Nytjaplöntur á Íslandi 2013

Størrelse: px
Starte visningen fra side:

Download "Nytjaplöntur á Íslandi 2013"

Transkript

1 Nytjaplöntur á Íslandi 2013 Yrki, sem mælt er með til ræktunar í landbúnaði, garðrækt og landgræðslu Varieties recommended for use in Icelandic agriculture and land reclamation Útgefendi/Publisher: Landbúnaðarháskóli Íslands Ritstjóri: Þórdís Anna Kristjánsdóttir Mars 2013

2 Efnisyfirlit (Index) Túnrækt (Herbage plants)... 3 Garðflatir (Amenity grasses)... 6 Uppgræðsla (Land reclamation)... 7 Korn til þroska (Cereals)... 8 Grænfóður (Green fodder crops) Garðávextir (Potatoes and swedes) Ber (Berries) Iðnaðarplöntur (Industrial plants) Listi yfir kynbótafyrirtæki / eigendur (Breeders / owners of the cultivars)

3 Túnrækt (Herbage plants) Vallarfoxgras (Phleum pratense L.) Það er mjög gott fóðurgras og gefur mikla uppskeru í fyrri slætti en lakari endurvöxt en margar aðrar tegundir. Það er ágætlega svell- og kuldaþolið en þolir ekki eins vel og ýmsar aðrar tegundir að vera slegið snemma. Það er heldur ekki mjög þurrkþolið. Adda LbhÍ Sprettur vel fyrri hluta sumars, en lítið eftir fyrsta slátt. Engmo Gram. Norskt staðaryrki (Local cultivar). Vetrarþolið, en sprettur lítið eftir slátt. Grindstad TG Gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki, en vetrarþol ekki eins mikið. Jonatan SW Ágætlega vetrarþolið. Uppskerumikið og gefur viðunandi endurvöxt. Korpa LbhÍ Mjög vetrarþolið yrki. Sprettur vel fyrri hluta sumars, en lítið eftir fyrsta slátt. Lidar Gram. Gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki, en vetrarþol ekki eins mikið. Noreng Gram. Yrki fyrir N-Noreg. Uppskerumikið en ending hér á landi ekki eins góð og hjá bestu yrkjunum. Nuutti Bor. Uppskerumikið. Er í prófunum og hefur reynst vel. Rakel SW Uppskerumeira en önnur yrki og meiri endurvöxtur en hjá norðlægu yrkjunum. Vetrarþol ágætt. Snorri LbhÍ Afrakstur samnorænna kynbóta. Valdar plöntur héðan og úr nyrstu héruðum grannlandanna. Vetrarþolið og uppskerumikið. Switch SW Gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki, en vetrarþol ekki eins mikið. Tenho Bor. Er í prófunum og hefur reynst vel. Tuukka Bor. Hefur reynst ágætlega í tilraunum. Uula Bor. Er í prófunum og hefur reynst vel. Vega Gram. Uppskerumikið og gefur meiri endurvöxt en önnur vetrarþolin yrki. Túnvingull (Festuca rubra L.) Túnvingull er ekki gott fóðurgras og ætti ekki að nota í almennar sáðblöndur. Hins vegar getur hann átt rétt á sér þar sem hætta er á þurrkum. Gondolin DLFT Mjög lítið prófað hér á landi. Leik Gram. Getur verið aðgangshart í blöndu með vallarfoxgrasi. Mikill puntur. Reptans SW Gamalt yrki, þrautreynt. Rubin SW Gamalt yrki, þrautreynt. Vallarsveifgras (Poa pratensis L.) Vallarsveifgras er skriðult gras sem myndar þéttan grassvörð og lokar eyðum. Það hefur verið í mörgum grasfræblöndum fyrir tún á undanförnum áratugum og einnig berst villt vallar-sveifgras í túnin frá umhverfinu. Það er gott fóðurgras. Það gefur góðan endurvöxt og er ágætt fóður. Það er þó ekki eins lystugt og vallarfoxgras. Það er mjög harðgert. Fylking SW Lítill puntur, tiltölulega jöfn spretta allt sumarið. Knut Gram. Nýlegt yrki. Í prófun hér á landi. Kupol SW Nýtt yrki, sem á að leysa af Sobra. Er í prófun hér á landi. Lavang Gram. Mikill puntur, skríður snemma. Primo SW Gamalt yrki, þrautreynt. Sobra SW Gamalt yrki, uppskerumikið. 3

4 Beringspuntur (Deschampsia beringensis Hult.) Beringspuntur er með veikt rótarkerfi fyrstu árin og opinn svörð. Hann þolir illa beit og frostlyftingu. Hann hentar best í hreinrækt í sand- og mýrarjarðvegi og er mjög vetrarþolinn. Origin Norcoast LbhÍ Hálíngresi (Agrostis capillaris L.) Er sjaldan sáð í tún hér á landi en er algengt í gömlum íslenskum túnum. Það er fíngert gras og þétt og gefur ágætan endurvöxt. Það hefur ágætt vetrarþol en fóðurgildi er lakara en hjá t.d. vallarfoxgrasi. Leikvin Gram. Vetrarþol ekki alveg fullnægjandi. Nor Gram. Uppskerumikið af língresi að vera. Vetrarþol viðunandi. Háliðagras (Alopecurus pratensis L.) Háliðagras er harðgerð tegund, sem sprettur og skríður mjög snemma og þarf því að slá snemma. Það gefur góðan endurvöxt. Fram að þessu hefur einungis verið ókynbættur efniviður á markaði en nú eru í prófun kynbætt yrki. Alko BPG Lifir þokkalega og gefur ágæta uppskeru. Axhnoðapuntur (Dactylis glomerata) Hefur lítið verið notaður í túnrækt hér á landi. Hann fer snemma af stað á vorin og það þarf að slá hann snemma til að fá þokkalegt fóður. Hann gefur góðan endurvöxt, er þurrkþolinn en þolir svell og vorfrost ekki eins vel og vallarfoxgras. Hann er ágengur í samkeppni og hentar því best í hreinrækt. Apelsvoll Hattfjelldal Laban Gram. Gram. Gram. Vallarrýgresi (Lolium perenne L.) Vallarrýgresi er mjög breytileg tegund. Það er uppskerumikið og gott fóðurgras, sem má slá eða beita. Það er ekki vetrarþolið við íslenskar aðstæður, en snemmsprottið rýgresi getur hentað í sáðskipti við bestu skilyrði. Á undanförnum árum hafa þó komið fram yrki sem eru vetrarþolnari en þau sem áður voru á markaði. Ferlitna rýgresi er gæðameira en tvílitna. Birger (4n) SW Nokkuð reynt hérlendis. Gefur góða uppskeru og er tiltölulega vetrarþolið. Ivar (4n) Gram. Hefur reynst heldur betri en Birger. Er í prófun. Svea (2n) SW Mjög snemmsprottið og tiltölulega vetrarþolið. Trygve (4n) Gram. Uppskerumikill í prófunum, nokkuð vetrarþolið. Tetramax (4n) DLFT 2n=tvílitna, 4n=ferlitna. 4

5 Hávingull (Festuca pratensis Huds.) Hann hefur ekki verið mikið notaður í túnrækt hér á landi en er mikið notaður í Skandinavíu. Hentar vel til að slá tvisvar. Líklega ekki svellþolinn. Hávingull er heppilegur til ræktunar í blöndu með rauðsmára, vallarfoxgrasi eða öðrum grastegundum. Hann er ágætt fóðurgras. Ilmari Bor. Uppskerumikið. Er í prófunum. Inkeri Bor. Uppskerumeira en önnur yrki, sem hér hafa verið prófuð. Er í prófunum. Kasper SW Uppskerumikið og vetrarþolið yrki. Norild Gram. Norðlægt yrki. Uppskerumikið og vetrarþolið. Salten Gram. Gamalt yrki, þrautreynt. Uppskerumikið og vetrarþolið. Sandfax (Bromus inermis Leyss.) Fremur seint til eftir sáningu. Þurrkþolið og nokkuð uppskerumikið með þokkalegt fóðurgildi. Getur einnig hentað til uppgræðslu. Leif Gram. Er í prófunum. Hvítsmári (Trifolium repens L.) Hvítsmári hentar einkum í beitartún í blöndu með grasi. Hann er íslensk tegund og sést víða í túnum. Ný yrki sem eru uppskerumeiri en íslenski hvítsmárinn hafa komið á markað á undanförnum árum. Hvítsmári breiðir úr sér með jarðrenglum og á því auðvelt með að auka þekju sína árin eftir sáningu. Hann er ágæt fóðurjurt og gefur góðan endurvöxt. Ágætt vetrarþol. Litago Gram. Blaðstærri en Norstar og Snowy. Nokkuð gott vetrarþol. Norstar Gram. Hefur reynst vel í tilraunum. Snowy Gram. Nokkuð reynt yrki. Undrom SW Gamalt yrki, þrautreynt, en gefur heldur minni uppskeru en Norstar. Rauðsmári (Trifolium pratense L.) Hann sést víða á Íslandi sem slæðingur. Er ágæt fóðurjurt og gefur góðan endurvöxt. Hann er stærri planta en hvítsmári og með stólparót. Hann hefur ekki jarðrenglur og hefur því ekki sömu möguleika á að breiða úr sér og hvítsmárinn. Hann er ekki eins harðger og hvítsmári en þolir þurrk ágætlega. Rauðsmára er sáð í blöndu með grasi. Betty (4n) SW Mikið prófað. Ágætlega endingargott og uppskerumikið. Bjursele (2n) SW Mikið prófað. Ágætlega endingargott og uppskerumikið. Lars Gram. Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Lasse (4n) Gram. Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Lavine (4n) Gram. Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Lea (2n) Gram. Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Lone (4n) Gram. Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Torun (4n) SW Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. Yngve (2n) SW Nýlegt yrki, hefur komið vel út í tilraunum. 2n=tvílitna, 4n=ferlitna. 5

6 Hálíngresi (Agrostis capillaris L.) Garðflatir (Amenity grasses) Bardot Bar. Í golfflatir, ekki vetrarþolið. Nor Gram. Vallarsveifgras (Poa pratensis L.) Conni DLFT Þolið og gefur fallega flöt. Julia Inno. Miracle Inno. Í golfflatir, ekki vetrarþolið. Túnvingull (Festuca rubra var. commutata) Bargreen Center Olivia Bar. Inno. EuroG. Sauðvingull (Festuca ovina L. var. duriuscula) Sauðvingull myndar þétta gróðurmottu, sem bindur yfirborðið vel og hamlar frostlyftingu. Hentar vel í grasflatir, þar sem umhirða er lítil. Crystal DLFT Gefur þétta gróðurmottu. Er þurrkþolið og með vetrarþol yfir meðallagi. Vallarrýgresi (Lolium perenne L.) Vallarrýgresi er fljótt til og þekur vel. Í garðflatir er það notað með þolnum grastegundum til þess að fá fram þekju á fyrsta sumri. Hlutur þess má ekki vera mikill, því að það hverfur eftir einn til þrjá vetur og skilur þá eftir eyður. Einkum er stuðst við niðurstöður frá Noregi. Mondial AS Ronja SW Tekur flestum yrkjum fram árið eftir sáningu í Mið- og Norður-Noregi. 6

7 Uppgræðsla (Land reclamation) Við uppgræðslu þarf að velja tegundir og yrki með hliðsjón af aðstæðum og markmiði uppgræðslunnar. Svæði sem á að græða einkennast oft af frostlyftingu og næringarskorti og markmiðið er að binda yfirborðið. Sömu yrki geta líka hentað til ræktunar grasflata, þar sem ekki er búist við mikilli umhirðu. Ef óskað er eftir þekju samsumars má nota skammlífari tegundir og yrki úr túnræktar- og grasflatalista. Þau munu hopa fyrir innlendum gróðri. Túnvingull (Festuca rubra L.) Angela DLFT Ekki prófað á Íslandi. Center Inno. Ekki prófað á Íslandi. Cindy Inno. Ekki prófað á Íslandi. Frigg Gram. Uppskerulítið yrki, fremur gisið. Talið geta komið í stað Leik í Noregi. Ekki prófað á Íslandi. Koket AS Álitlegt skv. norskum tilraunum. Fremur uppskerumikið. Ekki prófað á Íslandi. Leik Gram. Öflugt yrki til uppgræðslu, en verður gisið þar sem frostlyfting er. Sámur LbhÍ Myndar góða þekju og hamlar frostlyftingu sæmilega. Wilma SW Ekki prófað á Íslandi. Vallarsveifgras (Poa pratensis L.) Fylking SW Harðgert og þurrkþolið og myndar þéttan svörð. Lavang Gram. Harðgert og þurrkþolið og myndar þéttan svörð. Beringspuntur (Deschampsia beringensis Hult.) Beringspuntur hefur reynst næstur melgresi í þoli á sandsvæðum. Hann er þurrk- og vetrarþolinn, en þolir frostlyftingu illa. Origin Norcoast LbhÍ Melgresi (Leymus arenarius L. Hochst.) Fræi er safnað af nokkrum staðarafbrigðum og notað til að hefta sandfok. Snarrótarpuntur (Deschampsia caespitosa L.) Snarrót er ekki eftirsóknarverð í tún. Hún getur hins vegar auðveldlega sáð sér inn í tún bænda frá vegköntum. Þess vegna ætti ekki að nota hana á láglendi og ekki á svæðum þar sem lítið er af henni. Ekki eru til viðurkennd yrki af snarrót. Fræ er tekið af staðarafbrigðum af ótilgreindum uppruna. Sauðvingull (Festuca ovina L. var. duriuscula) Sauðvingull myndar þétta gróðurmottu, sem bindur yfirborðið vel og hamlar frostlyftingu. Lítið bitinn er líður á sumarið. Sauðvingull hentar líka vel í grasflatir, þar sem umhirða er lítil. Quatro Inno. Fremur fljótt til og hamlar frostlyftingu vel. Ekki þolið við erfið skilyrði. Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis Donn ex Sims) Niturbindandi tegund sem getur orðið kröftug í rýru landi, harðger og vetrarþolin. Lúpína getur breytt gróðursamfélögum komist hún í þau. Ætti ekki að nota í grennd við þjóðgarða eða friðlýst svæði. Mela LbhÍ / Lr Óvalið íslenskt yrki. 7

8 Bygg (Hordeum vulgare L.) Korn til þroska (Cereals) Yrki af sexraðabyggi (6r) þroskast fyrr en yrki af tvíraðabyggi (2r) og nýta því vel stuttan vaxtartíma, en hættir til að tapa korni, brotna og leggjast. Brage (6r) Gram. Fljótþroska, nokkuð hávaxið, gefur góða uppskeru og er í flestu álitlegt. Veðurþoli er þó nokkuð ábótavant eins og hjá fleiri yrkjum af sama tagi. Elmeri (6r) Bor. Miðlungi fljótþroska með stórt korn og hefur gefið góða uppskeru í hinum betri árum. Í köldu ári hefur það reynst miður. Veðurþol er furðugott af sexraðayrki að vera. IsLómur (6r) LbhÍ Lágvaxið og strásterkt Miðlungi fljótþroska og heldur títunni ávallt. Hefur hvorki sést leggjast né heldur hefur það brotnað. Hefur jafnan skilað góðri uppskeru en kornið getur verið nokkuð smátt. Til þess gert að standa af sér öll veður fram á haust. Hentar á þunga jörð og sérstaklega norðanlands. IsSkúmur (6r) LbhÍ Lágvaxið og strásterkt. Miðlungi fljótþroska og heldur títunni ávallt. Hefur hvorki sést leggjast né heldur hefur það brotnað. Hefur jafnan skilað góðri uppskeru en kornið getur verið nokkuð smátt. Til þess gert að standa af sér öll veður fram á haust. Hentar á sandjörð og sérstaklega sunnanlands. Judit (6r) SW Fljótþroska, gefur góða uppskeru á frjósamri jörð en reynist miður á sandi. Getur farið illa í haustveðrum, sem gerir eftir að kornið er þroskað. Þá hefur stöngullinn brotnað þvert um hnéð. Judit á einkum heima norðanlands. Kunnari (6r) Bor. Miðlungi fljótþroska. Kunnari er ívið seinna til þroska en Judit og Tiril. Það hefur gefið mikla uppskeru í góðum árum og virðist ekki eins viðkvæmt í veðrum og sum önnur sexraðayrki. Pilvi (6r) SW Fljótþroska. Áberandi er að axið drúpir og ber þá hnakkann hæst. Pilvi hefur í heildina reynst vel og hefur staðið nokkuð vel í haustveðrum. Tiril (6r) Gram. Fljótþroska. Tiril er sagt arftaki Arve sem hér var notað árum saman og yrkin eru ekki ólík. Tiril hefur staðið sig misvel eftir árum. Sjúkdómsþol er til dæmis ekki gott og í votviðrum kemur það niður á útliti og uppskeru. Tiril er norrænt yrki og nýtur sín best á austanverðu Norðurlandi. Trym (6r) Gram. Miðlungi fljótþroska, hefur gefið afar góða uppskeru í góðum árum, en komið hafa þau ár að það er tæpast nógu fljótþroska. Veðurþolið með betra móti af sexraðayrki að vera. Wolmari (6r) Bor. Fljótþroska og uppskerumikið og reynist í heildina mjög vel. Veðurþolið er ekki til vansa. Á líklega helst heima norðanlands en getur líka gengið í uppsveitum syðra. Barbro (2r) SW Tiltölulega seinþroska. Barbro hefur reynst nokkuð vel sunnanlands en miður annars staðar. Yrkið er hávaxið af tvíraðabyggi að vera og getur gefið mikla uppskeru í góðum árum en stendur ekki haustveðrin af sér á sama hátt og Filippa. Filippa (2r) SW Tiltölulega seinþroska. Þolir súra jörð. Á best heima á framræstum mýrum sunnan til á landinu en hentar ekki norðanlands. Filippa ber stórt og fallegt korn og gefur oft ágæta uppskeru. Í haustrigningum hallast Filippa en brotnar ekki og yfirleitt tekst að skafa hana upp. IsKría (2r) LbhÍ Miðlungi fljótþroska. Kría hentar til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sexraðayrkin og þar er henni sáð með það í huga að láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tvíraðayrki sem þar er um að velja. Mitja (2r) SW Tiltölulega seinþroska. Yrkið minnir nokkuð á Filippu, en er þó ívið lægra á vöxt. Hefur staðið vel í haustveðrum og hentar til ræktunar syðst á landinu. Saana (2r) Bor. Seinþroska. Saana er einstaklega strásterkt og fallegt yrki og stendur vel langt fram eftir hausti. Saana þarf langan vaxtartíma en þolir líka haustveðrin flestum yrkjum betur. 8

9 Hafrar (Avena sativa L.) Hafrar eru mun seinni til þroska en bygg en gera minni kröfur til jarðvegs. Hafrar þola til að mynda þurrk betur en bygg. Þeir ná frekast þroska á sandjörð og geta gefið mikla uppskeru. Mörg og góð yrki eru í boði í grannlöndunum, einkum í Noregi, en þau eru lítið reynd hérlendis utan tilrauna. Aslak Bor. Fljótast þeirra hafrayrkja sem hér hafa verið reynd. Cilla SW Nokkuð fljótþroska, uppskerumikið, eina yrkið sem notað hefur verið í ræktun undanfarin ár. Gere Gram. Nýtt, fljótþroska yrki. Sameinaði best flýti og þroska í tilraunum Vorhveiti (Triticum aestivum L.) Vorhveiti þarf langt og hlýtt sumar eða allt að því mánuði lengri vaxtartíma en fljótþroska bygg við íslenskar aðstæður. Ekki má búast við að nái viðunandi þroska nema í allra bestu árum og í góðsveitum Anniina Bor. Fljótast til þroska í tilraunum Bastian Gram. Næst fljótast í tilraunum Vetrarhveiti (Triticum aestivum L.) Sáð í júlí ágúst. Hentar einungis þar sem vetrarveðrátta er mild og sumarið langt. Arktika Bor. Hefur aðeins verið eitt ár í tilraunum, en reyndist þá bera af öðru vetrarhveiti bæði að vetrarþoli og uppskeru. Björke Gram. Tiltölulega vetrarþolið og fljótþroska, meðaluppskera. Stava SW Miðlungi vetrarþolið, uppskerumikið. Vetrarrúgur (Secale cereale) Sáð í júlí ágúst. Mun vetrarþolnari en vetrarhveiti. Kaskelott SW Reynt í tilraunum á Korpu. Vetrarþol þar viðunandi og uppskera ágæt. Reetta Bor. Hefur verið eitt ár í tilraunum og reyndist prýðilega vetrarþolið. 9

10 Grænfóður (Green fodder crops) Grænfóðuryrkin hafa flest lítið verið reynd í innbyrðis samanburði, en að nokkru leyti er miðað við erlendar niðurstöður, einkum norskar. Sum hafa verið ræktuð hérlendis um árabil. Bygg (Hordeum vulgare L.) Edel (6r) Gram. Hávaxið, seint. Hafrar (Avena sativa L.) Sumaryrki vaxa hraðar en vetraryrki fyrri hluta sumars, en tréna þegar kemur fram á haustið. Sumaryrki standa sig betur en vetraryrki í samkeppni við illgresi. Sumaryrki þarf að slá snemma en vetraryrki mega bíða sláttar fram eftir sumri. Sumaryrki: Belinda SW Miðlungi seint. Vetraryrki: Jalna Mon. Mjög seint til þroska. Vetrarrúgur (Secale cereale L.) Sáð í júlí ágúst, notað til beitar í maí júní. Riihi Bor. Vetrarþolið, hávaxið, sprettur ört snemma vors. Einært rýgresi (Lolium multiflorum Lam.) Sumaryrki (var. westerwoldicum): Barspectra Bar. Ferlitna. Condado EuroG. Ferlitna. Vetraryrki (var. italicum): Barmultra Bar. Ferlitna. Blaðríkt, en fremur seint. Danergo DLFT Ferlitna. EF 486 Dasas DLFT Tvílitna. Fóðurhreðka (Raphanus sativus L. var. oleiferus) Siletina GSSG Siletta Nova ASP 10

11 Fóðurmergkál (Brassica oleracea L. var. acephala) Grüner Angeliter ASP Maris Kestrel PBI Marrow Stem SISL Fóðurrepja (Brassica napus L. var. oleifera DC) Vetraryrki: Barcoli Bar. Delta SW Hobson AS Blaðríkt. Hættir lítið til að blómstra. Fóðurnepja (Brassica rapa L. var. oleifera DC) Vetraryrki: Largo SW Flækjur (Vicia sativa L.) Eingöngu ræktaðar í blöndu með höfrum. Nitra Bar. Ertur (Pisum sativum L.) Eingöngu ræktaðar í blöndu með höfrum. Bohatyr Timo Oseva SW Einær fóðurlúpína (Lupinus spp.) L. luteus (gul) Juno L. angustifolius (blá) Sonet Poz. Poz. 11

12 Garðávextir (Potatoes and swedes) Kartöflur (Solanum tuberosum) Annabelle HZPC Þykir bragðgóð. Aflöng með grunn augu. Margar kartöflur undir grasi. Belana EP Grunn augu, margar kartöflur undan grasi. Tiltölulega hátt þurrefni. Gullauga Í innlendri stofnrækt. Helga (Rautt Gullauga) Í innlendri stofnrækt. Premiere Í innlendri stofnrækt. Rauðar íslenskar Í innlendri stofnrækt. Gulrófur (Brassica napus L. rapifera Metzg.) Maríubakkarófa LbhÍ Sandvíkurrófa HJ Vige Log Jarðarber (Fragaria x ananassa) Ber (Berries) Útiræktun jarðarberja er möguleg hér á völdum stöðum. Gróðurreitir og akríldúkur flýta fyrir uppskeru. Yfirbreiðsla yfir blómgunartíma veldur lélegri frjóvgun. Yrkjunum er raðað eftir því hve fljótt þau þroska ber Þau fyrstu frá um 20/7 20/8. Hin seinni frá því um 30/7- og fram í frost. Glima Norskt Snemmþroska harðgert yrki. Planta fremur smá. Ber miðlungsstór, vel löguð, bragðgóð með súrum keim. Þroskar ber frá um 20/7. Uppskerumikil allt að 500 gr. á plöntu. Jonsok Norskt Harðgert yrki meðalsnemmþroska en seinna en Glima. Þolið gegn mjöldögg og grámyglu. Ber meðalstór. Zephyr Danskt Harðgert yrki, litlar plöntur. Fremur snemmþroska. Ber meðalstór til stór með súrum keim. Viðkvæm fyrir mjöldögg. Korona Hollenskt Stórar uppréttar plöntur. Seinþroska. Þroskast illa í köldum árum. Ber mjög stór og vel löguð, sæt og bragðmikil. Plöntum hættir við kali. Bounty Kanadískt Plöntur stórar. Hefur reynst vel í útiræktun í Eyjafirði. Frekar seinþroska. Berin eru stór, vel löguð, sæt og dökkrauð. Rifsber (Ribes pallidum og Ribes rubrum) Rifsber eru samheiti á bæði tegundum og tegundablendingum. Rauð hollensk, R pallidum Gamalreynt yrki sem hefur verið í ræktun á Íslandi frá a.m.k. um Þroskar ber vanalega um og eftir mánaðarmót ágúst/september. Uppskera getur brugðist norðanlands í köldum sumrum. Hvít hollensk, R pallidum Með gulhvít ber og sætari á bragðið en Rauð Hollensk. Harðgert á Suðurlandi og gefur ágæta uppskeru í skjóli. Jonkheer van Tets, R. rubrum Hollenskt yrki. Harðgert á Suðurlandi og gefur góða uppskeru á skjólsælum stöðum. Gaf álíka eða betri uppskeru og Rauð rollensk í tilraunum á Möðruvöllum í Eyjafirði en kól meira. Langir berjaklasar og stór ber. 12

13 Sólber (Ribes nigrum) Fjöldi gamalla og nýrra yrkja af sólberjum gefur kost á að velja yrki eftir þroskatíma berja, bragði, stærð og hentugleika til notkunar. Bragð og þéttleiki sólberja er mjög mismunandi og henta því ýmist til sultugerðar, frystingar eða að vera etin beint af runnanum. Þroskatími er frá lokum júlí til loka ágúst. Melalahti Finnskt Upprétt og sterklegt vaxtarlag. Mjög harðgert og snemmþroska yrki. Mikil og góð reynsla. Getur kalið í kaldari sveitum og köldum árum norðanlands og austan. Berjaklasar þroskast missnemma á greinum en þeir fyrstu eru mjög snemmþroska, hefur því nokkuð langan uppskerutíma. Ber góð til neyslu beint af runna. Hentar ekki til berjaframleiðslu, en vel í heimilisgarða, útivistarskóga og á skólalóðir. Jänkisjärvi Finnskt Upprétt vaxtarlag. Snemmþroska, mjög harðgert yrki sem hentar vel norðanlands og austan en er hætt við að lifna snemma og lenda í seinum vorhretum sunnanlands. Mikil uppskera og stór ber. Sunderbyn II Sænskt Snemmþroska og harðgert yrki, ónæmt fyrir mjöldögg. Líklega harðgerasta yrki fyrir kaldari sveitir norðanlands og austan en er hætt við að lifna snemma og lenda í seinum vorhretum sunnanlands. Uppskera nokkuð mikil. Ber frekar smá. Polar Dafo Runni uppréttur. Hefur reynst öruggur á höfuðborgarsvæðinu. Ónæmur fyrir mjöldögg og blóm þola næturfrost. Meðalstórir klasar með stórum berjum sem þroskast snemma og jafnt. Mikil uppskera. Berin bragðdauf en henta til sultugerðar og stórframleiðslu. Nikkala XI Sænskt Mjög harðgert yrki en runninn er nær jarðlægur, greinar þarfnast uppbindingar. Mikil og stór ber. Gefur mjög mikla uppskeru en þroskar nokkuð seint. Uppskerumest sólberjayrkja á Möðruvöllum í Eyjafirði. Öjebyn Sænskt Runni uppréttur en greinar leggjast nokkuð mikið niður sérstaklega í niturríkum jarðvegi. Ónæmt fyrir mjöldögg. Getur kalið í kaldari sveitum og köldum árum norðanlands og austan. Blómgast seint og þroskar ber jafnt en fremur seint. Ber stór, bragðmikil og góð. Hentar vel í heimilisgarða. Storklas Sænskt Var kynnt sem endurbætt yrki af Öjebyn í Svíþjóð. Runni uppréttari en Öjebyn en greinar leggjast undan þegar berin þroskast. Ónæmur fyrir mjöldögg. Ber mjög stór en þroskast nokkuð seint. Berin eru braggóð, nokkuð súr og með þykku hýði, henta vel til frystingar og sultugerðar. Góð reynsla á höfuðborgarsvæðinu. Stikilsber (Ribes uva-crispa) Þroska ber nokkru síðar en rifs, oft ekki fyrr en upp úr miðjum september. Ná ekki þroska í öllum árum. Þau yrki sem ræktuð eru hérlendis eru blendingar milli amerísks stikilsbers (Ribes hirtellum) og evrópsks (Ribes uva-crispa) Hinnomäki gul Einnig kallað Hinnonmäen Keltainen. Þroskuð ber gulgræn. Þolinn gegn mjöldögg. Ber gulgræn með þunnu hýði. Sæt og góð fersk. Lepaan Punainen Uppréttur og nokkuð hávaxinn. Nær árviss og mikil uppskera sunnan- og vestanlands. Þolinn geng mjöldögg. Stór brúnrauð ber. K. F. Packalen Ber gulgræn til græn. Góð uppskera á höfuðborgarsvæðinu. 13

14 Olíurepja (Brassica napus L. var. olifeira DC) Iðnaðarplöntur (Industrial plants) Vetraryrki: Banjo SW Vetrarþolið yrki af repju að vera, en ekki ýkja fljótþroska. Galileo SW Ekki alveg eins vetrarþolið og Banjo en ívið fljótari til þroska. Olíunepja (Brassica rapa L. var. olifeira DC) Vorsáð olíunepja þarf ámóta langan vaxtartíma og vorhveiti. Því skal ekki hvatt til þeirrar ræktunar. En vilji menn reyna, þá eru eftirfarandi yrki líklegust. Sumaryrki: Eos Bor. Hefur ekki verið prófað í tilraunum hér á landi. Juliet Bor. Hefur ekki verið prófað í tilraunum hér á landi. Vetraryrki: Largo SW Vetrarþolnari en repjan og fljótari til þroska. Uppskeruvonir þó ekki eins miklar. 14

15 AS ASP Bar. Bor. BPG Listi yfir kynbótafyrirtæki / eigendur List of breeders / owners of the cultivars Advanta Seeds BV, P.O. Box 1, 4410 AA Rilland, Holland. Asmus Soren Petersen, Postfach 6, Langballig, Þýskaland. Barenbrug Holland B.V., P.O. Box 1338, 6501 BH Nijmegen, Holland. Boreal Plant Breeding, Myllytie 10, Jokioinen, Finnland. Bayerische Pflanzenzucht Gesellschaft EG & Co. KG Elisabethstrasse 38, Munchen, Þýskaland. Dafo Dansk Forskning, Udkærsvej 15, Skejby, DK 8200, Århus N. DLFT EP EuroG. Gram. GSSG HJ HZPC Inno. Kraj. Log Lr Mon. Nick. Oseva PBI Poz. LbhÍ SISL SW TG DLF-Trifolium A/S, P.O. Box 19, Højerupvej 31, 4660 Store Heddinge, Danmörk. Europlant Pflanzenzucht GmbH, P.O. Box 1380, Lüneburg 21303, Þýskaland. Euro Grass B.V., P.O. Box 26, 6590 AA Gennep, Holland. Graminor AS, Björke Forsøksgård, N-2344 Ilseng, Noregur. G. Schneider Saatzucht GmbH, Postfach 6, Grundhof, Þýskaland. Hannes Jóhannsson, Stóru-Sandvík, 801 Selfoss, Ísland. HZPC Holland B.V., Edisonweg 5, 8501 XG Joure, P.O.Box 88, 8500 AB Joure, Holland Innoseeds bv, c/o Højerupvej 31, DK 4660 Store Heddinge, Danmörk Instytut Krajowych Wlokien Naturalnych, ul. Wojska Polskiego 71b, Poznan, Pólland. LOG, Postbox 141, Ökern, N-0580 Oslo, Noregur. Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 850 Hella, Ísland. Monsanto Crop Sciences Denmark A/S, Postboks 659, DK-2200 København, Danmörk. Nickerson Seeds Ltd, Joseph Nickerson Research Centre, Rothwell, Lincolnshire, LN7 6DT, England. Oseva UNI a.s., Chocen Na bile 1231, Chocen, Tékkland. PBI Cambridge Ltd, Maris Lane, Trumpington, Cambridge, CB2 2LQ, England. Poznanska Hodowla Roslin Sp.zoo, z/s w Tulcach 250 B, ul. Kasztanowa 5, , Tulce, Pólland. Landbúnaðarháskóli Íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík, Ísland. Sharpe s International Seeds Ltd, Boston Road, Sleaford, Lincs., NG34 7HA, England. Svalöf Weibull AB, S Svalöv, Svíþjóð. Tollef Grindstad,1890 Rakkestad, Noregur. 15

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser Spil og leg 14 Læsebog side 40 41 Opgavebog side 68 Tegund: Samtalsæfing Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða sem snýr að tilfinningum, persónueinkennum og útliti. Undirbúningur: Prenta út opgaveblad

Læs mere

Haustfundur Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands

Haustfundur Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands Haustfundur 2011 Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands Rósir af pöntunarlista Rósaklúbbsins Haustið 2011 Hér á eftir er lýsing á nokkrum rósum í boði haustið 2011. Garðyrkjufélagið mun sérpanta fyrir klúbbfélaga

Læs mere

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými. Notkun FHF gólfhitagrindin er notuð til að stjórna vatnsrennsli í gólfhitakerfum. Hvert rör í kerfinu er tengt gólfhitagrindinni sem gerir kleift að stjórna vatnsrennsli í hverri rás og hita í hverju rými

Læs mere

Samanburður á runnaklónum fyrir skjólbelti: Fyrstu niðurstöður úr Yndisgróðursverkefninu

Samanburður á runnaklónum fyrir skjólbelti: Fyrstu niðurstöður úr Yndisgróðursverkefninu Samanburður á runnaklónum fyrir skjólbelti: Fyrstu niðurstöður úr Yndisgróðursverkefninu Samson Bjarnar Harðarson Landbúnaðarháskóli Íslands Inngangur Skjólbeltarækt á sér orðið tæplega aldargamla sögu

Læs mere

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir: . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014, 360/2016 og 666/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Frágangur handlista Í grein í byggingarreglugerð segir: Handlistar

Læs mere

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju: Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: tengdan lífsstíl um neyslu ungs fólks á Norðurlöndum um ofnotkun á hreinlætisvörum og orku Hugmyndir að kveikju: Umræður um neyslu ungs fólks í dag. Fjallað um myndina

Læs mere

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Dyrebingo. Önnur útfærsla Opgaveblad 2A Opgaveblad 2C Dyr i Danmarks natur Læsebog side 10 11 Opgavebog side 19 Tegund: Bingó með myndaspjöldum Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða tengdan dýrum. Undirbúningur: Prenta út

Læs mere

Kökur, Flekar,Lengjur

Kökur, Flekar,Lengjur Kökur, Flekar,Lengjur Qimiq vörurnar eru unnar úr úrvals Austurísku hráefni. Q003301 Qimiq Profi Whip 1 kg (12) Q000114 Qimiq Base 1 kg (12) Q000115 Qimiq Sauce base 1 kg (12) Qimiq Whip Notið QimiQ Whip

Læs mere

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 START Spil og leg 1 Spil og leg 1 Hvem er jeg? Hvad hedder du? Læsebog side 3 Opgavebog side Tegund: Samtals- og hreyfileikur Form: Hópleikur Markmið: Að læra að kynna sig. Undirbúningur: Finna bolta eða

Læs mere

Fóðurþarfir ungneyta til kjötframleiðslu Þóroddur Sveinsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Möðruvöllum

Fóðurþarfir ungneyta til kjötframleiðslu Þóroddur Sveinsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Möðruvöllum Fóðurþarfir ungneyta til kjötframleiðslu Þóroddur Sveinsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Möðruvöllum Freyr 98(9) 11-17. Inngangur Nautakjötsframleiðsla á Íslandi er mest stunduð sem hliðarbúgrein

Læs mere

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO MÁLNOTKUNARÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Efnisyfirlit Messing, nýsilfur, kopar, ál...3 Silfur...3 Blý...3 Tinklumpar...3 Tinþráður...4 Suðuteinar...4 Rör...4 Silfurslaglóð...4 Flúx...5 Teinar...5 Slípimassi,

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Gangar og anddyri Í grein í byggingarreglugerð segir: Meginreglur: Eftirfarandi

Læs mere

komudagur 21-1- 2 0 f2

komudagur 21-1- 2 0 f2 7W O s s u e i k (. íé T ) Erindim Þ M /lo O S komudagur 21-1- 2 0 f2 MINNISBLAÐ TIL EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTANEFNDAR -tilla g a að nýrri 9. mgr. 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari

Læs mere

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Fylgiseðill Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til

Læs mere

Samanburður á alíslenskum, Angus íslenskum og Limósín íslenskum nautgripum. I Át, vöxtur og fóðurnýting

Samanburður á alíslenskum, Angus íslenskum og Limósín íslenskum nautgripum. I Át, vöxtur og fóðurnýting RÁÐUNAUTAFUNDUR 2 Samanburður á alíslenskum, Angus íslenskum og Limósín íslenskum nautgripum. I Át, vöxtur og fóðurnýting Þóroddur Sveinsson Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Möðruvöllum og Laufey Bjarnadóttir

Læs mere

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 SMART Spil og leg 1 Spil og leg 1 Tallene Tæl til hundrede Læsebog side 7 Opgavebog side 11 Tegund: Hermileikur Form: Hópleikur Markmið: Hlusta og einbeita sér. Að æfa tugina. Undirbúningur: 1. Nemendur

Læs mere

Vejledning om kurser og eksamen for frølaboranter

Vejledning om kurser og eksamen for frølaboranter Vejledning om kurser og eksamen for frølaboranter 1. Regelgrundlag Kravene til kurser og eksamen for frølaboranter er anført i følgende bekendtgørelser: Sædekornsbekendtgørelsen Markfrøbekendtgørelsen

Læs mere

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál]

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um félagslegt öryggi. (Lagt

Læs mere

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur II. Úrkoma og úrkomutíðni

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur II. Úrkoma og úrkomutíðni Greinargerð 03010 Trausti Jónsson Langtímasveiflur II Úrkoma og úrkomutíðni VÍ-ÚR10 Reykjavík Mars 2003 Úrkoma og úrkomutíðni Inngangur Hér er fjallað um úrkomumælingar á Íslandi með áherslu á fáeinar

Læs mere

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO SAMTALSÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur Nikótín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Alltaf

Læs mere

Jöfn umgengni í framkvæmd

Jöfn umgengni í framkvæmd Jöfn umgengni í framkvæmd Helga Sigmundsdóttir Hrefna Friðriksdóttir Lagadeild Ritstjóri: Kristín Benediktsdóttir Rannsóknir í félagsvísindum XIV. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2013 Reykjavík: Félagsvísindastofnun

Læs mere

Plantedirektoratet. Statistik. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri

Plantedirektoratet. Statistik. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratet Statistik 2003 Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratets Statistik 2003 Indholdsfortegnelse: 1. Frø og sædekorn 2. Foder- og gødningsstoffer 3. Planter og plantesundhed

Læs mere

Statistik 2007. Plantedirektoratets statistik for 2007. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratet

Statistik 2007. Plantedirektoratets statistik for 2007. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratet Statistik 2007 Plantedirektoratets statistik for 2007 Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratet Kolofon Statistik 2007 Plantedirektoratets statistik for 2007 Denne publikation er

Læs mere

heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT

heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT NÝ heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT 301 BLANCO 0401-G42Y 305 EGGHVIT 0502-Y 309 EGGESKALL S 0505-Y 313 MOHAIR 1104-Y24R «Draga verður úr fjölda þeirra einstaklinga sem þróa með sér

Læs mere

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0)

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) NAME 1.0 Handbók The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) Åse Brandt Charlotte Löfqvist John Nilsson Kersti Samuelsson Tuula Hurnasti Inga Jónsdóttir Anna-Liisa Salminen Terje Sund Susanne Iwarsson

Læs mere

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands.

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. S 5-4 1 S 5-4 Stjórnartíðindi C-deild, Nr. 19/1975 AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. Með orðsendingaskiptum í Reykjavík í dag var

Læs mere

MEDDELELSER FRA SORTSAFPRØVNINGEN The Danish Gazette for Plant Varieties. OFFICIEL SORTSLISTE The Official List of Varieties

MEDDELELSER FRA SORTSAFPRØVNINGEN The Danish Gazette for Plant Varieties. OFFICIEL SORTSLISTE The Official List of Varieties MEDDELELSER FRA SORTSAFPRØVNINGEN The Danish Gazette for Plant Varieties Information om plantenyhedsbeskyttelse og sortslisteoptagelse Årgang 27 April 2008 Særnummer OFFICIEL SORTSLISTE The Official List

Læs mere

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi Endurbætt útgáfa af skýrslu nr. LV-2015-089 Skýrsla nr. LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur.

Læs mere

- kennaraleiðbeiningar

- kennaraleiðbeiningar - kennaraleiðbeiningar María Una Óladóttir Kennsluleiðbeiningar með kennsluefninu ord til at starte med! Verkefni 1 - Að nemendur læri að kynna sig og fjölskyldumeðlimi. Nemendur teikna í rammann eða koma

Læs mere

sþ. 52. Tillaga til þingsályktunar [52. mál]

sþ. 52. Tillaga til þingsályktunar [52. mál] sþ. 52. Tillaga til þingsályktunar [52. mál] um mótmæli gegn kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Dounreay. Flm.: Hjörleifur Guttormsson, Kristín Einarsdóttir, Árni Gunnarsson, Júlíus Sólnes, Páll Pétursson,

Læs mere

Framfærsluskyldur foreldra Meðlagskerfi Norðurlanda

Framfærsluskyldur foreldra Meðlagskerfi Norðurlanda Meðlagskerfi Norðurlanda Guðný Björk Eydal Hrefna Friðriksdóttir Félagsráðgjafardeild Ritstjóri: Halldór S. Guðmundsson Rannsóknir í félagsvísindum XI. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2010 Ritrýnd grein

Læs mere

Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/ BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir

Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/ BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir Leyfileg mörk neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 19/1940 - BA-ritgerð í lögfræði - Kristjana Pálsdóttir Lagadeild Félagsvísindasvið Umsjónarkennari: Kjartan Ólafsson Júní 2013 Kristjana Pálsdóttir

Læs mere

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi

Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi Hugvísindasvið Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi 1872-1936 Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði Ómar Þór Óskarsson Maí 2014 1 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Sagnfræði Frumkvöðlar í ferðaþjónustu á Íslandi

Læs mere

Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun

Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun Möðruvellir í Hörgárdal Fornleifakönnun Orri Vésteinsson Fornleifastofnun Íslands FS153-98071 Reykjavík 2001 Fornleifastofnun Íslands 2001. Mynd á forsíðu: Möðruvellir 1836, e. Auguste Mayer. 2 Efnisyfirlit

Læs mere

Menningarminjar í Bláskógabyggð

Menningarminjar í Bláskógabyggð Menningarminjar í Bláskógabyggð Svæðisskráning fornleifa Kristjana Vilhjálmsdóttir Fornleifastofnun Íslands FS-584-15221 Reykjavík 2015 2015 FORNLEIFASTOFNUN ÍSLANDS SES BÁRUGÖTU 3 101 REYKJAVÍK SÍMI:

Læs mere

1. FRØ OG SÆDEKORN... 5 2. FODER- OG GØDNINGSSTOFFER... 28 3. PLANTER OG PLANTESUNDHED... 39 4. MILJØ... 54 5. EU-LANDBRUGSORDNINGER...

1. FRØ OG SÆDEKORN... 5 2. FODER- OG GØDNINGSSTOFFER... 28 3. PLANTER OG PLANTESUNDHED... 39 4. MILJØ... 54 5. EU-LANDBRUGSORDNINGER... Statistik 2005 INDHOLDSFORTEGNELSE 1. FRØ OG SÆDEKORN... 5 2. FODER- OG GØDNINGSSTOFFER... 28 3. PLANTER OG PLANTESUNDHED... 39 4. MILJØ... 54 5. EU-LANDBRUGSORDNINGER... 58 6. ØKOLOGI... 64 7. KONTROLAKTIVITET

Læs mere

Fornleifar í landi Nesjavalla og Ölfusvatns

Fornleifar í landi Nesjavalla og Ölfusvatns Fornleifaskráning á Hengilssvæðinu II: Fornleifar í landi Nesjavalla og Ölfusvatns Orri Vésteinsson Árbæjarsafn Fornleifastofnun Íslands FS036-97012 Reykjavík 1997 2 Fornleifaskráning á Hengilssvæðinu

Læs mere

Skal vi snakke sammen?

Skal vi snakke sammen? Skal vi snakke sammen? Kennsluefni í dönsku fyrir nemendur á miðstigi Katrín Hallgrímsdóttir Lokaverkefni B.Ed.-prófs Kennaradeild Skal vi snakke sammen? Kennsluefni í dönsku fyrir nemendur á miðstigi

Læs mere

Áveiturnar miklu á Skeið og Flóa

Áveiturnar miklu á Skeið og Flóa HELGI SKÚLI KJARTANSSON Áveiturnar miklu á Skeið og Flóa Dæmi um umdeilanlega opinbera fjárfestingu [Úr Skírni 162. árg., 2. hefti (haust 1988), bls. 330 360.] Á HYGGJUR af offjárfestingu vanhugsaðri fjárfestingu,

Læs mere

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du?

Opgavebog. Jeg hedder Ida. Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Opgavebog Jeg hedder Ida Hej, jeg hedder Line, hvad hedder du? Höfundur: Katrín Hallgrímsdóttir 2 Opgave oversigt OPGAVE OVERSIGT 3 OPGAVE DEL 1 5 OPGAVE 1A AT MØDE NYE PERSONER 5 OPGAVE 1B - HVAD ER MINE

Læs mere

Plantedirektoratet. Statistik 2004. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri

Plantedirektoratet. Statistik 2004. Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri Plantedirektoratet Statistik 2004 Ministeriet for Fødevarer, Landbrug og Fiskeri 1 Indhold 1. FRØ OG SÆDEKORN... 5 2. FODER- OG GØDNINGSSTOFFER... 30 3. PLANTER OG PLANTESUNDHED...44 4. MILJØ... 57 5.

Læs mere

Gagnkvæmnisskilyrðið við skuldajöfnuð

Gagnkvæmnisskilyrðið við skuldajöfnuð Gagnkvæmnisskilyrðið við skuldajöfnuð Innan skipta og utan BA-ritgerð í lögfræði Steinunn Pálmadóttir Lagadeild Félagsvísindasvið Umsjónarkennari: Heiðar Ásberg Atlason Júní 2013 Steinunn Pálmadóttir Gagnkvæmnisskilyrðið

Læs mere

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum BA ritgerð Félagsráðgjöf Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum Hrafnhildur Björg Gunnlaugsdóttir Sigurveig H. Sigurðardóttir Sigrún Ingvarsdóttir Janúar 2016 Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 6.4.2 6.4.2. gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Inngangsdyr / útidyr og svala /garðdyr Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Í grein 6.4.2 í byggingarreglugerð

Læs mere

Program Nordiske Politimesterskaber I håndbold

Program Nordiske Politimesterskaber I håndbold Program Nordiske Politimesterskaber I håndbold Ísland 21. 24. maí 2009 1 Ágætu norrænu starfsfélagar velkomnir til Íslands. Þetta er í þriðja skipti sem norðurlandamót í handknattleik er haldið á Íslandi.

Læs mere

1. mgr gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif

1. mgr gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif Meistararitgerð í lögfræði 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Inntak og varnaðaráhrif Emil Sigurðsson Leiðbeinandi: Jón H.B. Snorrason Júní 2014 ÚTDRÁTTUR Inntak 1. mgr. 106. gr. hgl.

Læs mere

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk

Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins. Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk Reykjavík 09. Febrúar 2012 Fyrirspurnir vegna hugmyndasamkeppni um umhverfi Norrænahússins Spørgsmål vedrørende idékonkurrence om Nordens Hus omgivelser oversat til Dansk Nr. 1 Alle spørgsmål er oversat

Læs mere

Saga ferðaþjónustu á Íslandi. Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR

Saga ferðaþjónustu á Íslandi. Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR Saga ferðaþjónustu á Íslandi Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson ÞAÐ ER KOMINN GESTUR það er kominn gestur Sigurveig Jónsdóttir Helga Guðrún Johnson það er kominn gestur Saga ferðaþjónustu á Íslandi

Læs mere