rannsóknir 2004 og 2012

Informationsteknologien og små sprogsamfund

Áfangaskýrsla til dómsmálaráðherra

Efnisyfirlit. Um nemendabókina og kennsluleiðbeiningarnar Yfirlit Málverk segir sögu Var Ísland eitthvað einkennilegt?...

Samanburðarkönnun á skólakerfum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð

SKÍMA. MÁLGAGN MÓÐURMÁLSKENNARA 1. tölublað 35. árgangur Prentvæn endurgerð á tölublaði sem kom upphaflega út sem rafrit

glimrende lærervejledninger

Eyrarbakki. Sjá götukort

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja

Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna

Goðsagnastríðið. Ritdeila um ágæti norrænnar goðafræði fyrir danska myndlist í upphafi nítjándu aldar. Þrándur Þórarinsson

Nd Frumvarp til laga [127. mál]

Skjalasafn amtmanns yfir landinu öllu

Transkript:

Birgitta Spur Skýrsla um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar júlí 2012 október 2015 Þann 21. júní 2012 var staðfest með undirritun gjafabréfs og samkomulags, gjöf sjálfseignarstofnunarinnar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á listaverkum Sigurjóns Ólafssonar og öðrum eignum safnsins til Listasafns Íslands. Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og fulltrúar ráðuneytis hennar, ásamt forstöðumanni Listasafns Íslands, rituðu undir sem móttakendur gjafar sem Birgitta Spur og aðrir í stjórn Listasafns Sigurjóns afhentu. Með þessum gjörningi varð Listasafn Sigurjóns Ólafssonar (LSÓ) formlega gert að sérstöku safni innan Listasafns Íslands (LÍ). Síðasti aðalfundur hins gamla LSÓ var haldinn ári síðar, 24. júní 2013 og var þá fulltrúaráð lagt niður. Birgitta Spur, sem stofnaði safnið og hefur stýrt því frá upphafi, var ráðin til sérstakra verkefna við safnið í samningi LÍ og hennar. Þar skuldbindur hún sig til að sinna eftirfarandi verkefnum: Ráðgjöf vegna verkefna er tengjast listaverkum eftir Sigurjón Ólafsson, m.a. undirbúningi og skipulagningu sýningarhalds, fræðslustarfs, útgáfu og kynningu á verkum listamannsins á vegum safnsins, innan þess sem utan. Safnið getur notið þjónustu ráðgjafa [BSp] vegna verkefna sem tengjast starfsemi í og við húsnæði safnsins á Laugarnesi, þar sem áfram verði miðstöð fjölþættrar rannsókna-, tónlistar- og fræðslustarfsemi, í anda þeirra verkefna sem þar hefur verið rekin. Safnið geti notið þjónustu ráðgjafa vegna eftirlits með húsnæði safnsins á Laugarnesi. Geirfinnur Jónsson, sem hefur verið í fullu starfi við safnið síðan um aldamót, hélt stöðu sinni með breyttri starfslýsingu. Sýningar í safninu Áfangar 10.02.12 14.04.13 Lykilverk Sigurjóns frá rúmlega 50 ára tímabili um miðbik liðinnar aldar. Á sýningunni voru valin verk sem annað hvort voru einkennandi fyrir ákveðin tímabil, eða sem mörkuðu upphaf að nýjum viðhorfum og straumum í list Sigurjóns. Átta síðna fjölritað hefti fylgdi sýningunni, á ensku og íslensku, þar sem Birgitta Spur lýsir hverju verki. Sýningin var opnuð á Safnanótt í Reykjavík. Úr djúpunum 25.04.13 01.12.13 Valdar höggmyndir eftir Sigurjón og málverk úr safneign Listasafns Íslands eftir nokkra samtímamenn hans, Þorvald Skúlason, Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Kristján Davíðsson og Guðmundu Andrésdóttur. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa verið við nám erlendis á mótunar- og þroskaárum sínum og tekið þátt í sýningum þarlendra framúrstefnumanna. Eftir að þau komu heim, voru þau í fararbroddi þeirrar formbyltingar, sem kennd er við módernismann og markar einstakt blómaskeið í íslenskri myndlistarsögu. Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 1

Börn að leik 7.02.14 4.05.14 Valin verk eftir Sigurjón sem fjallað er um í fræðsluverkefnum fyrir grunnskóla og eru aðgengileg á heimasíðu LSÓ. Verkefnin voru unnin af ÖlmuDís Kristinsdóttur og Birgittu Spur. Heiti sýningarinnar vísar bæði í veggmynd Sigurjóns frá árinu 1938 og einnig önnur verk þar sem hann leyfði barnslegum léttleika að ráða ferðinni og gætu vakið áhuga barna og unglinga á myndlist Sigurjóns. Leiðsagnir voru um sýninguna sunnudagana 16. febrúar, 2. mars, 6. apríl og 4. maí. Spor í sandi 23. 05.14 haust 2014 Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar haldin í Listasafni Íslands (til 26. október) og í Listasafni Sigurjóns á Laugarnesi (til 30. nóvember). Í Listasafni Íslands voru sýndar 23 andlitsmyndir og 17 valin verk frá tímabilinu 1936 1982 ásamt fimm verkum úr dönskum söfnum eftir danska félaga Sigurjóns, þau Asger Jorn, Ejler Bille, Erik Thommesen, Robert Jacobsen og Sonju Ferlov. Einnig voru sýndar grænlenskar grímur úr einkasafni í Danmörku. Í Listasafni Sigurjóns á Laugarnesi voru sýnd 15 verk Sigurjóns frá námstímanum á Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn, 1928 1935. Einnig voru sýndar ljósmyndir af lykilverkum Sigurjóns, sem ekki var unnt að hafa á sýningunni. Sýningarstjórar voru Birgitta Spur og Æsa Sigurjónsdóttir, sem nutu aðstoðar Geirfinns Jónssonar. Sýningunni fylgdi vönduð 56 síðna myndskreytt sýningarskrá á íslensku og ensku. Ritstjóri var Birgitta Spur og í ritnefnd með henni voru Svanfríður Franklínsdóttir og Æsa Sigurjónsdóttir. Halldór Björn Runólfsson safnstjóri ritaði aðfaraorð, Birgitta Spur greinina Enginn er eyland og Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur rannsóknargreinina List er ekki hátíðleiki, heldur lífið sjálft, þar sem hún varpar ljósi á þýðingu danska módernismans fyrir Sigurjón og hvernig þau áhrif eru einnig sýnileg í síðari verkum hans. Sýningin hlaut frábæra dóma og var tilnefnd sem ein af fimm bestu sýningum ársins af listgagnrýnanda Morgunblaðsins. Margir erlendir gestir komu gagngert til að skoða sýninguna, þar á meðal Jacob Thage, safnstjóri Museum Jorn í Silkeborg. Á sýningartímanum veitti BSp leiðsögn, fjórum sinnum í LSÓ og sex sinnum í LÍ og tók meðal annars á móti Mogens Lykketoft, forseta danska þingsins. Æsa Sigurjónsdóttir var með leiðsögn einu sinni í LÍ og Hlíf Sigurjónsdóttir var með sérsniðið prógramm í LÍ þar sem hún spann saman hugleiðingar sínar um list föður síns og fiðlutónlist, sem hún flutti. Í LSÓ var efnt til sérstakrar dagskrár 23. nóvember þar sem Þórarinn Eldjárn las úr dagbókabrotum föður síns, sem fjalla um heimsóknir til Sigurjóns og sögur sem Sigurjón sagði. Málþing tengt sýningunni var haldið í Listasafni Íslands 6. september og héldu þar eftirtaldir listfræðingar fyrirlestra: Jens Peter Munk og Charlotte Christensen, bæði frá Danmörku, bandaríska fræðikonan Kerry Greaves og einnig Æsa Sigurjónsdóttir, Pétur H. Ármannsson og Aðalsteinn Ingólfsson. Listfræðiog bókmenntastofnun Háskóla Íslands hefur ákveðið að gefa út ráðstefnurit með Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 2

fyrirlestrunum og hefur fengist styrkur frá Letterstedtska föreningen til að standa straum af kostnaði við myndbirtingar. Æsa og Birgitta munu kalla inn handritin og ganga frá þeim til prentunar. Verne Global, Letterstedtski sjóðurinn, Landsvirkjun og TVG-Zimsen styrktu sýninguna. Listamaður á söguslóðum í efri sal safnsins: 31.01.15 22.03.15 Danski listmálarinn Johannes Larsen kom hingað til lands tvívegis, sumrin 1927 og 1930, í þeim tilgangi að teikna myndir af helstu söguslóðum Íslendingasagna í fyrirhugaða útgáfu Íslendingasagna á dönsku. Hann teiknaði um þrjú hundruð tússteikninga, og birtust 188 þeirra í Íslendingasögunum. Á þessari sýningu voru 28 teikningar úr eigu afkomenda listamannsins. Það var alfarið elju og dugnaði sýningarstjórans og íslandsvinarins Vibeke Nørgaard Nielsen, að þakka að þessar teikningar komu fyrir almenningssjónir hér á landi. Fyrir sýninguna kom út bók Vibeke, Listamaður á söguslóðum, í íslenskri þýðingu Sigurlínar Sveinbjarnardóttur. Auk umfjöllunar Vibeke um listamanninn og teikninga Johannesar Larsen eru í bókinni dagbókafærslur frá þessum ferðum. Sýninguna styrktu: Johannes Larsen Museet, Velux Fonden, Fondet for Dansk - Islandsk Samarbejde, Familien Hede Nielsens Fond, TVG-Zimsen og Danska Sendiráðið á Íslandi. Í tengslum við sýninguna voru ýmsir viðburðir í Listasafni Sigurjóns: 6. febrúar Safnanótt Leiðsögn Vibeke Nørgaard Nielsen og Sigurlínar Sveinbjarnardóttir kl. 20:00 og 21:30. 15. febrúar Sýn á sögustaði. Fyrirlestur Einars Fals Ingólfssonar um íslandsteikningar listamannanna J. Larsen og W.G. Collingwood. 22. febrúar Ferðir Johannes Larsen um Ísland og dagbækur hans. Fyrirlestur Vibeke Nørgaard Nielsen og Sigurlínar Sveinbjarnardóttur. 1. mars Þarfur arfur og hirðdrápur. Erindi og upplestur Þórarins Eldjárns og Hlífar Sigurjónsdóttur. 15. mars Einleiksverk fyrir fiðlu eftir Rúnu Ingimundar og Poul Ruders. Hlíf Sigurjónsdóttir. 22. mars Dönsk og íslensk sönglög í flutningi Kristjönu Arngrímsdóttur og Kristjáns Eldjárns Hjartarsonar. Í neðri sal safnsins voru á sama tíma sýnd 14 valin verk eftir Sigurjón Ólafsson. SAMSPIL Sigurjón Ólafsson & Finn Juhl 23.04.15 20.09.15 Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar Mennta- og menningarmálaráðherra opnar sýninguna SAMSPIL, sumardaginn fyrsta 2015 kl. 20. Æsa Sigurjónsdóttir, Halldór Björn Runólfsson og Birgitta Spur hlýða á. Á sýningunni, og í grein Æsu Sigurjónsdóttur í samnefndri sýningarskrá, er varpað nýju ljósi á tengsl danska arkitektsins Finn Juhl (1912 1989) og Sigurjóns Ólafssonar á árunum 1940 1945. Þeir voru báðir brautryðjendur, hvor á sínu Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 3

sviði, og fóru ótroðnar slóðir í tilraunum sínum með form og efni. Á sýningunni voru meðal annars húsgögn sem Finn Juhl sýndi á Snedkerlaugets Møbeludstilling í Kaupmannahöfn árin 1940 og 1941, stóllinn Pelikanen og sófinn Poeten ásamt skúlptúrum eftir Sigurjón sem Finn Juhl, á sínum tíma, annað hvort valdi fyrir sýningar með húsgögnum sínum, eða hafði á heimili sínu og teiknistofu. Æsa Sigurjónsdóttir og Birgitta Spur dvöldu í Danmörku dagana 8. 12. desember 2014 til að afla heimilda um Finn Juhl og verk hans fyrir væntanlega sýningu og sýningarskrá, meðal annars á safni hans í Charlottenlund og á Designmuseum Danmark. Birgitta Spur ritaði aðfaraorð sýningarskrár. Í grein sinni Samspil fjallar Æsa Sigurjónsdóttir um tengsl Sigurjóns og Finns Juhl sem ekki hefur áður verið gefinn gaumur. Hún bendir einnig á villur í fjölda bóka um Finn Juhl, þar sem verk Sigurjóns hafa ranglega verið kynnt sem verk eftir Jean Arp og Erik Thommesen. Birtar eru gamlar ljósmyndir frá heimili Finns Juhl og sýningum hans þar sem verka Sigurjóns er getið. Sýningarskránni hefur verið dreift til 60 erlendra safna og helstu listasafna innanlands. Ritnefnd sýningarskrárinnar skipuðu, auk Birgittu ritsjóra, Æsa Sigurjónsdóttir og Svanfríður Franklínsdóttir. Danska fyritækið Onecollection, sem hefur einkaleyfi á að framleiða húsgögn hönnuð af Finn Juhl, lánaði húsgögn á sýninguna og styrkti útgáfu sýningarskrár. Í tengslum við sýninguna voru eftirfarandi fræðsludagskrár í safninu: 10. maí Danish Modern: Finn Juhl og gullöld danskrar húsgagnahönnunar. Fyrirlestur Aðalsteins Ingólfssonar þar sem fjallað var um þróun nýrrar húsgagnahönnunar í Danmörku á árunum 1930 1960. 21. júní Leiðsögn í fylgd Birgittu Spur. 5. júlí Leiðsögn í fylgd Æsu Sigurjónsdóttur listfræðings. 6. sept. Finn Juhl og íslensk húsgagnahönnun. Fyrirlestur og leiðsögn í fylgd Hörpu Þórsdóttur listfræðings og forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands. 20. sept. Leiðsögn í fylgd Birgittu Spur og Æsu Sigurjónsdóttur listfræðings. Sýningin hlaut frábæra dóma Önnu Jóu í Morgunblaðinu 17. ágúst. Sýningarstjórar voru Birgitta Spur og Æsa Sigurjónsdóttir. Sýninguna styrktu Onecollection, EPAL og Birgitta Spur. Gyðjur 17.10.15-31.05.16 Portrett af konum í túlkun Sigurjóns ásamt öðrum verkum hans, sem höggvin eru í stein eða tré, þar sem kvenímyndinni er lýst og hún tekur á sig ímynd gyðjunnar. Sýningin er í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Í hefti sem fylgir sýningunni lýsir sýningarstjórinn, Birgitta Spur, hverju verki með stuttum texta. Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 4

Tónleikar í safninu og aðrir viðburðir Sumartónleikar LSÓ Sumarið 2012 voru haldnir ellefu tónleikar frá 3. júlí til 4. september og tóku tuttugu og sex tónlistarmenn þátt í þeim. Sumarið 2013 voru haldnir níu tónleikar frá 9. júlí til 1. september. Þrettán tónlistarmenn og einn upplesari tók þátt í þeim. Sumarið 2014 voru haldnir fimm tónleikar frá 1. júlí til 29. júlí. Tólf tónlistarmenn tóku þátt í röðinni. Sumarið 2015 voru haldnir sex tónleikar á tímabilinu 7. júlí til 11. ágúst. Þrettán tónlistarmenn og einn upplesari komu fram á þeim. Aðrir tónleikar og menningarviðburðir 2013: Salur safnsins var notaður fimm sinnum fyrir nemendatónleika og sjö sinnum fyrir aðra menningarviðburði. 2014: Salur safnsins var notaður þrisvar sinnum fyrir nemendatónleika og sjö sinnum fyrir ýmsa menningarviðburði. 2015: Salur safnsins var notaður fjórum sinnum fyrir nemendatónleika og tvisvar fyrir aðra menningarviðburði. Námskeið Sérstakt námskeið fyrir grunnskólakennara var haldið í safninu 17. janúar 2015 til þess að kynna námsefni safnsins, sem er aðgengilegt á netsíðu LSÓ. Leiðbeinendur voru Björg Erlingsdóttir, Listasafni Íslands, og AlmaDís Kristinsdóttir sem, ásamt Birgittu Spur, er höfundur fræðsluefnisins. Gjafir til safnsins Þann 21. október 2013 gaf Ingibjörg Björnsdóttir safninu bronsafsteypuna Glíma, (LSÓ 002) sem Sigurjón gerði á árunum 1933 34. Var gjöfin afhent til minningar um eiginmann Ingibjargar, Ólaf Óskarsson. Ráðstefnur Birgitta Spur sótti eftirtaldar ráðstefnur: Farskóli FÍSOS í Reykjavík 25. 26.09.2013, þar sem Birgitta flutti erindi um tilurð og sögu LSÓ. Farskóli FÍSOS í Berlín dagana 14. 21.09.2014. Nordik - Nordisk kunsthistoriekongres 13. 16.05.2015 í Reykjavík. Ásamt Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði tók Birgitta þátt í 100 ára hátíðarfundi Norræna Safnasambandsins - Skandinavisk Museumsforbunds 100 års jubilæumskonference - í Kaupmannahöfn 27. 29. ágúst. Á aðalfundi sambandsins (Plenum møde) þann 28. ágúst flutti Birgitta kveðjur frá Íslandsdeild sambandsins og skýrslu um samrunu deildarinnar við FÍSOS, sem samþykkt var á aðalfundi FÍSOS á Hvolsvelli 2009. Ráðgjafanefnd LSÓ Mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson tilnefndi Katrínu Jakobsdóttur alþingismann sem fulltrúa sinn í ráðgjafanefnd LSÓ til þriggja ára frá og með 4. desember 2014. Aðrir fulltrúar í ráðgjafanefndinni eru Halldór Björn Runólfsson forstöðumaður Listasafns Íslands og Birgitta Spur, stofnandi Listasafns Sigurjóns Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 5

Ólafssonar og fyrrum forstöðumaður safnsins. Eftirtaldir fundir voru haldnir í ráðgjafanefndinni á árinu 2015: 20. febrúar, 2. mars, 23. mars, 27. apríl, 29. júní, 25. ágúst og 1. október. Katrín Jakobsdóttir ritaði fundargerðir allra fundanna. Fjöldi safngesta er nokkuð svipaður á milli ára. Árið 2014 komu um 2.600 gestir, og 450 fengu leiðsögn. Aðgangseyrir Undanfarin ár hefur aðgangseyrir að safninu verið 500 krónur, en var hækkaður í 800 árið 2014. Um mitt sumar 2015 var hann hækkaður í 1000 kr. til samræmis við annan aðgangseyri hjá Listasafn Íslands. Börn fá frítt, en námsmenn og aldraðir borga hálft gjald. Safnið er almennt opið: 1. júní 31. ágúst: opið alla daga nema mánudaga kl. 14 17. 1. september 31. maí: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14 17. Í desember og janúar er safnið aðeins opið eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar um hvenær safnið er opið má nálgast á netsíðum Listasafns Íslands : www.listasafn.is og Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, www.lso.is Reykjavík, nóvember 2015 Birgitta Spur Skýrsla um starfsemi LSÓ 2012 2015 6