Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desmópressínasetat

Størrelse: px
Starte visningen fra side:

Download "Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desmópressínasetat"

Transkript

1 Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins MINIRIN nefúði, lausn 10 míkróg/skammti Desmópressínasetat Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má gefa það öðrum. Það getur valdið þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að ræða. Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4. Í fylgiseðlinum eru eftirfarandi kaflar: 1. Upplýsingar um MINIRIN og við hverju það er notað 2. Áður en byrjað er að nota MINIRIN 3. Hvernig nota á MINIRIN 4. Hugsanlegar aukaverkanir 5. Hvernig geyma á MINIRIN 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar 1. Upplýsingar um MINIRIN nefúða og við hverju það er notað MINIRIN nefúði er lausn til þess að úða í nef. MINIRIN nefúði dregur úr þvagframleiðslu. Nota má MINIRIN nefúða: við flóðmigu til þess að kanna hæfni nýrna til að þétta þvag. 2. Áður en byrjað er að nota MINIRIN Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð. Ekki má nota MINIRIN: við mikla vanabundna vökvaneyslu eða vökvaneyslu (ofþorsta)af geðrænum toga ef þú ert með hjartasjúkdóm eða annan sjúkdóm þar sem þvagræsilyf (vatnslosandi lyf) eru notuð ef þú ert með nýrnasjúkdóm ef þú hefur lága natríumþéttni (saltinnihald) í blóði ef þú hefur of mikið af hormóni sem minnkar þvagframleiðslu ef um er að ræða ofnæmi fyrir desmópressíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins (talin upp í kafla 6). Varnaðarorð og varúðarreglur Hafðu samband við lækninn eða lyfjafræðing áður en þú notar MINIRIN. Þú færð MINIRIN sem nefúða aðeins ef þú getur ekki notað lyf til inntöku. 1

2 Þegar MINIRIN nefúði er notaður til þess að kanna hæfni nýrna til að þétta þvag á að takmarka vökvaneyslu við mest ½ lítra til að slökkva þorsta á tímabilinu 1 klst. fyrir þar til 8 klst. eftir notkun MINIRIN nefúða. Fylgst verður með vökvaneyslu. Rannsóknir á hæfni nýrna til að þétta þvag hjá börnum yngri en 1 árs skulu einungis gerðar af læknum með sérfræðiþekkingu á þessu sviði. Við meðferð flóðmigu er hætta á að natríumþéttni (saltinnihald) í blóði fari niður fyrir eðlileg mörk, sem er alvarleg aukaverkun. Sjá kafla 4. Við merki um vökvasöfnun í líkamanum á að hætta meðferð og hafa samband við lækninn. Einkenni vökvasöfnunar eru höfuðverkur, ógleði, uppköst, þyngdaraukning og í alvarlegum tilvikum krampar, og meðvitundarleysi getur komið fram. MINIRIN nefúða á að nota með varúð: hjá mjög ungum sjúklingum og öldruðum þegar natríumþéttni í blóði er lág (nálægt neðri mörkum eðlilegra gilda) þegar hætta er á auknum innankúpuþrýstingi hjá sjúklingum með truflanir á vökva og/eða blóðsaltbúskap (t.d. við sýkingar, hita eða bólgur í maga og þörmum). Blóðsaltajafnvægi á að rannsaka með blóðprófi á hálfs árs fresti hjá sjúklingum sem nota MINIRIN nefúða. Notkun annarra lyfja Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að verða notuð. Sérstaklega er mikilvægt að láta skal lækninn vita ef þú notar lyf við eftirtöldum sjúkdómum: Þunglyndi (þríhringlaga þunglyndislyf, SSRI) Geðrænum vandamálum (klórprómazín) Flogaveiki (karbamazepín) Sykursýki (lyf af súlfonýlúreaflokki, sérstaklega chlorpropamid) Verkjum (NSAID). Notkun MINIRIN með mat eða drykk Takmarka skal vökvaneyslu eins og hægt er eftir notkun MINIRIN nefúða. Meðganga og brjóstagjöf Við meðgöngu, brjóstagjöf, grun um þungun eða ef þungun er fyrirhuguð skal leita ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en lyfið er notað. Meðganga: MINIRIN nefúða má aðeins nota samkvæmt ráðleggingum læknisins. Brjóstagjöf: Konur með barn á brjósti mega nota MINIRIN nefúða. Akstur og notkun véla MINIRIN nefúði hefur engin áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. 2

3 MINIRIN inniheldur benzalkonklóríð MINIRIN nefúði inniheldur rotvarnarefnið benzalkonklóríð og getur það valdið öndunarerfiðleikum. 3. Hvernig nota á MINIRIN Notið lyfið alltaf eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Skammtar Ekki er hægt að ná öllum skömmtum með MINIRIN nefúða 10 míkróg/skammti. 1 skammtur (1 úðaskammtur) af nefúðanum er 0,1 ml sem samsvarar 10 míkrógrömmum af desmópressínasetati. Flóðmiga: Fullorðnir: Skammtar eru einstaklingsbundnir, en venjulegur skammtur er 1-2 úðaskammtar (10-20 míkrógrömm) einu sinni til tvisvar sinnum á sólarhring. Börn: Skammtar eru einstaklingsbundnir, en venjulegur skammtur er 5-10 míkrógrömm einu sinni til tvisvar sinnum á sólarhring. Til rannsóknar á hæfni nýrna til að þétta þvag: Fullorðnir: 4 úðaskammtar (40 míkrógrömm) Börn, eldri en 1 árs: 2 úðaskammtar (20 míkrógrömm) Börn, yngri en 1 árs: 1 úðaskammtur (10 míkrógrömm). Leiðbeiningar um notkun og meðferð MINIRIN nefúða Áður en MINIRIN nefúði er notaður í fyrsta sinn þarf að hlaða dæluna með því að þrýsta henni um það bil 4 sinnum niður, eða þar til jafn úði með smáum dropum fæst. Þetta á einnig að gera ef nefúðinn hefur ekki verið notaður í um vikutíma. Mikilvægt! Til að ná jafnri skömmtun er mikilvægt að plastslangan í flöskunni sé ofan í vökvanum eins og sýnt er á mynd A. Þegar skammtar eru stærri en jafngildir einum úðaskammti í hvora nös á að gera um 1 mínútu hlé áður en úðað er á ný í sömu nös. 3

4 Notkunarleiðbeiningar: 1. Snýttu þér og taktu hlífðarhettuna af. 2. Haltu úðaflöskunni eins og sýnt er á myndinni. 3. Hallaðu höfðinu lítið eitt aftur. Settu stútinn í aðra nösina. Haltu niðri í þér andanum og úðaðu einu sinni. 4. Ef þú átt að nota meira en einn úðaskammt þá á einnig að úða í hina nösina. Úða á til skiptis í nasirnar. 5. Settu hlífðarhettuna á eftir notkun. Geymdu flöskuna standandi. Skert nýrnastarfsemi Hafðu samband við lækninn. Það getur reynst nauðsynlegt að breyta skammtinum eða stöðva meðferðina. Fylgdu leiðbeiningum læknisins. Skert lifrarstarfsemi Skammtaaðlögun er ekki nauðsynleg. Ungbörn, aldraðir sjúklingar og sjúklingar með lága natríumþéttni í blóði (nálægt neðri mörkum eðlilegra marka) geta verið í aukinni hættu að fá blóðnatríumlækkun (þéttnin fer undir eðlileg mörk), sem er alvarleg aukaverkun (sjá kafla 4). Notkun handa börnum MINIRIN nefúða skal gefa börnum undir eftirliti fullorðinna til að tryggja réttan skammt. Sjá ráðlagða skammta hér að framan. Ef notaður er stærri skammtur en mælt er fyrir um Ef of stór skammtur af MINIRIN nefúða hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús (bráðamóttöku) eða eitrunarmiðstöð (sími ). Hafðu umbúðirnar meðferðis. Ofskömmtun getur leitt til þyngdaraukningar, öndunarerfiðleika, þrota í fótum og fótleggjum vegna vökvasöfnunar í líkamanum. Þú getur einnig fengið höfuðverk, ógleði, vanlíðan, máttleysi í vöðvum og ringlun vegna of lítils natríums í blóði. Of lítið natríum í blóði getur örsjaldan orðið alvarlegt og valdið vöðvakrömpum og meðvitundarleyi/dái. Hafðu samband við lækninn. Ef gleymist að nota MINIRIN Ef skammtur gleymist eða ef þú ert í vafa um hvort þú hafir notað skammtinn á að halda áfram með venjulega skammta. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymdist. 4. Hugsanlegar aukaverkanir Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum. Alvarlegar aukaverkanir Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum): Of lítið natríum í blóði, sem getur lýst sér með höfuðverk, ógleði, uppköstum, þyngdaraukningu, slappleika, magaverkjum, slappleika í vöðvum og vöðvakrömpum, sundli, þreytu, þrota í höndum, handleggjum og fótum og/eða fótleggjum, rugli, skertri meðvitund, krömpum og dái. Hafa skal samband við lækni eða bráðamóttöku. Hringið jafnvel í

5 Ofnæmi með skyndilegum útbrotum, andnauð, brjóstverkur og jafnvel meðvitundarleysi. Hafa skal samband við lækni eða bráðamóttöku. Hringið jafnvel í 112. Aukaverkanir sem eru ekki alvarlegar Mjög algengar aukaverkanir (koma fram hjá fleirum en 1 af hverjum 10 sjúklingum): Nefstífla, nefrennsli (rhinitis) og hækkun líkamshita. Algengar aukaverkanir (koma fram hjá milli 1 og 10 af hverjum 100 sjúklingum): Svefnleysi, skapsveiflur, martraðir, taugaóstyrkur, árásarhneigð, höfuðverkur, blóðnasir, sýking í efri hluta öndunarvegar, garna- og magabólga (gastroenteritis), ógleði og magaverkir. Sjaldgæfar aukaverkanir (koma fram hjá milli 1 og 10 af hverjum sjúklingum): Uppköst. Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum): Ofþornun (vökvaskortur) með einkennum svo sem þorsta, almennum slappleika, auknum púlshraða, sundli, yfirlið vegna vökvaskorts og ofþornunar. Áberandi ofþornun er alvarleg aukaverkun. Hafðu samband við lækninn. Rugl, sundl, svefnhöfgi, háþrýstingur. Hafðu samband við lækninn, háþrýsting á að meðhöndla. Mjög hár blóðþrýstingur er alvarlegur. Mæði, niðurgangur, kláði, útbrot, ofsakláði, vöðvakrampar, þreyta, þroti í höndum, handleggjum, fótum og/eða fótleggjum, brjóstverkur, kuldahrollur og þyngdaraukning. Hjá börnum kemur blóðnatríumlækkun oft fram í tengslum við breytingar á daglegum venjum sem hafa áhrif á neyslu vökva og/eða aukna svitamyndun. Tilkynning aukaverkana Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Einnig er hægt að tilkynna aukaverkanir beint samkvæmt fyrirkomulagi sem gildir í hverju landi fyrir sig, sjá Appendix V. Með því að tilkynna aukaverkanir er hægt að hjálpa til við að auka upplýsingar um öryggi lyfsins. 5. Hvernig geyma á MINIRIN Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Ekki skal nota lyfið eftir fyrningardagsetningu sem tilgreind er á umbúðunum á eftir EXP eða fyrnist. Fyrningardagsetningin er síðasti dagur mánaðarins sem þar kemur fram. Engin sérstök fyrirmæli eru um geymsluaðstæður lyfsins. Ekki má skola lyfjum niður í frárennslislagnir eða fleygja þeim með heimilissorpi. Leitið ráða í apóteki um hvernig heppilegast er að farga lyfjum sem hætt er að nota. Markmiðið er að vernda umhverfið. 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar MINIRIN inniheldur: - Virka innihaldsefnið er desmópressínasetat. 1 ml inniheldur 100 míkrógrömm desmópressínasetat sem samsvarar 89 míkrógrömmum af desmópressíni. 5

6 - Önnur innihaldsefni eru: natríumklóríð, sítrónusýrueinhýdrat, tvínatríumfosfattvíhýdrat og hreinsað vatn. Benzalkonklóríð er notað sem rotvarnarefni. 1 ml MINIRIN nefúða inniheldur 0,1 mg af benzalkonklóríði. Pakkningastærðir: 10 míkróg/skammt: 5 ml (u.þ.b. 50 skammtar), 3 x 5 ml (u.þ.b. 150 skammtar). Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar. Markaðsleyfishafi og framleiðandi Markaðsleyfishafi: Ferring Lægemidler A/S, Kay Fiskers Plads 11, 2300 København S, Danmörk. Framleiðandi: Ferring GmbH, Wittland 11, Kiel, Þýskaland. Umboð á Íslandi Vistor hf., sími: Fylgiseðillinn var síðast uppfærður í febrúar

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desmópressín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desmópressín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins MINIRIN frostþurrkaðar töflur, 60 míkróg, 120 míkróg eða 240 míkróg Desmópressín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Zofran 4 mg filmuhúðaðar töflur Zofran 8 mg filmuhúðaðar töflur. ondansetrón

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Zofran 4 mg filmuhúðaðar töflur Zofran 8 mg filmuhúðaðar töflur. ondansetrón Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Zofran 4 mg filmuhúðaðar töflur Zofran 8 mg filmuhúðaðar töflur ondansetrón Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru

Læs mere

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Otrivin Menthol ukonserveret 1 mg/ml nefúði, lausn. Xýlómetazólínhýdróklóríð

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Otrivin Menthol ukonserveret 1 mg/ml nefúði, lausn. Xýlómetazólínhýdróklóríð FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS Otrivin Menthol ukonserveret 1 mg/ml nefúði, lausn Xýlómetazólínhýdróklóríð Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru

Læs mere

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g

Fylgiseðill. Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Fylgiseðill Upplýsingar um Ultracortenol augnsmyrsli 5 mg/g Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til

Læs mere

Indlægsseddel: Information til brugeren Carbocain -Adrenalin 5 mg/ml, 10 mg/ml og 20 mg/ml + 5 μg/ml, injektionsvæske, opløsning

Indlægsseddel: Information til brugeren Carbocain -Adrenalin 5 mg/ml, 10 mg/ml og 20 mg/ml + 5 μg/ml, injektionsvæske, opløsning Indlægsseddel: rmation til brugeren Carbocain -Adrenalin 5 mg/ml, 10 mg/ml og 20 mg/ml + 5 μg/ml, injektionsvæske, opløsning mepivacainhydrochlorid og adrenalin Læs denne indlægsseddel grundigt, inden

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint, lyfjatyggigúmmí 2 mg og 4 mg. Nikótín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint, lyfjatyggigúmmí 2 mg og 4 mg. Nikótín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint, lyfjatyggigúmmí 2 mg og 4 mg Nikótín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur. Nikótín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Nicotinell Mint 2 mg, munnsogstöflur Nikótín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Alltaf

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Metoprololsuccinat Hexal 25 mg forðatöflur Metoprololsuccinat Hexal 50 mg forðatöflur Metoprololsuccinat Hexal 100 mg forðatöflur Metoprololsuccinat Hexal

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Famvir 125 mg og 500 mg filmuhúðaðar töflur. famciclovir

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Famvir 125 mg og 500 mg filmuhúðaðar töflur. famciclovir Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Famvir 125 mg og 500 mg filmuhúðaðar töflur famciclovir Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar.

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 1 mg, munnsogstöflur. Nikótín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Nicotinell Mint 1 mg, munnsogstöflur. Nikótín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Nicotinell Mint 1 mg, munnsogstöflur Nikótín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Alltaf

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Myfortic 180 mg og 360 mg magasýruþolnar töflur. Mycofenolsýra (sem natríummycofenolat)

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Myfortic 180 mg og 360 mg magasýruþolnar töflur. Mycofenolsýra (sem natríummycofenolat) Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Myfortic 180 mg og 360 mg magasýruþolnar töflur Mycofenolsýra (sem natríummycofenolat) Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur. cíprófloxacín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur. cíprófloxacín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Síprox 250 mg filmuhúðaðar töflur cíprófloxacín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að taka lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. -

Læs mere

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Nicotinell forðaplástur. Nikótín 7 mg/24 klst., 14 mg/24 klst. og 21 mg/24 klst.

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Nicotinell forðaplástur. Nikótín 7 mg/24 klst., 14 mg/24 klst. og 21 mg/24 klst. FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS Nicotinell forðaplástur Nikótín 7 mg/24 klst., 14 mg/24 klst. og 21 mg/24 klst. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega þar sem hann veitir mikilvægar upplýsingar

Læs mere

FYLGISEÐILL. FOMEPIZOLE EUSA Pharma 5 mg/ml, innrennslisþykkni, lausn. Fomepízól (sem súlfat).

FYLGISEÐILL. FOMEPIZOLE EUSA Pharma 5 mg/ml, innrennslisþykkni, lausn. Fomepízól (sem súlfat). FYLGISEÐILL FOMEPIZOLE EUSA Pharma 5 mg/ml, innrennslisþykkni, lausn. Fomepízól (sem súlfat). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Seroquel Prolong 50 mg, 150 mg, 200 mg, 300 mg, 400 mg forðatöflur. quetiapin

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Seroquel Prolong 50 mg, 150 mg, 200 mg, 300 mg, 400 mg forðatöflur. quetiapin Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Seroquel Prolong 50 mg, 150 mg, 200 mg, 300 mg, 400 mg forðatöflur quetiapin Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. HUMULIN NPH (ísófan) KwikPen 100 a.e./ml stungulyf, dreifa í áfylltum lyfjapenna Mannainsúlín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. HUMULIN NPH (ísófan) KwikPen 100 a.e./ml stungulyf, dreifa í áfylltum lyfjapenna Mannainsúlín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins HUMULIN NPH (ísófan) KwikPen 100 a.e./ml stungulyf, dreifa í áfylltum lyfjapenna Mannainsúlín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota

Læs mere

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð

FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS. Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð B. FYLGISEÐILL 21 FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS Defitelio 80 mg/ml innrennslisþykkni, lausn defíbrótíð Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Vaniqa 11,5% krem 2. INNIHALDSLÝSING Í hverju g af kremi eru 115 mg af eflornitíni (sem vetnisklóríðeinhýdrat). Hjálparefni með þekkta verkun: Hvert

Læs mere

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser

Sådan er jeg. Spil og leg 14 Følelser Spil og leg 14 Læsebog side 40 41 Opgavebog side 68 Tegund: Samtalsæfing Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða sem snýr að tilfinningum, persónueinkennum og útliti. Undirbúningur: Prenta út opgaveblad

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Opsumit 10 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg macitentan. Hjálparefni með þekkta verkun Hver filmuhúðuð

Læs mere

Kökur, Flekar,Lengjur

Kökur, Flekar,Lengjur Kökur, Flekar,Lengjur Qimiq vörurnar eru unnar úr úrvals Austurísku hráefni. Q003301 Qimiq Profi Whip 1 kg (12) Q000114 Qimiq Base 1 kg (12) Q000115 Qimiq Sauce base 1 kg (12) Qimiq Whip Notið QimiQ Whip

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Fasturtec 1,5 mg/ml stofn og leysir fyrir innrennslisþykkni, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Fasturtec er raðbrigða úrat-oxídasa ensím framleitt af erfðabreyttum

Læs mere

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver skammtapoki inniheldur: 10 mg esomeprazol (sem magnesíumþríhýdrat).

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver skammtapoki inniheldur: 10 mg esomeprazol (sem magnesíumþríhýdrat). SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Nexium 10 mg magasýruþolið mixtúrukyrni, dreifa, skammtapoki 2. INNIHALDSLÝSING Hver skammtapoki inniheldur: 10 mg esomeprazol (sem magnesíumþríhýdrat). Hjálparefni

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS SIFROL 0,088 mg töflur SIFROL 0,18 mg töflur SIFROL 0,35 mg töflur SIFROL 0,7 mg töflur SIFROL 1,1 mg töflur 2. INNIHALDSLÝSING SIFROL 0,088 mg töflur

Læs mere

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými.

Gólfhitagrind FHF. Hægt er að stýra hverjum loka með vaxmótorum, sem síðan er stjórnað af hitastilli í viðkomandi rými. Notkun FHF gólfhitagrindin er notuð til að stjórna vatnsrennsli í gólfhitakerfum. Hvert rör í kerfinu er tengt gólfhitagrindinni sem gerir kleift að stjórna vatnsrennsli í hverri rás og hita í hverju rými

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Metalyse 8.000 einingar, stungulyfsstofn og leysir, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hettuglas inniheldur 8.000 einingar (40 mg) af tenekteplasa. Hver

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS Advocate 40 mg + 4 mg blettunarlausn handa litlum köttum og frettum. Advocate 80 mg + 8 mg blettunarlausn handa stórum köttum. 2. INNIHALDSLÝSING

Læs mere

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir:

6.5.2 Útgáfa 1.2 Dags Frágangur handlista. Leiðbeiningar. Leiðbeiningar. Mannvirkjastofnun. Í grein í byggingarreglugerð segir: . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014, 360/2016 og 666/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Frágangur handlista Í grein í byggingarreglugerð segir: Handlistar

Læs mere

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju:

Lærervejledninger LIVSSTIL. Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: Hugmyndir að kveikju: Í þemanu er m.a. unnið með orðaforða: tengdan lífsstíl um neyslu ungs fólks á Norðurlöndum um ofnotkun á hreinlætisvörum og orku Hugmyndir að kveikju: Umræður um neyslu ungs fólks í dag. Fjallað um myndina

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

Læs mere

esurveyspro.com - Survey Detail Report

esurveyspro.com - Survey Detail Report Page 1 of 5 Kommuner: Miljøledelse ved bygning af veje og gader i de nordiske lande Respondent Type: Customer Custom Data 1: Name: Anna Rósa Custom Data 2: Email address: anna.r.bodvarsdottir@reykjavik.is

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS JEVTANA 60 mg innrennslisþykkni og leysir, lausn. 2. VIRK INNIHALDSEFNI OG STYRKLEIKAR Hver ml af innrennslisþykkni inniheldur 40 mg cabazitaxel.

Læs mere

Dyrebingo. Önnur útfærsla

Dyrebingo. Önnur útfærsla Opgaveblad 2A Opgaveblad 2C Dyr i Danmarks natur Læsebog side 10 11 Opgavebog side 19 Tegund: Bingó með myndaspjöldum Form: Hópleikur Markmið: Að þjálfa orðaforða tengdan dýrum. Undirbúningur: Prenta út

Læs mere

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS Suprelorin 4,7 mg vefjalyf fyrir hunda. 2. INNIHALDSLÝSING Virk innihaldsefni: Deslorelín (sem deslorelínasetat) 4.7 mg. Hjálparefni: Sjá lista

Læs mere

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Sandostatin LAR 10 mg, 20 mg og 30 mg stungulyfsstofn og leysir, dreifa.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Sandostatin LAR 10 mg, 20 mg og 30 mg stungulyfsstofn og leysir, dreifa. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Sandostatin LAR 10 mg, 20 mg og 30 mg stungulyfsstofn og leysir, dreifa. 2. INNIHALDSLÝSING Eitt hettuglas inniheldur 10 mg, 20 mg eða 30 mg af octreotidi (sem

Læs mere

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003.

AUGLÝSING. um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu 2003. 545 AUGLÝSING um samning við Grænland/Danmörku um gagnkvæmar veiðar á úthafskarfa í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands á árinu. Hinn 30. apríl og 1. maí var með bréfaskiptum í Reykjavík og Nuuk gengið

Læs mere

komudagur 21-1- 2 0 f2

komudagur 21-1- 2 0 f2 7W O s s u e i k (. íé T ) Erindim Þ M /lo O S komudagur 21-1- 2 0 f2 MINNISBLAÐ TIL EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTANEFNDAR -tilla g a að nýrri 9. mgr. 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari

Læs mere

Sjúkdómaskráning í svínasláturhúsum. Orsakir einkenna og sjúkdómalyklar. Handbók

Sjúkdómaskráning í svínasláturhúsum. Orsakir einkenna og sjúkdómalyklar. Handbók Sjúkdómaskráning í svínasláturhúsum. Orsakir einkenna og sjúkdómalyklar. Handbók Unnið og staðfært úr dönsku kjötmati af dýralækni svínasjúkdóma. Febrúar 2003. Yfirlit sjúkdómalyklar - skráningarnúmer

Læs mere

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál]

Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] Nd. 230. Frumvarp til laga [127. mál] um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um félagslegt öryggi. (Lagt

Læs mere

05 / MÁLTAKA ANNARS TUNGUMÁLS 14 / FJÓRAR AÐFERÐIR SEM NOTA MÁ TIL AÐ SAFNA GÖGNUM 16 / LISTAR - SKRÁNINGARBLAÐ - EINSTAKLINGSÁÆTLUN

05 / MÁLTAKA ANNARS TUNGUMÁLS 14 / FJÓRAR AÐFERÐIR SEM NOTA MÁ TIL AÐ SAFNA GÖGNUM 16 / LISTAR - SKRÁNINGARBLAÐ - EINSTAKLINGSÁÆTLUN EFNISYFIRLIT 03 / INNGANGUR 04 / EFNI HANDBÓKAR 05 / MÁLTAKA ANNARS TUNGUMÁLS 08 / MATSAÐFERÐIR 10 / HVAÐ - HVERNIG 11 / MÓDEL 14 / FJÓRAR AÐFERÐIR SEM NOTA MÁ TIL AÐ SAFNA GÖGNUM 16 / LISTAR - SKRÁNINGARBLAÐ

Læs mere

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

START. Spil og leg. Start Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 START Spil og leg 1 Spil og leg 1 Hvem er jeg? Hvad hedder du? Læsebog side 3 Opgavebog side Tegund: Samtals- og hreyfileikur Form: Hópleikur Markmið: Að læra að kynna sig. Undirbúningur: Finna bolta eða

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr.

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. . gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Gangar og anddyri Í grein í byggingarreglugerð segir: Meginreglur: Eftirfarandi

Læs mere

Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík.

Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík. Lyfjagreiðslunefnd FUNDARGERÐ 283. fundar Dagsetning og staður: 10. september 2018 kl. 14 að Vínlandsleið 14, Reykjavík. Fundinn sátu: Nefndarmenn: Guðrún I. Gylfadóttir, formaður Jóhann M. Lenharðsson

Læs mere

Áður en farið er að vinna með kaflann er mælt með að tölurnar verði rifjaðar upp þar sem tölur koma við sögu í umfjöllun um t.d. verð og stærðir.

Áður en farið er að vinna með kaflann er mælt með að tölurnar verði rifjaðar upp þar sem tölur koma við sögu í umfjöllun um t.d. verð og stærðir. Tøj og tilbehør Í þemanu er fjallað um: mismunandi tegundir af fötum og fylgihlutum. hvað er í snyrtitöskunni. föt og tísku frá mismunandi tímabilum. stuttar fréttir og staðreyndir sem tengjast fötum.

Læs mere

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands.

AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. S 5-4 1 S 5-4 Stjórnartíðindi C-deild, Nr. 19/1975 AUGLÝSING um samkomulag milli Íslands og Danmerkur um flugumferðarþjónustu í hluta af loftrými Grænlands. Með orðsendingaskiptum í Reykjavík í dag var

Læs mere

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO MÁLNOTKUNARÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. útgáfa 02.09.2015 Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins 1.1 Vörukenni: Q8 Auto JK Vörunúmer: 7503 30212560 1.2 Viðeigandi

Læs mere

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum

BA ritgerð. Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum BA ritgerð Félagsráðgjöf Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða hjá öldruðum Hrafnhildur Björg Gunnlaugsdóttir Sigurveig H. Sigurðardóttir Sigrún Ingvarsdóttir Janúar 2016 Birtingarmyndir þunglyndis og kvíða

Læs mere

Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu

Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu Úr sögu innrennslislyfja á Íslandi með ívafi eigin minninga og brotlegrar minjavörslu Þorkell Jóhannesson dr.thorkell@simnet.is Höfundur er læknir, prófessor úr embætti. Stungulyf Innrennslislyf: Skilgreiningar

Læs mere

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. útgáfa 25.05.2015 Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins 1.1 Vörukenni: Q8 van Gogh 32 Seigja: ISO VG 32 Vörunúmer: 7503

Læs mere

Sorg barna Hvert er hlutverk skólans?

Sorg barna Hvert er hlutverk skólans? Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Sorg barna Hvert er hlutverk skólans? Hanna Skúladóttir Kennaraháskóli Íslands Grunnskólabraut Apríl 2008 Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Sorg barna Hvert er hlutverk skólans?

Læs mere

Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja

Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja 1 Kostnaður TR 2007 vegna þunglyndislyfja Samantekt Kostnaður TR vegna þunglyndislyfja nam 691 millj.kr. árið 2007. Kostnaður lækkaði um 70 millj. kr. frá fyrra

Læs mere

Nýrnabilun af völdum v

Nýrnabilun af völdum v Nýrnabilun af völdum v sykursýki Runólfur Pálsson, læknir, FACP, FASN Landspítali Læknadeild Háskóla Íslands 23. febrúar ar,, 2009 Fræðslufundur Félags nýrnasjúkra og Samtaka sykurjúkra kra Diabetes and

Læs mere

E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks

Eirgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl Fyrir þig Il fróðleiks E"irgjöf skulda og ýmis álitamál því tengd námskeið hjá FEL 6. apríl, 2009, kl. 13-16 Fyrir þig Il fróðleiks Ásmundur G. Vilhjálmsson SkaOalögfræðingur Inngangur Við e"irgjöf kröfu þarf skuldari ekki að

Læs mere

MINNISBLAÐ MB Reykjavík, 28/01/2015

MINNISBLAÐ MB Reykjavík, 28/01/2015 MINNISBLAÐ MB-15.1 Reykjavík, 28/01/2015 1. Hvaða veðurstikar (veðurþættir, e. weather parameter) eru notaðir til að búa til inntaksgögnin fyrir AERMOD? Hvernig er vindrós svæðisins sem byggt var á? Hvilke

Læs mere

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1

Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Listi yfir aðföng til málmsmíða Fylgiskjal 1 Efnisyfirlit Messing, nýsilfur, kopar, ál...3 Silfur...3 Blý...3 Tinklumpar...3 Tinþráður...4 Suðuteinar...4 Rör...4 Silfurslaglóð...4 Flúx...5 Teinar...5 Slípimassi,

Læs mere

Börn og sorg. Fræðsla um lífið og dauðann í leikskólum og gagnsemi hennar. Ragnheiður Guðjónsdóttir

Börn og sorg. Fræðsla um lífið og dauðann í leikskólum og gagnsemi hennar. Ragnheiður Guðjónsdóttir Börn og sorg Fræðsla um lífið og dauðann í leikskólum og gagnsemi hennar Ragnheiður Guðjónsdóttir Lokaverkefni lagt fram til fullnaðar B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands, Menntavísindasvið

Læs mere

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla.

Talæfingar með. Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla. Tænk Talæfingar með Námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla. Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir Yfirlestur og ráðgjöf: Astrid Juul Poulsen

Læs mere

sþ. 562. Tillaga til þingsályktunar [265. mál]

sþ. 562. Tillaga til þingsályktunar [265. mál] sþ. 562. Tillaga til þingsályktunar [265. mál] um staðfestingu fjögurra Norðurlandasamninga um vinnumarkaðsmál og viðurkenningu starfsréttinda. (Lögð fyrir Alþingi á 104. löggjafarþingi 1981-82.) Alþingi

Læs mere

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur III. Sjávarhiti

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur III. Sjávarhiti Greinargerð 1 Trausti Jónsson Langtímasveiflur III Sjávarhiti VÍ-ÚR1 Reykjavík Mars Sjávarhitamælingar í gögnum Veðurstofunnar Inngangur Í gagnasafni Veðurstofunnar er talsvert til af sjávarhitamælingum.

Læs mere

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850

EKKO. Samtaleøvelser NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO NÁMSGAGNASTOFNUN 09850 EKKO SAMTALSÆFINGAR Höfundar: Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og Erna Jessen Teikningar: Böðvar Leós Ritstjórn: Ellen Klara Eyjólfsdóttir Útlit og umbrot: NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun

Læs mere

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög

Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög Reglur um skráningu mála og skjala afhendingarskyldra aðila Drög 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um afhendingarskylda aðila sem falla undir 1. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Læs mere

Efni: Umsögn Lyfjastofnunar um frumvarp frumvarp til laga um lyfjalög (heildarlög, EES-reglur), 677. mál.

Efni: Umsögn Lyfjastofnunar um frumvarp frumvarp til laga um lyfjalög (heildarlög, EES-reglur), 677. mál. Nefndasvið Alþingis Velferðarnefnd 150 Reykjavík Reykjavík, 6.7.2016 Tilvísun: 0.5.1.2 / Málsnúmer: 2016050258 Efni: Umsögn Lyfjastofnunar um frumvarp frumvarp til laga um lyfjalög (heildarlög, EES-reglur),

Læs mere

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála

Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála ML í lögfræði Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála Hvernig er fjárhæð miskabóta vegna þvingunarráðstafana ákveðin hjá dómstólum? Nafn nemanda: Hanna Guðmundsdóttir

Læs mere

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desferal 500 mg/hettuglas, stungulyfs- og innrennslisstofn, lausn. deferoxaminmesilat

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Desferal 500 mg/hettuglas, stungulyfs- og innrennslisstofn, lausn. deferoxaminmesilat Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Desferal 500 mg/hettuglas, stungulyfs- og innrennslisstofn, lausn deferoxaminmesilat Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í

Læs mere

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. útgáfa 02.09.2015 Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins 1.1 Vörukenni: Q8 LHM+ Vörunúmer: 7503 30771075 1.2 Viðeigandi

Læs mere

Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum

Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum Spilastokkurinn - hugmyndabanki fyrir kennara hvernig kenna má stærðfræði með spilum Sigrún Helga Kristjánsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir Lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræði Leiðsögukennari:

Læs mere

BORGARHOLTSSKÓLI bókmennt handmennt - siðmennt

BORGARHOLTSSKÓLI bókmennt handmennt - siðmennt Útgáfa: 04 Dags: 03012018 Höfundur: IJ Samþykkt: Síða 1 af 4 BORGARHOLTSSKÓLI bókmennt handmennt - siðmennt Dan 2A05 Námsáætlun, vorönn 2018 Kennari: Inga Jóhannsdóttir Netfang: ij@bhsis Lýsing: Í áfanganum

Læs mere

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016

Leiðbeiningar gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 6.4.2 6.4.2. gr. byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sbr. rgl. nr. 1173/2012, 350/2013, 280/2014 og 360/2016 Inngangsdyr / útidyr og svala /garðdyr Lög um mannvirki, nr. 160/2010 Í grein 6.4.2 í byggingarreglugerð

Læs mere

Kjarasamningar í Danmörku

Kjarasamningar í Danmörku Kjarasamningar í Danmörku Allan Lyngsø Madsen Aðalhagfræðingur Yfirlit 1. Undirbúningur 2. Félagslegur og hagfræðilegur byrjunarpunktur. 3. Viðræður LO og DA 4. Ferlið á almenna markaðinum 5. Áhrif á aðra.

Læs mere

ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG

ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG GLEYM - MÉR - EI ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG Að missa eftir 22. viku meðgöngu Þegar gleðin breytist í sorg Að missa á meðgöngu Útgefandi: LÍF styrktarfélag 1. útgáfa 2012 Efnisyfirlit Inngangur Tilfinningar

Læs mere

ÍSLANDS. 1. tölublað Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt

ÍSLANDS. 1. tölublað Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt gigtingigtarfélag ÍSLANDS 1. tölublað 2012 Ungt fólk með gigt Bólgugigt og hjartaáföll aukin áhætta Ekki gefast upp þó þér sé illt Göngum frá verknum HVÍTA HÚSIÐ / SÍA - Actavis 111171 Íbúfen Bólgueyðandi

Læs mere

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar Efnisyfirlit Til kennara................................. 3 Uppbygging efnisins............................ 3 Markmið..................................

Læs mere

- kennaraleiðbeiningar

- kennaraleiðbeiningar - kennaraleiðbeiningar María Una Óladóttir Kennsluleiðbeiningar með kennsluefninu ord til at starte med! Verkefni 1 - Að nemendur læri að kynna sig og fjölskyldumeðlimi. Nemendur teikna í rammann eða koma

Læs mere

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir LV-2009/003 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið 2008 Janúar 2009 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði

Læs mere

Reglur um umhverfisvottun á vörum með norræna umhverfismerkinu Svaninum

Reglur um umhverfisvottun á vörum með norræna umhverfismerkinu Svaninum Reglur um umhverfisvottun á vörum með norræna umhverfismerkinu Svaninum Norræna umhverfismerkið 9. mars 2016 Í nóvember árið 1989 gaf Norðurlandaráð út tilskipun um stofnun valfrjáls opinbers umhverfismerkis,

Læs mere

heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT

heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT NÝ heilsuvæn málning sem NAAF mælir með! Bliss LITAKORT 301 BLANCO 0401-G42Y 305 EGGHVIT 0502-Y 309 EGGESKALL S 0505-Y 313 MOHAIR 1104-Y24R «Draga verður úr fjölda þeirra einstaklinga sem þróa með sér

Læs mere

Jökulsárlón og hvað svo?

Jökulsárlón og hvað svo? Jökulsárlón og hvað svo? Jökulsárlón á Breiðamerkursandi mikilvægt kennileiti í Íslenskri ferðaþjónustu meðal fjölsóttustu ferðamannastaða á Íslandi Þjónustusvæði - deiliskipulag staðfest í ágúst 2013

Læs mere

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur

Jeg elsker Danmark. Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur Jeg elsker Danmark Í þemanu er fjallað um: Danmörku og danska menningu athyglisverða staði í Danmörku þjóðsögur og ferðalög almenningssamgöngur Markmiðið er að nemendur: fræðist um Danmörku og danska menningu.

Læs mere

AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO. Kontrolafgift på 750 kr. grundet manglende zoner, da hun kørte for langt.

AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO. Kontrolafgift på 750 kr. grundet manglende zoner, da hun kørte for langt. AFGØRELSE FRA ANKENÆVNET FOR BUS, TOG OG METRO Journalnummer: 2016-0177 Klageren: XX Island Indklagede: Metroselskabet I/S v/metro Service A/S CVRnummer: 21 26 38 34 Klagen vedrører: Parternes krav: Kontrolafgift

Læs mere

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur. Vindmyllur í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi Endurbætt útgáfa af skýrslu nr. LV-2015-089 Skýrsla nr. LV-2016-044 Sjónræn áhrif. Búrfellslundur.

Læs mere

LV Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum Kjalölduveitu

LV Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum Kjalölduveitu LV-206-4 Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum Kjalölduveitu LV-206-4 Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum Kjalölduveitu Ágúst 206 2 Forsíðumyndin sýnir fornleifar nr. 74, vörðu (Horft

Læs mere

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0)

The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) NAME 1.0 Handbók The Nordic Assisted Mobility Evaluation (NAME 1.0) Åse Brandt Charlotte Löfqvist John Nilsson Kersti Samuelsson Tuula Hurnasti Inga Jónsdóttir Anna-Liisa Salminen Terje Sund Susanne Iwarsson

Læs mere

Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar

Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar Persónukjör við sveitarstjórnarkosningar Magnús Karel Hannesson Aðalfundur SASS 16. október 2009 Höfn í Hornafirði SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Samband Samband íslenskra íslenskra sveitarfélaga sveitarfélaga

Læs mere

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008

Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. útgáfa 08.05.2014 Öryggisblað (MSDS) Samkvæmt reglugerð Nr. 750/2008 1. Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins 1.1 Vörukenni: Q8 Auto D VI Vörunúmer: 7503 436060 1.2 Viðeigandi

Læs mere

Æfingar og ráð til að takast á við streitu

Æfingar og ráð til að takast á við streitu STÚDENTAÞJÓNUSTA HR STR EI Æfingar og ráð til að takast á við streitu TA 1 Nánari upplýsingar um stúdentaþjónustu HR: hr.is/studentathjonusta Bæklingur þessi heitir á frummálinu Stress. Útgefandi: Studenterrådgivningen,

Læs mere

4 helgi eða hafnir annara ríkja. Af þessu ferðalagi skipsins leiða eðlilega fjöldamargar sjerreglur. - Til þess að hægt sje að skilja og skýra þessar

4 helgi eða hafnir annara ríkja. Af þessu ferðalagi skipsins leiða eðlilega fjöldamargar sjerreglur. - Til þess að hægt sje að skilja og skýra þessar A. Inngangur. Forsendur. I. Sjórjettur. 1. Sjórjetturinn er lögin um siglingar. Öll þau lög (í víðustu merkingu), sem eiga rætur sínar í sjerkennum siglinga, eiga eftir eðli sínu heima í sjórjettinum.

Læs mere

ÖRYGGISBLAÐ CIP Alka CR

ÖRYGGISBLAÐ CIP Alka CR CIP Alka CR Síða 1 af 8 ÖRYGGISBLAÐ CIP Alka CR SDS samræmi við reglugerð (EB) nr 1907/2006 EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS um skráningu, mat, Heimild til og takmörkun efna (REACH), II - ESB KAFLI 1: Auðkenning

Læs mere

Jöfn umgengni í framkvæmd

Jöfn umgengni í framkvæmd Jöfn umgengni í framkvæmd Helga Sigmundsdóttir Hrefna Friðriksdóttir Lagadeild Ritstjóri: Kristín Benediktsdóttir Rannsóknir í félagsvísindum XIV. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2013 Reykjavík: Félagsvísindastofnun

Læs mere

Min krop. Se mit ansigt / Jeg hører med mine ører

Min krop. Se mit ansigt / Jeg hører med mine ører Min krop Í þemanu er fjallað um: Andlitið og skynfærin Líkamann Ýmsar daglegar athafnir tengdar líkamanum og skynfærunum. Ýmsa algenga kvilla eins og kvef og hálsbólgu. Markmið er að nemendur: Læri helstu

Læs mere

Commissions Papiirer til Jnstr. 7 de Post. Jndkom d. 20 de Martii 1771. 1 Þorgrímur Þorláksson, múrarameistari Elliðavatni.

Commissions Papiirer til Jnstr. 7 de Post. Jndkom d. 20 de Martii 1771. 1 Þorgrímur Þorláksson, múrarameistari Elliðavatni. Bréf Bjarna Pálssonar landlæknis til Landsnefnarinnar fyrri um meðöl gegn fjárpestinni, 14.03.1771. Lit. GG. ÞÍ. Skjalasafn rentukammers. B4/1, örk 22. (Ind. Ref. 2. Nor. B. nr. 391) Commissions Papiirer

Læs mere

ÖRYGGISÚTTEKT HJÓLASTÍGA

ÖRYGGISÚTTEKT HJÓLASTÍGA ÖRYGGISÚTTEKT HJÓLASTÍGA RANNSÓKNARVERKEFNI UNNIÐ MEÐ STYRK FRÁ VEGAGERÐINNI FEBRÚAR 2015 ÖRYGGISÚTTEKT HJÓLASTÍGA Efnisyfirlit: 1. Inngangur... 1 2. Fyrirkomulag... 2 2.1 Verkkaupi... 2 2.2 Skoðunaraðili...

Læs mere

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942

SMART. Spil og leg. Smart Spil og leg Námsgagnastofnun 2011 9942 SMART Spil og leg 1 Spil og leg 1 Tallene Tæl til hundrede Læsebog side 7 Opgavebog side 11 Tegund: Hermileikur Form: Hópleikur Markmið: Hlusta og einbeita sér. Að æfa tugina. Undirbúningur: 1. Nemendur

Læs mere

RLR Alþingi Erindi nr. Þ PO / )!7/ komudagur

RLR Alþingi Erindi nr. Þ PO / )!7/ komudagur RLR Alþingi Erindi nr. Þ PO / )!7/ komudagur RANNSÓKNARLÖGREGLA RÍKISINS Auöbrekka 6 Pósthólf 280 202 Kópavogur Slmi 554-4000 Fax 554-3865.ópavogi 15. mars 1996 BN/- Borist hefur til umsagnar frá allsherjamefnd

Læs mere

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar

Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar Stefnan sett! Um náms- og starfsval Kennsluleiðbeiningar Efnisyfirlit Til kennara................................. 3 Uppbygging efnisins............................ 3 Markmið..................................

Læs mere

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir

Kárahnjúkavirkjun. Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið Unnið fyrir Landsvirkjun. Gerður Guðmundsdóttir LV-2008/059 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði sumarið 2007 Maí 2008 Kárahnjúkavirkjun Fallryksmælingar á Brúaröræfum, við Hálslón og á Fljótsdalshéraði

Læs mere

Oft má satt kyrrt liggja

Oft má satt kyrrt liggja Oft má satt kyrrt liggja Vítaleysi sannra ærumeiðinga, einkum með tilliti til fjölmiðla - Ritgerð til meistaraprófs í lögfræði - Skúli Á. Sigurðsson Lagadeild Félagsvísindasvið Leiðbeinandi: Dr. Páll Sigurðsson

Læs mere

Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið Michael Dal

Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið Michael Dal Úttekt á samræmdu prófi í dönsku vorið 2006 Michael Dal Reykjavík júní 2006 Michael Dal Lektor við Kennaraháskóla Íslands Úttekt á samræmdu prófi i dönsku vorið 2006 Félag dönskukennara og Kennaraháskóli

Læs mere