Kynnisferð til Kaupmannahafnar og Stokkhólms í maí 2007



Relaterede dokumenter
Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

Skýrsla. velferðarráðherra um stöðu skuldara á Norðurlöndum. (Lögð fyrir Alþingi á 139. löggjafarþingi )

sþ. 52. Tillaga til þingsályktunar [52. mál]

Aukinn skilning mun hún færa oss, þessi Íslandsferð Heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til Íslands 1907

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desferal 500 mg/hettuglas, stungulyfs- og innrennslisstofn, lausn. deferoxaminmesilat

forbindelse med både ansættelse, ændring i ansættelsesforhold og ved afslutning af ansættelsen.

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

Öryggisblað (SDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 888/2015 (EB reglugerð 1907/2006 REACH)

Om årtusinder. Ib Trankjær

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

Matematik i Storcentret

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Tryggingartreytir fyri Bólkalívstrygging

s INNEHÅLL Spelbräde 4 Littlest Pet Shop-pjäser snurra 16 brickor k INDHOLD Spillebrett 4 Littlest Pet Shopspillebrikker Drejehjul 16 mærker n INNHOLD

Tivoli på Grønland. Kirsten Mortensen

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla.

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Nefndarálit umhverfis- og náttúruauðlindanefndarinnar. um að efla framleiðslu og dreifingu vistvænna landbúnaðarafurða á Norðurlöndum

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

SIKKERHEDSSTYRING I PRAKSIS

Efnisyfirlit: Inngangur: Valby Börneasyl / Valby Dosseringens Vuggestue Börnehaven Prinsessehöj / Virum... 12

Alkohol relateret folkehelse arbejde - Island

FYR LØS. TAK Skapandi verkefni B 8570 Menntamálastofnun 2018

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003.

Leiðbeiningar ein einföld byrjun á orkuvinnunni bók

10. Klimat och energi

Enok maðurin, sum gekk við Gudi

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun

05 / MÁLTAKA ANNARS TUNGUMÁLS 14 / FJÓRAR AÐFERÐIR SEM NOTA MÁ TIL AÐ SAFNA GÖGNUM 16 / LISTAR - SKRÁNINGARBLAÐ - EINSTAKLINGSÁÆTLUN

ATLANTIC AIRWAYS KAPPINGIN H71 - NEISTIN. Sunnudagin 28. september kl Hoyvíkshøllin

esurveyspro.com - Survey Detail Report

Søgan um "Vesturhavið Blíða"

Inntak sameiginlegrar forsjár samkvæmt 28. gr. a. barnalaga nr. 76/2003 Ákvörðunartaka um málefni barns

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

HENSIGTSERKLÆRING FRA DE NORDISKE KOMMUNEMINISTRE OM RET TIL FRAVÆR FRA ARBEJDET VED VARETAGELSE AF LOKALPOLITISKE HVERV I NORDEN

- kennaraleiðbeiningar

VINÁTTA Í VESTURKOTI. Linda Hrönn Þórisdóttir

Dómaraheimild. Rök með og á móti. Heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Lúðvík Börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti

Havnar Bridgefelag. Veitsla á Hotel Hafnia. 1. september Menu: Forrættur:

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Nd Frumvarp til laga [127. mál]

Overenskomst 26. januar 2006 om endring av den nordiske familierettskonvensjonen SOPIMUS

Fulnaður fyri ávísar bráðsjúkur til børn sum ískoyti til bólkalívsavtalur og tryggingartreytir hjá NordikLív

Sorg barna Hvert er hlutverk skólans?

U n d e r v i s n i n g s p l a n i d a n s k Gem denne plan! Her er mange nyttige oplysninger til dig om dit studie i dansk.

ÞRÓUN RÉTTARREGLNA UM SAMEIGINLEGA FORSJÁ

ARB-Vegleiðing Vegleiðing í nýtslu av kanningarblaðið Dykkermedisinsk undersøgelse 2010/01 Arbeiðseftirlitið

Kökur, Flekar,Lengjur

Námsstíll. Kynning á námsstílslíkani Dunn og Dunn fyrir nemendur, foreldra, kennara og alla þá sem aðstoða börn við nám.

Börn og sorg. Fræðsla um lífið og dauðann í leikskólum og gagnsemi hennar. Ragnheiður Guðjónsdóttir

SMIL SKAPANDI VERKEFNI ~ FYR LØS. SMIL Skapandi verkefni B 9053 Námsgagnastofnun 2014

Landsmiðstøðin - Hoyvíksvegur 72 - Postboks Tórshavn Tlf.: Fax: T-postadressa: lms@lms.fo - Heimsíða:

Kjarasamningar í Danmörku

ÖLL BÖRN LÆRA en ekki jafnhratt

Jöfn umgengni í framkvæmd

MACC ritgerð Reikningshald og endurskoðun. Þagnarskylda endurskoðenda

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands.

Nú má av gerðin takast

31. AGUST 2014 ÖÐRUVÍSI MOKKA JAKKA R TÍSKA 36 ERU ANNA OG ELSA VINSÆLLI EN BÍTLARNIR? FROZEN-ÆÐIÐ 46

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur

Kennslulei⅟beiningar. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar

Sjálfsprottinn söngur barna

Størrelsessortering af rejer med sorteringsrist

ARB-Vegleiðing. Kavaravinna og kavaraútgerð 2009/11. Arbeiðseftirlitið

5. tbl. 8. árg. september 2008 Málgagn Kennarasambands Íslands

SMIL KENNSLU- LEIÐBEININGAR. SMIL Kennsluleiðbeiningar B 9050 Námsgagnastofnun 2014

EKKO. Lærervejledninger NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

Baráttan við MNDsjúkdóminn

Siemens Børnerådg. ISLAND /5/03 10:28 PM Side 1. Heyrir. þú í. Leiðbeiningar fyrir foreldra heyrnarskertra barna. ...vinum þínum?

EKKO AUKAÆFINGAR NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

Verndarblaðið. Um afbrot, fanga og fangelsismál 43. árg. 2015

E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks

Kennsluleiðbeiningar

Program Nordiske Politimesterskaber I håndbold

Háskóli Íslands Hugvísindasvið Danska. Oversættelse af Naja Marie Aidts Som englene flyver

Bærinn okkar. betri bær og allir með

1. tbl. 31. árgangur Málgagn móðurmálskennara

Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna

Bekendtgørelse om arbejdsløshedsforsikring ved arbejde m.v. inden for EØS, Færøerne og i det øvrige udland

BORGARHOLTSSKÓLI bókmennt handmennt - siðmennt

Grunnnámskeið 2. Að vera í sveitarstjórn. Hlutverk og ábyrgð sveitarstjórnarmanna. Samband íslenskra sveitarfélaga

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk

Snak med din makker Nauðsynlegt er að nemendur læri litina utan að og noti síðan samtalsæfinguna til að festa þá i minni.

EFLING NÁMS- OG STARFSRÁÐGJAFAR NEFNDARÁLIT

komudagur f2

Áfangaskýrsla til dómsmálaráðherra

A FYR LØS TAK Skapandi verkefni A 8529 Menntamálastofnun 2018

Framfærsluskyldur foreldra Meðlagskerfi Norðurlanda

Forskellige oversættelser af Den grimme ælling

Steinunn Camilla. Við erum allar flottar í réttu sniði! ÚTIVIST. á sér ótal áhugamál. Útilega með stæl! Hrönn Friðriksdóttir. Gróa Ásgeirsdóttir

Lærervejledninger SPIS DIG GLAD. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða sem tengist mat og matarvenjum í Danmörku. Hugmyndir að kveikju:

Málalykill. Reglur og leiðbeiningar fyrir ríkisstofnanir

Samþykkt fyrir. Vestnorrænan höfuðborgasjóð Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar. Heiti og hlutverk. 1. gr.

Tillaga um stofnun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

Fimmtudaginn 14. apríl (Halldór H. Backman hrl.) gegn Ístaki hf. (Ólafur Eiríksson hrl.)

LÆREREN, SKOLEN OG DEN PROFESSIONELLE KAPACITET

Transkript:

Kynnisferð til Kaupmannahafnar og Stokkhólms í maí 2007 Leikskólasvið Reykjavíkurborgar 2008 1

Kynnisferð fulltrúa leikskólaráðs og starfsmanna á Leikskólasviði til Kaupmannahafnar og Stokkhólms í maí 2007 Þátttakendur í ferðinni voru: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, Fanný Gunnarsdóttir og Oddný Sturludóttir, fulltrúar í leikskólaráði, Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs, Hildur Skarphéðinsdóttir skrifstofustjóri, Ingunn Gísladóttir starfsmannastjóri og Laura Bergs, verkefnastjóri. Eftirfarandi dagskrá lá fyrir í upphafi ferðar: Kaupmannahöfn - mánudagur 21. maí Heimsókn í leikskólann Konkylien www.konkylien.dk Kaupmannahöfn - þriðjudagur 22. maí Heimsókn í BUF - Børne- og Ungdomsforvaltningen www3.kk.dk/ www3.kk.dk/service Heimsókn í leikskólann Galaxen www.institutionen-galaxen.dk Kaupmannahöfn - miðvikudagur 23. maí Heimsókn í Mini Ajax idrætsvuggestue www.miniajax.dk Heimsókn í Solstrålen flerbörnsdagpleje Stokkhólmur - fimmtudagur 24. maí Heimsókn í ráðhúsið www.stockholm.se Heimsókn í sænska menntamálaráðuneytið www.regeringen.se/sb/d/1454 Heimsókn í Norrmalms stadsdelsförvaltning www.stockholm.se Heimsókn í leikskólann Brunnen www.forskolor.norrmalm.stockholm.se Stokkhólmur - föstudagur 25. maí Heimsókn í leikskólann Mimer www.forskolor.norrmalm.stockholm.se Heimsókn í einkarekinn leikskóla, Lyckeboa www.lyckeboa.se Hafa ber í huga að í þessari skýrslu er stiklað á stóru og líta ber á hana sem eins konar samantekt. Stuðst er við ýmis gögn sem safnað var í ferðinni en þau er að finna á skjalasafni Leikskólasviðs. Jafnframt er að finna ítarlegar upplýsingar á heimasíðum þeirra stofnana sem heimsóttar voru. 2

Danmörk Barna- og unglingasvið Kaupmannahafnar - BUF (Børne- og ungdomsforvaltningen) Barna- og unglingasvið Kaupmannahafnar sinnir málefnum 0 18 ára barna og unglinga, þ.e. leik- og grunnskólastigi og frístundastarfi. Við stjórnsýslubreytingar sem komu til framkvæmda í ársbyrjun 2006 fluttust málefni 0 6 ára barna frá Fjölskyldu- og atvinnusviði yfir til Barna- og unglingasviðs (BUF). Else Marie Krogh og Birgitte Møller tóku á móti hópnum á skrifstofu BUF og sögðu frá þjónustu við 0 6 ára börn (daggæsla, vöggustofur, leikskólar), námskrám, tengsl leikskóla og grunnskóla og menntun leikskólakennara. Leiðarljós Kaupmannahafnar í öllu starfi með börnum og unglingum er Virðing - jafnrétti - samræður - traust. Í ágúst 2004 gaf danska menntamálaráðuneytið út aðalnámskrá sem öllum leikskólum ber að vinna eftir. Þar eru sett fram eftirfarandi sex námssvið sem vinna skal með í leikskólauppeldi: Einstaklingshæfni, félagsfærni, málrækt, líkami/hreyfing, náttúra/umhverfi og menning/listsköpun. Sérhver leikskóli mótar svo sína stefnu og velur þær uppeldisaðferðir sem samræmast leiðarljósinu og aðalnámskránni. Í júni 2003 samþykkti borgarstjórn Kaupmannahafnar svokallað Børneplan sem setti leik- og grunnakólamál í forgang næstu árin. M.a. skyldu verða til meira en 3.000 ný daggæslu og leikskólapláss fram til ársins 2008. Yrði það gert annars vegar með byggingu nýrra leikskóla og með því að fjölga úrræðum og gera þau sveigjanlegri. Tryggja skyldi öllum 0 6 ára börnum dagvistunarúrræði í sínu hverfi eða nálægu um leið og þess væri óskað. Børneplanen varð til þess að árið 2005 hafði tekist að uppræta alla biðlista jafnvel svo að umfram framboð var á plássum og höfðu foreldrar því í mörgum tilfellum val um úrræði. Í lögum frá árinu 1995 (Lov om dagtilbud) er lögð áhersla á að foreldrar getið valið um úrræði fyrir börn sín. Eftirfarandi úrræði eru í boði: A) Daggæsla (Dagpleje) Morgunfundur í BUF Kommunaledagpleje 175 dagmæður með alls 500 börn. Starfsemin fer fram í heimahúsi og hvert dagforeldri má mest hafa 3 börn. Dagforeldrar hafa afleysingakerfi sín á milli, leysa hvert annað af og mega í þeim tilfellum hafa 4 börn. Vinnuvikan er 48 stundir, laun miðað við 3 börn eru DKK 19.200 (46% skattaafsláttur). Greitt er aukalega vegna umfram barna. Dagforeldrar eru starfsmenn sveitarfélagsins og þurfa að hlíta 3

ákveðnum reglum, t.d. mæta á leikstofu í hverfinu 1 x í viku, reglulega fræðslufundi og vera tilbúnir til að taka aukabörn tímabundið. Flerbørnsdagpleje í Kaupmannahöfn eru níu staðir með þessu fyrirkomulagi. Þrjár dagmæður starfa saman með alls 8 börn. Borgin útvegar húsnæðið (ca. 80 fm) og sér um rekstur þess. Opnunartími er 42 klst. á viku. Árið 2003 skorti daggæsluúrræði í Kaupmannahöfn og þá var gerð áætlun um fjölbreyttari úrræði (børneplan). Í kjölfarið var flerbørnsdagpleje komið á fót. Solstrålen Skoðuð var flerbørnsdagplejen Solstrålen (Sólargeislinn) þar sem þrír dagforeldrar starfa saman með átta börn. Húsnæðið og allur rekstur er á vegum borgarinnar og eru níu staðir með þessu fyrirkomulagi í Kaupmannahöfn. Dýr kostur en getur verið ákjósanlegur, t.d. ef barnið kemst ekki strax í leikskóla. Opnunartími er 42 klst. á viku, oftast 7:15 16:30. Áhersla lögð á að umhverfið sé sem heimilislegast og almenningsgarðar og opin svæði í nágrenninu eru notuð til útiveru. Flerbørnsdagpleje heyrir undir dagforeldrakerfið varðandi innritun, eftirlit, öryggismál o.s.frv. Úrræðið varð til með Børneplanen árið 2003. Privat dagpleje starfsemin fer fram í heimahúsi þar sem dagforeldri er með sitt eigið barn og eitt annað barn. Mögulegt er fyrir foreldra að gæta eigin að barna (2 börn) undir 3 ára aldri. Dagforeldrið er á launum hjá sveitarfélaginu og sömu kröfur eru gerðar og hvað varðar Kommunaledagpleje. Vinnuvika er 48 stundir - laun DKK 14.000. Basisdagpleje daggæsla í heimahúsi fyrir 0 3 ára börn með fötlun eða frávik í þroska. Tuttugu slík pláss eru í Kaupmannahöfn. Ýmist einkagæsla eða með öðru barni. Mikið lagt upp úr fræðslu til dagforeldra og stuðningi við foreldra. Gæstehus afleysingastaður fyrir dagforeldra í viðkomandi hverfi ef upp koma veikindi, dagforeldri fer á námskeið o.s.frv. Þar geta 20 börn dvalið samtímis í umsjá 4 starfsmanna. Legestue - er ætlað að rjúfa félagslega einangrun dagforeldra. Einu sinni í viku er dagforeldrum skylt að mæta þangað og dvelja allan daginn. Dagforeldrum í hverfinu er skipt í hópa og eru 3-5 dagforeldrar í hverjum hópi. Eftirlits- og daggæsluráðgjafi hittir hvern hóp 1x í mánuði og þá er gjarnan boðið upp á fræðslu. B) Vuggestue (vöggustofur/yngri deildir í leikskóla) fyrir börn frá 6 mánaða til 2,9 ára (5.000 börn). Vöggustofur eru ýmist einar og sér eða deild innan leikskóla. Foreldrar greiða DKK 2.735 á mánuði (ca. 25%) fyrir barn á vöggustofu eða í daggæslu (1. jan. 2007). C) Børnehave - börn frá 2,10 ára fram að skólabyrjun. Þegar börn eru 5 ára og 10 mánaða geta þau byrjað í børnehaveklasse sem er e.k. tenging milli leik- og grunnskóla og tilheyrir grunnskólakerfinu. Hann er ekki skylda en 90% foreldra velja hann fyrir börn sín. Áhersla lögð á samstarf leik- og grunnskóla og samvinnu við foreldra. Foreldrar greiða DKK 1.730 á mánuði (1. jan 2007) fyrir heilsdagspláss í leikskóla. 4

Í samantekt þessari verður leikskóli notað yfir það sem í Danmörku er annars vegar kallað vuggestue (yngri deildir leikskóla) og hins vegar børnehave (eldri deildir leikskóla). Í Kaupmannahöfn eru 520 leikskólar og þeim þjóna 16 leikskólaráðgjafar. Í 20 barna hópi eru að jafnaði 3 fagmenntaðir fyrir hádegi og 2 eftir hádegi. Leikskólastjórar sjá um ráðningar starfsfólks. Í Danmörku eru ákveðin viðmið varðandi fermetrafjölda á hvert barn en líklega eru aðeins heimastofur barna lagðar til grundvallar og þetta er ekki bundið í reglugerð eins og á Íslandi. Leikskólar hafa leyfi til að loka í 10 daga á ári vegna námskeiða og skipulagsvinnu. Innritun: Innritun er rafræn. Hægt að sjá hvernig biðlisti stendur á einstökum stofnunum (ekki þó í leikskólum) og hvar barnið er á listanum. Þegar sótt er um fyrir barn í daggæslu eða vöggustofu fer barnið sjálfkrafa á biðlista eftir leikskóla. Tryggt er að börn fái pláss í leikskóla við 3ja ára aldur, stundum þegar þau eru 2ja ára og 10 mánaða. Þau raðast inn eftir aldri. Ákveðinn fjöldi leikskólaplássa er frátekinn fyrir börn með annað móðurmál en dönsku (sprogpladser). Þau eru hugsuð fyrir börn foreldra sem bæði eiga annað móðurmál en dönsku. Þetta úrræði er liður í þriggja ára þróunarverkefni sem hófst árið 2006. 63 leikskólar í Kaupmannahöfn bjóða upp á sprogpladser og þar starfar fólk með sérstaka þekkingu á því hvernig best má hjálpa börnum við að ná tökum á dönsku sem öðru tungumáli. Jafnframt er lögð áhersla á samvinnu og ráðgjöf til foreldra (nánar á: www.tosprogede.kk.dk). BUF vinnur samkvæmt lögum og reglugerðum frá menntamálaráðuneyti. Lög um leikskóla eru nú í endurskoðun og ferli umsagna. Í nýju lögunum verður m.a. nýr kafli, börnemiljö, sem fjallar um aðbúnað barna úti og inni og sérstök áhersla er á börn með sérþarfir og snemmtæka íhlutun. Nýju lögin kveða á um samráð foreldra og starfsmanna og foreldraráðin hafa eftirlit með því að lögunum sé fylgt. Foreldrar og starfsmenn hafa sífellt meiri áhrif á ákvarðanir yfirvalda. 5

Leikskólinn Konkylien Formaður leikskólaráðs litast um á leiksvæði Konkylien Inaluk Jeppesen, leikskólastjóri tók á móti okkur. Konkylien (Kuðungurinn) er í þéttri byggð i Österbro skammt frá Löngulínu og hóf starfsemi árið 2004. Hann er opinn frá kl. 07:00 17:00. Konkylien er í nýju húsnæði á þremur hæðum og lyfta er í húsinu. Á efstu hæðinni er yfirbyggt útisvæði ætlað yngstu börnunum sem kemur mjög vel út. Konkylien er integreret instistution, þ.e. þar er bæði vuggestue og børnehave. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar dvelja 63 börn, þar af eru 14 basisbörn, þ.e. heyrnarlaus eða heyrnarskert börn. Lögð er áhersla á mæta þörfum allra barna, fatlaðra og ófatlaðra á jafnræðisgrundvelli í sameiginlegu umhverfi. Í skólanum er notað tákn með tali. Talmeinafræðingar eru með skrifstofur í húsinu og bjóða börnum og foreldrum þeirra talkennslu og þjálfun innan skóla og utan. Í skólanum er velbúin listasmiðja sem er ætluð öllum börnum leikskólans og þar starfar uppeldismenntaður starfsmaður. Í Kaupmannahöfn er almennt viðmið á yngri deildum 12 börn. Í Konkylien eru þau 10 og 2 þeirra heyrnarskert. Almennt viðmið á eldri deildum er 20 börn. Í Konkylien eru 18 börn á eldri deildum og af þeim eru 4 heyrnarskert. Í leikskólanum starfa 13 leikskólakennarar, 5 leiðbeinendur og 2 nemar. Starfsfólk er bæði heyrandi og heyrnarskert. Leikskólakennarar eru ánægðir og stoltir með starf sitt, þó skortir leikskólakennara í Kaupmannahöfn. Í stjórn leikskólans sitja ásamt leikskólastjóra sjö foreldrar og tveir úr hópi starfsfólks. Stjórnin kemur að m.a. uppeldisstefnu leikskólans, ráðningum, fjárhagsáætlun o.fl. Áhersla er lögð á þátttökustjórnun og starfsmannasamtöl eru árlega. Opið er á milli deilda og áhersla lögð á samvinnu og samskipti barna og starfsfólks sem auðveldar mjög þegar börn flytjast á milli deilda. Húsgögn og fyrirkomulag innanhúss vakti athygli. Bjartar stofur og rennihurðir, því hægt að opna á milli rýma, pláss eru vel nýtt, m.a. eru borð felld upp að vegg þegar þau eru ekki í notkun og húsgögn eru gjarnan á hjólum, snyrtiaðstaða til fyrirmyndar og góð skiptiaðstaða. 6

Gluggar eru lágir svo börnin geta fylgst með leikjunum úti undir djúpum gluggaskistum myndast rými sem nýtist sem leiksvæði fyrir börnin. Á veggjum eru smekklegar hljóðeinangrandi plötur. Í Konkylien eins og á fleiri stofnunum sem heimsóttar voru í Kaupmannahöfn er áberandi hve Dönum er umhugað um vinnuvernd og hvers kyns heilsueflingu á vinnustað. Eldri börnin koma með nesti að heiman en þau yngri fá hádegisverð í leikskólanum. Öll börnin fá morgunverð og síðdegishressingu. Horft út á leiksvæðið úr djúpri gluggakistunni Í Konkylien mikið lagt upp úr samstarfi við foreldra, ekki síst vegna heyrnarskertu barnanna. Þau koma flest í leigubíl til/frá leikskóla en foreldrar þeirra koma í leikskólann a.m.k. einu sinni í viku. Samskiptabók fylgir barninu mikið um myndræn skilaboð. Skráningar eru með ýmsum hætti. Á hverri deild er upplifunarbók þar sem segir frá því á daginn hefur drifið. Einnig plaköt á deildum og göngum, myndaseríur í skiptirömmum í barnahæð, rúllandi myndasýning í tölvu um atburði dagsins, stuttar frásagnir skrifaðar niður eftir börnunum o.fl. Borð felld upp að vegg þegar þau eru ekki í notkun Svefnaðstaða barnanna á efstu hæð Konkylien 7

Leikskólinn Galaxen Jens Iversen leikskólastjóri tók á móti okkur í leikskólanum Galaxen sem er borgarrekinn leikskóli, geysilega vinsæll. Hann hóf starfsemi árið 1994 og þar er langur biðlisti. Í Galaxen dvelja 105 börn. Yngri deildirnar eru þrjár og 12 börn á hverri þeirra. Eldri deildirnar eru tvær og 22 börn á hvorri þeirra. Auk þess eru 22 börn í útileikskólanum Cassiopeia. Á hverri deild starfa 2 leikskólakennarar og 1 leiðbeinandi. Starfsmannastefna er skýr, einu sinni í viku er starfsmannafundur á deild og mánaðarlega er fundur allra starfsmanna. Galaxen lokar ekki á sumrin og þar eru engar reglur um að börnum beri að taka sumarleyfi. Í Galaxen er unnið með þau 6 námssvið sem fram eru sett í aðalnámskrá leikskóla en til grundvallar starfinu liggur: a) Reggio Emilia stefnan b) HowardGardner/fjölgreindarkenningin c) Einstaklingsmiðun (anerkendende relationer), þ.e. horft er á sterku hliðar barnsins, gaumur gefinn að því sem vekur áhuga þess hverju sinni og unnið með það. Eins konar rótering í starfinu, þ.e. á hverjum tíma er lögð meiri áhersla á einn af ofangreindum þáttum en annan. Fylgst er grannt með börnunum og skráð og skilgreint hvar styrkleikar þeirra liggja. Jens leikskólastjóri sýnir koffortið góða Um leið og barn byrjar í Galaxen fær það til eignar lítið koffort þar sem það geymir ýmislegt sem því er kært, t.d. myndir af fjölskyldu sinni. Þegar barnið fer í sumarfrí fer koffortið með og barnið safnar í það minningum, s.s. steinum, skeljum eða myndum til að sýna vinum sínum í leikskólanum. Frábær hugmynd. 8

Jens leikskólastjóri segir að stöðugt sé verið að skera niður fjárveitingar til leikskóla um leið og faglegar kröfur og væntingar samfélagsins aukast. Sparnaðurinn kemur fyrst og fremst fram í starfsmannamálum og þá um leið á faglegu starfi. Foreldrastarf í Galaxen er mjög virkt, foreldrar aðstoða t.d. við viðhald þó ekki sé leikskólinn einkarekinn. Börnin eiga hvert sitt spjald með myndum af því sem er þeim kært Drekkutími í sólinni Útileikskólinn Cassiopeia Útileikskólinn Cassiopeia (udflytterbörnehave), sem er í rauninni deild innan leikskólans, var opnaður árið 2004. Þar eru 22 börn og 4 starfsmenn. Leikskólinn er í 30 mínútna akstursfjarlægð, lagt er af stað frá Galaxen kl. 08:30 og komið til baka kl. 16:00. Börnin geta samt sem áður dvalið í leikskólanum jafn lengi og önnur börn leikskólans, þ.e. frá 06:45 til 17:00. Sérstakt herbergi í Galaxen tilheyrir Cassiopeia. Þar eru börnin þangað til rútan fer á morgnana og þar til þau eru sótt á daginn. Rútufyrirtæki sér um aksturinn og fylgt er öryggisreglum sem borgin setur. Kjósi barn í Cassiopeia fremur að vera í Galaxen endrum og sinnum fær barn af öðrum deildum skólans tækifæri til fara þangað í staðinn. Ríflega 50 útileikskólar eru fyrir utan Kaupmannahöfn og auk þeirra eru útideildir við allmarga leikskóla. Útideild kallast það þegar leikskóli á samastað fyrir utan borgina og hluti barnahópsins eyðir deginum þar, hvert barn u.þ.b. einum degi í viku. Nú stendur yfir tilraunaverkefni á landsvísu sem Galaxen tekur þátt í. Verkefnið er unnið út frá hugmyndafræði Reggio Emilia og nær til 5 ára barna. Tengslanet Reggio Emilia í Danmörku (Det Danske Reggio Emilia Netværk) stýrir verkefninu og fjármagnar það að hluta til. Tilgangur þess er að rannsaka hvernig fimm ára börn tileinka sér þekkingu og skoða hvernig stofnanir, fagfólk og foreldrar geta stutt við þroska barna og komið til móts við þarfir þeirra og áhuga á að tileinka sér þekkingu. Verkefnið hófst haustið 2006 og áætlað er að því ljúki vorið 2008. Litla flugan í Galaxen 9

Mini Ajax Mini Ajax er fyrsti og eini íþróttaleikskólinn í Danmörku, staðsettur í suðvestur Kaupmannahöfn. Caroline Sennek leikskólastjóri tók á móti okkur. Hugmyndin að Mini Ajax varð til í handboltafélaginu Ajax árið 2003. Haft var samband við landssamtök sjálfstætt starfandi leikskóla (De frie börnehaver) sem tóku vel í hugmyndina. Um þær mundir var unnið ákaft samkvæmt Börneplanen sem kvað á um aukningu á vistunarúrræðum fyrir börn og hugmyndin fékk strax góðan byr. Leikskólinn er því sjálfstætt starfandi og fær styrk frá borginni. Í Mini Ajax eru 66 börn á aldrinum ½ árs 3 ára, 12 börn á deild. Opnunartími 07:00 17:00. Innritunin fer fram í gegnum miðlægt kerfi. Einkunnarorð leikskólans eru Hellere et hul i hovedet end et hul i udviklingen! Yfirskrift Mini Ajax er Barn i bevægelse, þ.e. barnið á hreyfingu og út frá því er hugmyndafræðin þróuð. Allt starf miðast við að barnið hafi nægt svigrúm til hreyfingar, áhersla er lögð á að styðja við sjálfsbjargarviðleitni barnanna og styrkja sjálfstraust þeirra. Starfsmenn Mini Ajax hafa allir mikla menntun og reynslu en enginn þeirra hafði áður unnið með þessa hugmyndafræði. Hún var þróuð af þeim sameiginlega, stig af stigi og þróunarferlið er enn í gangi. Við vinnuna var stuðst við bókina Grundmotorik eftir Anne Brodersen & Bente Pedersen. Mini Ajax er timburhús, tvær álmur sem tengjast stóru sameiginlegu rými. Í hvorri álmu eru þrjár stofur. Rennihurðir eru milli allra stofanna svo hægt er að opna á milli nema í rými sem ætlað er börnum sem sérþarfir (aðallega fyrirburar). Í vel útbúnu skynörvunarrými (sanserum) eru skilningarvitin þjálfuð, s.s. heyrn, sjón og snerting (sbr. kenningar Anne Brodersen & Bente Pedersen). Matur í Mini Ajax er lífrænn og fjölbreyttur, mikið af grænmeti og ávöxtum og fyrst og fremst vatn til drykkjar. Í Mini Ajax eru nánast engin leikföng, starfsfólkið segir börnin eiga nóg af þeim heima. Leikföng taki mikið pláss og dragi athyglina frá því sem er í brennidepli, þ.e. barnet i bevægelse. Í stofunum er eingöngu að finna það sem nýtist í vinnu með hreyfingu, s.s. dýnur, rimlar, alls kyns púðar o.fl. Leikstofa í Mini Ajax Starfsfólkið sagði það hafa verið mikla ögrun að opna leikskóla án hefðbundinna leikfanga og reynslan hafi sýnt fram á ótvíræða kosti þess: Leikföng taka mikið pláss sem og hillur og hirslur sem nauðsynlegar eru undir þau Leikföng valda hávaða Leikföngum þarf að ganga frá og sortera það tekur tíma 10

Án leikfanga skapast meira pláss til hreyfingar og ýmis konar hreyfileikja Börnin veita hvert öðru meiri athygli þegar leikföng eru ekki til ð fanga athyglina Leikskóli án leikfanga krefst meira af starfsfólki Hætta á sýkingum er umtalsvert minni þar sem ekki eru leikföng Hugarflug og ímyndunarafl barnsins þroskast betur Nær einu leikföngin í Mini Ajax eru dýr sem notuð eru þegar fjallað er um dýr og dýrahljóð og leikföng sem notuð eru úti við, s.s. hjólbörur, hjól, boltar, fötur og skóflur. Auk þess smávegis af bókum. Innanstokksmunir í Mini Ajax eru fáir og einfaldir; borð eru hengd upp að lokinni notkun, stólum staflað, önnur húsgögn á hjólum svo hægt sé að renna þeim frá þegar skapa þarf pláss. Í Mini Ajax eru trip-trap stólar aðeins notaðir fyrir allra yngstu börnin. Frá 10 mánaða aldri sitja börnin á kollum (ekkert bak) og venjast því mjög fljótt að sögn. Kollurinn minn Börnin klifra sjálf upp á skiptiborðin Í Mini Ajax er leyfilegt að hlaupa inni, klifra upp í gluggakistur, fara í boltaleik, hjóla o.s.frv. Starfsfólkið er fyrirmyndir barnanna og verður að hafa ánægju af hvers kyns hreyfingu og taka þátt í henni með börnunum. Það er e.k. verkfæri í höndum barnanna sem hoppa og klifra á þeim og undir, í kringum þau o.s.frv. Karlmenn sækjast eftir að starfa í Mini Ajax og þar er hátt hlutfall þroskaþjálfa (m.a. vegna fyrirbura). Við Mini Ajax er fallegt útivistarsvæði en það er án hefðbundinna leiktækja. Lóðin er stór og nokkuð erfið yfirferðar, t.d. eru brekkur og mjóir stígar til að æfa börnin í að fara upp og niður, grjóthleðslur til að klifra í, trjábolir af ýmsum stærðum, trjárunnar mynda e.k. völundarhús, tröppur í alls kyns útfærslum (stundum er eina leiðin að snúa sér við og skríða niður) o.fl. áskoranir. Þegar okkur bar að garði hafði starfsmaður velt við steini og börnin stóðu umhverfis hann og rannsökuðu skordýr og fleira sem við blasti. Þannig stóðu þau í óratíma, spáðu og spekúleruðu án þess að nærvera okkar truflaði þau hið minnsta. Leiksvæðið við Ajax 11

Svíþjóð Ráðhúsið Fulltrúar leikskólaráðs fóru í stutta morgunheimsókn í ráðhúsið. Í Svíþjóð er 13 mánaða fæðingarorlof og hægt að ganga að leikskólaplássi vísu við eins árs aldur hafi verið sótt um 3-4 mánuðum fyrr. Bregðist það á foreldri rétt á heimgreiðslum. Ágreiningur var innan meirihlutans varðandi heimgreiðslur. Þriggja flokka meirihluti hefur ólíkar skoðanir á málinu (þær voru krafa kristilegra demókrata og hægri manna, en þriðji flokkurinn, Folkepartiet hafði aðra skoðun). Málinu var lent með lágri greiðslu. Foreldrar hafa ekki val um úrræði í sama mæli og í Kaupmannahöfn. Foreldrar eiga rétt á að börn þeirra séu ári lengur í leikskóla eða hefji nám ári fyrr í grunnskóla. Foreldrar og leikskólakennarar ákveða í sameiningu hvenær barn flyst á milli skólastiga. Sex ára börn eru ekki skólaskyld í Svíþjóð en þau eiga rétt á að hefja nám í forskólabekk. Forskólabekkur er eins konar brú frá leikskóla yfir í grunnskóla, oftast í húsnæði grunnskóla eða frístundaheimila. Þar starfa bæði leik- og grunnskólakennarar. Næstum öll 6 ára börn, eða 97%, fara í forskólabekk (1% 5 ára og 1% 7 ára barna), hann er ókeypis, börnin dvelja þar a.m.k. 3 klst. á dag og fá frían hádegisverð. Boðið er upp á gæslu gegn gjaldi fyrir og eftir skólatíma. Kennt skv. námskrá. Mikil áhersla lögð á samþættingu og samstarf leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Flutningur frá leikskóla í grunnskóla er nú á ábyrgð borgarhlutaskrifstofa. Hinn 1. júlí 2007 fluttu málefni grunnskóla frá borgarhlutaskrifstofum til menntaskrifstofu borgarinnar. Leikskólarnir munu fyrst um sinn heyra áfram undir borgarhlutaskrifstofur, það breytist þó hugsanlega. 45% af leikskólum í Stokkhólmi eru einkareknir og þeim er stýrt frá menntaskrifstofu borgarinnar. Menntamálaráðuneytið 12

Á móti hópnum tóku Eleonor Sandahl, pólitískur ráðgjafi Jan Björklund skólamálaráðherra og Christer Toftenius, starfsmaður í ráðuneytinu. Fram kom að málefni leikskóla (förskolor) eru í nokkuð góðum farvegi. Með lögum frá 1996 ber sveitarfélögum að tryggja börnum vistun í leikskóla frá eins árs aldri, ekki seinna en 3-4 mánuðum eftir að sótt hefur verið um. 79% barna á aldrinum 1 5 ára eru í leikskóla. Árið 2003 samþykktu borgaryfirvöld í Stokkhólmi leikskólaáætlun. Síðan hefur verið unnið markvisst að því í Stokkhólmi að fjölga leikskólum, fækka börnum á deild og pr. starfsmann, auka fagþekkingu meðal starfsmanna og sérstök áhersla er lögð á málrækt, ekki síst m.t.t. tvítyngdra barna. Leikskólaáætlunin gildir bæði fyrir borgarrekna og einkarekna leikskóla og er einnig leiðarvísir fyrir dagforeldakerfið. Leikskólakennaranám er á háskólastigi í Svíþjóð, tekur 3 ½ ár og vilji er fyrir því að lögvernda starfsheitið. Leikskólakennurum fækkar og í ráðuneytinu er að hefjast starfsímyndunarvinna. Reglur um hámarkslaun leikskólakennara ekki lengur í gildi. Markaðslaun gefa góða raun og laun leikskólakennara eru að hækka en tiltölulega lítill munur hefur hingað til verið á launum leikskólakennara og annarra starfsmanna í leikskólum sem flestir hafa einhverja uppeldismenntun, aðeins ca. 1% eru alls án uppeldismenntunar. Karlmenn eru 2% - 3% starfsfólks. Sífellt meiri áhersla er lögð á menntunarhlutverk leikskóla - umhverfismennt og íþróttir eru áherslur nýs meirihluta. Opnunartími leikskóla er frá 06:30 18:30 og að meðaltali dvelja börnin 7 ½ klst. Öllum börnum í leikskólunum er boðið upp á morgunverð, heitan mat og síðdegishressingu. Viðmið um fjölda barna og fjölda starfsmanna á deild : á yngri deildum (1-3 ára) eru 14 börn og 3 starfsmenn / á eldri deildum (3-5 ára) eru 18 börn og 3 starfsmenn. Leikskólar í Svíþjóð mega loka í 5 daga á ári vegna skipulagsdaga. Frá árinu 2002 gildir maxtaxa í Svíþjóð, þ.e. foreldrar greiða að hámarki 3% af tekjum sínum fyrir eitt barn í leikskóla, 2% af tekjum fyrir annað barn og 1% tekna vegna þriðja barns. Ókeypis er fyrir fjórða barn. Í Stokkhólmi þýðir þetta nú að hámarki Sek 1.260 fyrir 1. barn, SEK 840 fyrir 2. barn og Sek 420 vegna 3ja barns. Hlutur foreldra er að meðaltali u.þ.b. 10% af kostnaði við leikskólavistun barnsins. Leikskólagjöld eru innheimt 11 mánuði á ári. Leikskólagjöld í einkareknum leikskólum eru þau sömu og maxtaxa gildir. 4 og 5 ára börn fá 3ja stunda ókeypis dvöl í leikskóla á dag og til stendur jafnvel að 3ja ára börn fá það líka. Gildir frá ágústmánuði á því ári sem barnið verður 4 ára. Skert vistun fyrir atvinnulausa, öryrkja og foreldra í fæðingarorlofi, sem þar til fyrir skemmstu fengu aðeins 15 stunda vistun á viku en fá nú 30 stundir á viku. Fram til ársins 2001 urðu foreldrar í fæðingarorlofi að taka eldra barn sitt úr leikskóla meðan á fæðingarlofi stóð. Árið 2006 var kostnaður við hvert leikskólabarn SEK 99.000 og SEK 80.000 við hvert barn í daggæslu. Kostnaður við hvert barn í forskólabekk var SEK 45.000. Reiknað er framlag á hvern nemanda og sama fjárhæð fer til barna í öllum leikskólum, jafnt borgarreknum sem einkareknum. Aðalnámskrá leikskóla (läroplan för förskolar) sem unnin var á vegum menntamálaráðuneytisins kom út árið 1998 og þá var leikskólinn viðurkenndur sem fyrsta skólastigið. Markmið sem þar eru sett fram hafa leikskólar til hliðsjónar við mótun stefnu og skipulagningu starfseminnar. Aðalnámskráin er einnig e.k. leiðarvísir fyrir dagforeldra. Dagforeldrakerfið í Stokkhólmi er mjög ófullkomið og á undanhaldi (6% barna nýta þjónustuna). Dagforeldrar, sem mega hafa 5-6 börn á aldrinum 1 9 ára, starfa sjálfstætt og 13

líkt og í Kaupmannahöfn hafa þeir mikið samstarf, afleysingakerfi, hittast reglulega með börnin o.s.frv. Skolværket er stofnun sem ráðleggur sveitarfélögum í skólamálum. Þar koma fram leiðbeinandi upplýsingar um fjölda barna, húsnæðisviðmið o.fl. www.skolverket.se Borgarhlutaskrifstofan í Norrmalm Stokkhólmi er skipt í 14 borgarhluta og í hverjum þeirra er borgarhlutaskrifstofa (stadsdelförvaltning). Norrmalm er eitt stærsta hverfi borgarinnar með um 63 þúsund íbúa. Undir borgarhlutaskrifstofur heyrir m.a. frístundastarf fyrir börn, leikskólar og dagforeldrar, félagsleg þjónusta og málefni eldri borgara. Um 1.400 börn eru í leikskólum í Norrmalm. Um helmingur leikskólanna heyrir undir hverfisstöðina, hinir starfa sjálfstætt og menntaskrifstofa borgarinnar ber ábyrgð á þeim. Fjöldi einkarekinna leikskóla helgast af því að stjórnvöld anna ekki eftirspurn eftir leikskólaplássum. Í hverfinu eru borgarreknar 7 leikskólaeiningar og hverri þeirra tilheyra 4-5 leikskólar. Einn leikskólastjóri stýrir hverri einingu en við hvern leikskóla starfar fagstjóri og öflugir deildarstjórar. Slíkt fyrirkomulag hefur gefið góða raun. Leikskólar sem heyra undir sömu einingu starfa eftir sömu uppeldisstefnu. Hlutfall leikskólakennara í leikskólunum er 55% og 45% eru leiðbeinendur sem flestir hafa þó einhvers konar uppeldismenntun (barnskjötere). Laun leikskólastjóra eru SEK 36 40 þúsund á mánuði, laun aðstoðarleikskólastjóra eru 28 31 þúsund og laun leikskólakennara 20 25 þúsund á mánuði. Einkareknir leikskólar fá hærra framlag en borgarreknir vegna stjórnunarkostnaðar. Afskipti hverfisskrifstofunnar af einkareknum leikskólum eru eingöngu í formi ráðgjafar en deild í ráðhúsinu sér um eftirlitið. Hverfamiðstöðvar veita upplýsingar Varstu bara að leika þér í dag? um einkarekna leikskóla en þeir innrita sjálfir. Að öðru leyti er innritun í Stokkhólmi samræmd, dagforeldrar og borgarreknir leikskólar í sama kerfi BOSKO. Barn getur verið á mörgum biðlistum. Rafræn innritun komin vel á veg. Aðeins 5 dagforeldrar eru í Norrmalm viðmið er 5 börn pr. dagforeldri en stundum allt að 8 börn. Í Stokkhólmi eru 200 dagmæður og borgarhlutaskrifstofurnar sjá um þær. Í Stokkhólmi eru 35 þúsund börn í leikskólum borgarinnar, 15 þúsund börn í einkareknum leikskólum og 1 þúsund börn hjá dagforeldrum. Hugmyndafræði Reggio Emilia er allsráðandi í leikskólum Norrmalm og reyndar víða í Stokkhólmi. Við heimsóttum þrjá leikskóla í hverfinu, tvo borgarrekna og einn einkarekinn, sem allir starfa samkvæmt þeirri stefnu. Reggio Emilia stofnunin í Stokkhólmi aðstoðar skólana við hugmyndafræðivinnuna. 14

Leikskólarnir Brunnen og Mimer Brunnen er einn af fjórum leikskólum í Johannes einingunni þar sem leiðarljósið er Ég get, ég vil, ég þori. Brunnen er 2ja deilda leikskóli í fjölbýlishúsi. Á hvorri deild eru 26 börn sem skipt er í smærri hópa. Í Brunnen var okkur kynnt sérstaklega starfið með elstu börnunum sem um þær mundir unnu með bókstafi og orð á margvíslegan hátt. Brunnen hefur eigið útivistarsvæði þar sem rækta börnin grænmeti. Mimer er einn af fjórum leikskólum í Mattheus einingunni (alls 206 börn) og þar er leiðarljósið Öryggi, gleði, örvun. Mattheusarleikskólarnir eru opnir frá 06:30 18:30. Mimer er 4ra deilda leikskóli; á eldri deildunum eru 20 börn og 3 starfsmenn (2 leikskólakennarar og 1 ófaglærður) og á þeim yngri eru 15 börn og jafnmargir starfsmenn. Krafa starfsfólks er færri börn á deild. Í Mimer fengum við innsýn í starfið með yngstu börnunum. Á vormisseri höfðu þau unnið að risaeðluverkefni í anda Reggio Emilia og einnig hafði um nokkurt skeið verið í gangi þróunarverkefni í stærðfræði undir yfirskriftinni stór og lítill. Í Brunnen og Mimer er mikið lagt upp úr því að börnin geti valið um viðfangsefni, að þau fái tækifæri til þess að fást við það sem helst vekur áhuga þeirra og komi full eftirvæntingar í leikskólann dag hvern. Athygli vakti að leikskólanir voru ekki eins vel búnir og þeir sem við skoðuðum í Kaupmannahöfn. Ekki eru í gildi reglur um fermetrafjölda á barn og aðstaða fyrir starfsmenn er fremur léleg og líklega eru Svíar ekki jafn uppteknir af ergónómíu og Danir. Vistarverur barnanna voru ekki stórar leikstofur, heldur mörg smærri herbergi sem hvert um sig hafði ákveðnu hlutverki að gegna og tengdist vali barnanna á viðfangsefni. Í báðum leikskólunum fara öll börnin einu sinni í viku í vettvangsferð með nesti. Risaeðluverkefni yngstu barnanna í Mimer Listaskálinn í Mimer 15

Leikskólaeiningarnar eru í nánu samstarfi við grunnskólana í hverfinu. Unnið er markvisst að því að flutningur úr leik- í grunnskóla gangi snuðrulaust fyrir sig og að hann verði jákvæð og spennandi breyting fyrir barnið. Áður en barnið hættir í leikskólanum fylla foreldrar og starfsfólk leikskólans sameiginlega út samræmt upplýsingablað frá hverfisskrifstofunni og fylgir það barninu í grunnskólann. Leikskólakennarar fá 5 undirbúningstíma á viku, leiðbeinendur fá tvo. Líkt og víða í Stokkhólmi er erfitt að fá húsnæði fyrir leikskólastarfsemi í Efniviður rannsakaður í Brunnen Norrmalm og ekki er óalgengt að leikskólar deili útivistarsvæði með íbúum hverfisins eins og raunin er í leikskólanum Mimer. Leikskólar sem tilheyra sömu einingu funda reglulega og hafa samstarf og samvinnu um margt, s.s. faglegt starf, starfsmannamál, matráðir skólanna vinna saman, gera m.a. sameiginleg innkaup og sami matseðill er í boði hverju sinni í öllum skólunum. Einnig hafa skólanir samráð hvað varðar sumarlokanir, einn hefur opið en hinir loka í 4-5 vikur. Einu sinni í mánuði funda leikskólastjórar í hverfinu með yfirmanni sínum (barn- og ungdomschef) á borgarhlutaskrifstofunni. Sköpunarsmiðjan í Brunnen Fuglaverkefni í anda Reggio Emilia í Brunnen 16

Lyckeboa einkarekinn leikskóli Með lögum árið 1991 voru skapaðar aðstæður fyrir einkarekstur leikskóla. Á sama tíma fækkaði í leikskólum vegna 6 ára bekkjarins, auðvelt var að finna húsnæði til einkareksturs leikskóla og þeim fjölgaði. Lyckeboa opnaði árið 1994. Greiðslur til einkarekinna skóla fela í sér allan rekstrarkostnað, þ.m.t. leigu. Ein upphæð með 1-3 ára og önnur með 4-6 ára. Enginn stofnstyrkur. Lyckeboa merkir hamingjuhús og þar ræður gleðin ríkjum. Mikið sungið á hverjum degi og skilyrði að starfsfólkið sé létt í lund. Unnið samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia. Gríðarlega mikið af Pósthólf barnanna í Lyckeboa leikföngum og alls kyns dóti, ekki dæmigerðar leikstofur heldur mörg lítil herbergi sem hvert um sig gegnir ákveðnu hlutverki. Mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi og leikskólinn er ávallt fullmannaður fagfólki, sem þó fær ekki hærri laun en annars staðar heldur er því umbunað með ýmsu móti (fóru til London sl. ár). Ekki hikað við að segja upp fólki ef það stendur sig ekki og jafnan er bæði biðlisti eftir plássi og starfi á Lyckeboa (allt að 2ja ára biðlisti eftir plássi). Kokkabúningar fyrir hlutverkaleik Viltu hjálpa okkur að reima? Mjög frjálslegt andrúmsloft er á Lyckeboa og sveigjanleiki, t.d. hvað varðar barnafjölda. Tekið tillit til aðstæðna og hiklaust bætt við barni án mótmæla starfsfólks eða foreldra. Á elstu deildinni voru 22 börn og 3 kennarar. Leikskólastjóri kaupir aðstoð við fjármálin en tekur af fullum krafti þátt í starfinu með börnunum. Sérhver starfsmaður er ábyrgur fyrir ákveðnu verkefni, t.d. heimasíðu. Leikskólastjórinn lítur svo á að hún sé að selja sína hugmyndafræði og foreldrar eru viðskiptavinir hennar. Þeir koma ekki að ákvörðunum varðandi reksturinn eða starfsemina en eru þátttakendur og alltaf velkomnir í leikskólann, t.d. í hádegisverð með börnum og starfsfólki. Lokaorð 17

Hópurinn hafði bæði gagn og gaman af þessari ferð. Hún var mjög vel skipulögð og móttökur hvarvetna góðar. Við veltum fyrir okkur hvað við myndum vilja taka með okkur heim til Íslands. Hér á eftir eru nokkrir punktar, þó ekki tæmandi, um það sem helst vakti athygli okkar og yrðu að okkar mati til bóta fyrir leikskólastarf í Reykjavík. Ýmsir fróðlegir bæklingar, m.a. þeir sem fylgja hverju námssviði aðalnámskrár leikskóla í Kaupmannahöfn Úrræði um vistun fyrir öll börn frá 0 6 ára Færri börn á deild 12 14 börn 6 mánaða til 3ja ára og 18 22 börn frá 3ja til 6 ára Barneignarleyfi í 12 mánuði Samvinnu leikskóla um hugmyndarfræði, s.s. Mimer og Brunnen Skiptiborðin Hjól undir trip trap stólana Borð felld upp að vegg Koffortið góða í Galaxen Stórir vagnar til að sofa í Hengirúm á leiksvæðum Djúpar gluggakistur með leiksvæði undir Villt útileikskvæði með eldstæði líkt og í Ajax Hvert herbergi/rými skipulagt út frá notkun þess, t.d. skapandi starf í einu, hlutverkaleikurinn í öðru o.s.frv. líkt og í Mimer, Brunnen og Lykceboa Rennihurðir milli deilda þannig að hægt sé að opna vel á milli þeirra Færri börn á dagforeldri Meiri samvinna milli dagforeldra Dagforeldrar ráðnir af sveitarfélagi Rafræn innritun Gera tilraun með leikskóla eins og Mini Ajax þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Anne Brodersen & Bente Pedersen um hreyfiþroska ungra barna. 18